19. júní - 19.06.1973, Side 35
• •»•••©•*©
Katrín Pálsdóttir, sem varð ekkja 1925, sótti eftir þann tíma um að fá upp-
töku í þriðja bekk Kennaraskóla Islands, en forráðamenn skólans sáu sér ekki
fært að verða við þeirri ósk hennar.
(Æviminningabók Menningar- og
MinningarsjóÖs Kvenna).
I frumvarpi til laga um skólakerfi (1972—1973) segir. í öllu starfi skóla
skal þess gætt, að konur og karlar njóti jafnréttis í hvívetna, jafnt kennarar sem
nemendur.
Sveinn Skorri Höskuldsson skrifar í Skírni 1972 grein, sem heitir: / leit áS
kvenmynd eilífðarinnar“. í ritsmíð þeirri er litið á nokkra þætti i kvenlýsingum
Halldórs I,axness.
Camilla Bjarnardóttir, síðar kona Magnúsar Torfasonar. varð fyrsta íslenzka
konan, sem tók stúdentspróf. Það var í Kaupmannahöfn árið 1889. Lagði hún
síðan stund á stærðfræði við Hafnarháskóla.
(Islenzkir Hafnarstúdentar,
eftir Bjarna Jónsson).
Samkvæmt gildandi lögum eru börn fædd fyrir giftingu foreldra óskilgetin
og skráð óskilgetin í hagskýrslum, en samkvæmt gömlum lögum, sem fyrir löngu
eru fallin úr gildi, voru böm favld í festum talin skilgetin.
(TímaritiS 65°. Grein eftir Bjöm
Bjömsson: „Engagement and Marriage
in Iceland“. Haust 1967).
Ingrid Sannes Johnsen í Oslo, sem varði doktorsritgerð sína um rúnir nýlega,
hafði áður skrifað grein í Arkiv för Noi-disk Filologi (1969) sem hún nefndi:
Geta rúnaristur stuÖla'Ö aÖ því aÖ varpa Jjósi á stööu kvenna í Noregi í heiSni?
Sbr kenningu Dr. Ólafíu Einarsdóttur tóku íslendingar kristni á Alþingi
árið 999, og hefur það ártal verið viðurkennt, þar sem kristnitakan er sögð
það ár i Almanaki Flins íslenzka þjóÖvinafélags síðustu árin.
Nóbelsverðlaunahafinn Paul Samuelson hefir skrifað kennslubók, sem
er lesin af einum þriðja allra hagfræðinemenda í háskólum i Bandaríkjunum.
t nýjum útreikningi á netto þjóðartekjum fyrir framleiðslu og þjónustu vill
hann taka með tölur um störf húsmæðra, sem hingað til hefir verið gengið fram
hjá og reiknar bá út meðaltal af þeim tekjum, sem konur á ýmsum aldri myndu
fá fvrir störf utan heimilis.
19. júm
(Tímaritið Time, 9. april 1973).
GuÖrún Stephensen.
33