19. júní - 19.06.1973, Page 42
BROSTNIR HLEKKIR
Þessir félagar hafa látizt á siðasta starfsári KRFl:
Einhilrlur Tómasdóttir var fædd á Akranesi 27.
desember 1892, dáin 26. desember 1972 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Tómas Tómasson sjómaður og
kona hans Sigríður Magnúsdóttir. Einhildur ólst upp
hjá móðurforeldrum sínum að Söndum Akranesi.
Hún kemur til Reykjavíkur 17 ára gömul og fer í
vist til Ragnheiðar Bjarnadóttur frá Reykhólum,
sem þá átti og rak Silkibúðina. Þóttu slík myndar-
heimili á við góðan skóla. Síðar lærði hún matreiðslu
hjá Sigríði Sigurðardóttur Bruun, sem þá stóð fyrir
Hótel Skjaldbreið. Einhildur var félagslynd kona og
þótt aðalstarf hennar væri á heimili hennar, vann
hún árum saman mikið í Slysavarnarfélagi Islands
auk þess, sem hiin var félagi i Kvenréttindafélagi Is-
lands.
Hún var gift Jónasi Jónassyni, skólastjóra, miklum
dugnaðarmanni. Þau bjuggu allan sinn búskap í
Reykjavík. Þau eignuðust þrjú böm.
Skúli Þorsteinsson var fæddur á Stöðvarfirði 24.
desember 1906, dáinn 25. janúar 1973 í Reykjavik.
Foreldrar hans vom hjónin Guðríður Guttormsdóttir
frá Stöð í Stöðvarfirði og Þorsteinn Þorsteinsson Mýr-
mann, kaupmaður og síðar bondi á Óseyri í Stöðvar-
firði. Eftir barnaskólanám fór Skúli á lýðháskólann
að Hvitárbakka. Síðan í Kennaraskóla Islands og
tók þaðan kennarapróf. Einnig var hann á nám-
skeiðum og erlendum lýðháskólum. Hann var kenn-
ari við Austurbæjar-bamaskólann í Reykjavík. Átján
ár skólastjóri við barnaskólann á Eskifirði, síðan
nokkur ár kennari við Melaskólann í Reykjavík og
síðust.u árin námsstjóri fyrir Austurland. Hann starf-
aði mikið að félagsmálum, einkum innan ungmenna-
félagsskaparins og kennarastéttarinnar og var lengi i
forvstuliði þessara samtaka. Skúli gerðist félagi í
Kvenréttindafélagi Islanas skömmu eftir að sam-
þvkkt var á Landsfundi þess 1972, að karlmenn
hefðu rétt til að gerast félagar þess, og er hann fyrsti
og eini karlmaðurinn til þess dags, sem gerzt hefur
félagi. Hann hafði frá unga aldri sýnt jafnréttis-
baráttu kvenna mikinn áhuga. Skúli var kvæntur
hinni alkunnu kvenréttindakonu önnu Sigurðar-
dóttur, skólastjóra frá Hvitárbakka. Þau eignuðust
þrjú börn.
Steinunn Bjartmarsdóttir var fædd 10. október
1883 á Böðvarshólum, Þverái'hreppi í V.-Húnavatns-
sýslu. Dáin 22. maí 1972 i Reykjavík. Foreldrar
hennar voru hjónin Ingibjörg Guðmundsdóttir og
Bjartmar Kristjánsson bóndi á Bmnná i Saurbæ,
Dalasýslu. Hún stundaði nám við kvennaskólann
á Akurevri og tók síðar kennarapróf frá Flensborgar-
skólanum. Barnakennsla varð síðan ævistarf hennar,
fyrst á nokkrum stöðum úti á landi, en síðan við
barnaskóla í Reykjavík frá 1909—1955. Steinunn tók
mikinn þátt í félagsmálum. Hún var árum saman
áhugasamur félagi í Kvenréttindafélagi Islands og
fleiri kvennasamtökum. Hún var einnig í Barnavina-
félaginu Sumargjöf og guðspekistúkunni Septimu,
og um tíma i stjórn beggja þessara félaga.
Hún var gift Pétri Leifssyrii ljósmyndara og
bjuggu þau allan sinn búskap í Reykjavík.
Þau eignuðust tvö böm og áttu auk þess einn
kjörson.
Svanhvit Sigmundsdóttir Thorlacius var fædd í
Revkjavik 5. febrúar 1913. Dáin 9. maí 1972. For-
hennar vom hjónin Guðfinna Guðnadóttir og Sig-
mundur Thorlacius slcipstjóri. Faðirinn dó snemma
frá 6 börnum og þurftu systkinin því fljótt að fara að
vinna til að létta undir með móður sinni við að sjá
fyrir heimilinu. Svanhvit var vel greind og námfús
og tókst því rneð eljusemi að afla sér allgóðrar mennt-
unar jafnhliða vinnunni.
Hún var mikil félagshyggjukona og starfaði af
áhuga í ýmsum samtökum kvenna, en þó einkum
að málefnum Alþýðuflokksins. Hún var lengi í stjóm
Kvenfélags Alþýðuflokksins og formaður þess um
skeið, einnig í fulltrúaráði flokksins og miðstjóm.
Hún skipaði einnig nokkmm sinnum sæti á fram-
boðslistum flokksins bæði við bæjarstjómar og al-
þingiskosningar. Svanhvit var gift Finni B. Kristjáns-
syni rafvirkjameistara og bjuggu þau allan sinn bú-
skap í Reykjavík. Þau eignuðust 5 börn.
Guð blessi minningu allra þessara mætu félaga.
Guðný Helgadóítir.
40
19. JÚNÍ