19. júní - 19.06.1973, Side 40
tung] um miðjan nóvember er Loy Krathong. Þá biðja
menn til Búddha um að láta vatnið endast og þurrka-
tílnann verða stuttan. Búa þeir þá til báta, sem þeir
skreyta með blómum, reykelsi og kertum og setja
síðan út á fljótin og á tjarnir, sem oft eru í görðum.
Síðan dansa þeir á eftir, borða og skemmta sér.
Stendur hátíð þessi eitt kvöld. Held ég þessum sið
með stúlkunni minni í Danmörku og hennar vin-
konum. Nota ég þá litla sundlaug, sem börnin mín
eiga. Eitt sinn þegar nágrannarnir urðu þess varir, að
ég var að fylla laugina um miðjan nóvember, tóku
þeir bara um ennið. Það var auðséð, að þeir héldu,
að ég væri eitthvað skritin að vera að fyBa sundlaug
í þessu kalsaveðri, og ekki batnaði það, þegar þeir
sáu okkur dansa í kringum laugina í hráslaganum
um kvöldið.
f iok þurrksins í apríl eru önnur hátíðahöld, sem
kallast Song Kran. Dýfir þá fólk höndunum í skálar
með vatni og dreypir þvi siðan hvert á annað. Er
þetta gert í heimahúsum.
— En svo að vi'S rœSum svolítiS um Indónesíu,
hvernig fundust þér kjör fólks á þeim tíma, sem þú
bjóst þar?
— Árin 1960—1963 voru erfið ár í Indónesíu, og
má segja, að fólkið á einhverjuin gjöfulustu eyjum
heims hafi búið við hungursneyð.
— Hverjar telur þú orsakir hinna erfiSu lífskjara
fólksins?
— Held ég, að þar megi um kenna stjórn Suk-
harnós. Upphaflega var hann mikill hugsjónamaður,
en breyttist hin síðari árin. Var honum um megn
að ráða fram úr þeim vandamálum, sem að steðjuðu.
Ef til vill má að einhverju leyti rekja rætur þessa
Frá Bali í Indónesiu. Þar ber fólk byrSar á höfðinu.
Hús í þorpi á Balí í Indónesíu.
ástands til þess, hve óviðbúnir Indónesar voru að
taka að sér stjóm Indónesíu, þegar hún öðlaðist sjálf-
stæði nokkmm árum eftir stríðslok.
— HvaS er þcr minnisstœSast úr háttum Indónesa?
— Samkvæmt kenningu Múhammeðs fasta margir
Indónesar einn mánuð á ári, og kallast sá mánuður
ramadan. Fasta þeir þá frá sólampprás tB sólarlags
og mega ekki einu sinni renna niður munnvatni sínu.
Eftir sólarlag er borðað og slegið á trumbur. Svalla
þá sumir um nætur. Strax að föstu lokinni um miðjan
vetur er hátíð í þrjá daga og þrjár nætur. Þá hittist
f jölskyldan, og allir verða að fá sér ný föt.
— Eru allir Indónesar MúhammeSstrúar?
— - Á Balí er fólk aðallega Búddhatrúar. öðmvísi
en aðrir Indónesar em þeir glaðværir, vinnusamir og
listrænir. Þar vinna aðallega konur Má sjá þær bera
byrðar á höfðinu, og verða þær tigulegar af þvi. En
karlmennirnir skemmta sér við hanaslag. Samt sem
áður taka konurnar yfirleitt þátt i trúarlegum há-
tíðum á kvöldin í musterunum eða nálægt þeim. Er
þá inikið um dans og leiklist. Þykir heiður að þvi, að
utanaðkomandi sæki þessar hátíðir, og sýna þá Balí-
búar gestum mikla kurteisi og umönnun.
— En hvernig eru indónesískar konur?
— Konur i Indónesíu em fallegar og listrænar.
Þær ganga i þjóðbúningi, en það gera thailenzkar
konur vfirleitt ekki.
— Hver er staSa kvenna í Indónesíu?
— Múhammeðstrú er ríkjandi í Indónesíu, og mega
menn þess vegna eiga fjórar konur hver. Þó er staða
kvenna miklu frjálsari í Indónesíu en í Arabalönd-
um. Geta konur í Indónesíu farið allra sinna ferða
án þess að hafa slæðu fyrir andlitinu.
—- HvaS viltu segja um störf kvenna utan veggja
heimilisins?
38
19. JÚNÍ