19. júní


19. júní - 19.06.1973, Page 39

19. júní - 19.06.1973, Page 39
— Er auSvelt fyrir alla áS menntast í Thailandi? — Börn á bamaskólastigi eru skólaskyld. En ekki er unnt að segja, að eftirlit sé strangt með því, að skólaskyld börn sæki skóla. Kennsla i barnaskólum er ókeypis, en hins vegar verða nemendur að greiða skólagjöld við flesta framhaldsskóla. Þannig er menntun ennþá forréttindi í Thailandi og erfiðara fyrir fólk af lágum stigum að afla sér æðri menntun- ar og hækka í þjóðfélagsstiganum. — Þú talar um, aS algengast sé, aS lágstéttakonur vinni hússtörf. Finnst þér, áS þú sem Evrópubúi hafir haft önnur viShorf til þjónustufólks en Thailendingar sjálfir? — Hástéttunum í Thailandi fundust við Evrópu- menn og Ameríkanar hafa slæm áhrif á húshjálpar- vinnumarkaðinum, þar sem stúlkur höfðu það betra hjá okkur og við borguðum þeim hærri laun. Olli það upplausn að dómi thailenzkra hástétta, þar sem stúlk- urnar byrjuðu í húsum Thailendinga og lærðu hjá þeim almenn húsverk, síðan fóru þær að vinna fyrir Evrópumenn, og seinast réðu þær sig til Ameríkana, þar sem þeir borguðu þeim hæst laun. — Hverjir gœta bús og barna hjá lágstéttunum, á me'ðan mœSurnar fara út aS vinna? — Þá eru það helzt afarnir og ömmumar, sem gæta barnanna, á meðan mæðuraar eru við sína vinnu utan heimilanna. Engar almanna tryggingar eru í Thailandi. Feðurnir og mæðumar endurgjalda öfunum og ömmunum barnagæzluna með þvi að sjá Munkar i gulurn kuflum viS musteri nokkurt. ÞáS var eirts- konar herskrlda hjá Thailendingum að fara í klaustur i eitt ár eða svo. Og kom fxað oft fyrir, að þeir þurftu cð fá frí úr vinnunni þess vegna. þeim farboi’ða. Vert er þó að geta þess, að læknis- hjálp og sjúkrahúsvist er ókeypis. — Finnast þér fjölskyldubönd vera sterk í Thai- landi? — Mikil virðing er borin fyrir þeim, sem eldri eru. Við húshjálp hjá mér núna í Danmörku hef ég tæp- lega fertuga konu thailenzka. Varð hún að fá leyfi foreldra sinna til að koma með okkur hjónunum til Danmerkur. Hefðu foreldrar hemxar sagt nei, hefði hún ekki komið ineð okkur. — llver eru helztu trúarbrögS Thailendinga? --Thailendingar eru Búddhatrúar. Búddhatrú og kristin trú eru lík trúai'brögð og laus við allt ofstæki, eins og finna má hjá Múhanuneðstrúarmönnum. Hinn áttfaldi vegui', sem Búddha kenndi, er svipaður boðorðum kristinna manna. — HváS viltu segja okkur frá trúarhátíSum Thai- lendinga? — - Á veti'um er þurrkatími f rá því í október og þar til í maí. Þegar monsúninn er liðinn hjá, við fullt FÖTSPOR BÚDDHA, eitthvert fallegasta musteri í Thailandi, og er það i um það bil 150 km fjarlœgð norður af Bangkok. 19. JÚNÍ 37

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.