19. júní - 19.06.1973, Qupperneq 46
þykkt Alþjóðavinnumálastoínunarinnar. Frá þeim tíma
var Island því skyldugt til að stuðla að því, að reglan um
jöfn laun kvenna og karla fyrir jafnverðmæt störf tæki til
alls starfsfólks. Að reglan ujn jöfn laun fyrir jafnverðmæt
störf verði lögfest.
c).Að til sé einhvers konar ráð eða dómstóll, sem ein-
staklingar og stéttarfélög geta leitað til, til að fá leið-
réttingu mála sinna í sambandi við launamisrétti milli
kynja.
3. Láglaunastörf verði metin til launa að verðleikum og með
tiJIiti til þess, hvers virði þau eru fyrir þjóðarbúið í heild.
4. Framfylgt verði tafarlaust lögum og reglum um aðbúnað,
heilbrigðis- og öryggismál á vinnustöðum.
5. Hraðað verði sem mest má afgreiðslu laga frá Alþingi um
„vinnuvemd11 og jafnframt verði framfylgt vinnuvemd
bama og unglinga skv. Bamavemdarlögunum.
6. Stuðningi lýst við fmmvarp til laga um aðstoð ríkisins við
byggingu dvalarheimila fyrir böm.
I nágrannalöndum okkar er stytting vinnutima og teygjan-
legri vinnutimi að verða að veruleika. Við teljum þetta
fyrirkomulag mjög heppilegt fyrir alla aðila, vinnuveit-
endur og launþega, konur og karla.
7. Sköpuð verði aðstaða fyrir fólk til þess að taka þátt í at-
vinnulifinu á ný, með námskeiðahaldi og öðm slíku.
8. Unnið verði að kauptryggingu fyrir allar stéttir í landinu.
9. Orlofslögunum sé framfylgt og að strangt eftirlit sé með,
að orlofsfé sé ekki gi-eitt út með launum.
10. 13. Landsfundur KRFf leggur rika áherzlu á, að vinnu-
rannsóknir séu ekki einvörðungu notaðar til að finna grand-
völl fyrir ákvæðisvinnu, heldur verði megintakmark þeirra
að stuðla að skynsamlegri vinnubrögðum í atvinulífi lands-
manna s. s. betri stjórnun og skipulagningu atvinnustarf-
seminnar, bættri verkstjóm, einfaldari og léttari vinnu,
auknu öryggi á vinnustöðum og bættum vinnuskilyrðum.
Að fengnum upplýsingum af reynslu hinna Norðurland-
anna á ákvæðislaunakerfum, hljótum við að vera vel á
verði um framkvæmd þeirra.
1. I.nga- og fundarskapnnefnd.
Breytingartillaga við 4. gr. laga KRFf. „Meðlimir félagsins
geta orðið:
a. einstaklingar, karlar og konur hvar sem er á landinu frá
16 ára aldri og liafi þeir meðmæli einhvers félags manns.
b. kvenfélög og önnur félög, sem kosið hafa 3 manna samstarfs-
nefnd til þess að vera tengiliður við KRFÍ og styðja vilja
málefni þess, t. d. með merkjasölu fyrir Menningar- og
minningarsjóð kvenna og sölu á blaði félagsins".
13. Landsfundur KRFÍ kjósi þriggja manna nefnd til að
endurskoða fundarsköp fyrir Landsfundi KRFf.
2. Allshcrjarnefnd.
„13. Landsfundar KRFf beinir þeim tilmælum til allra
aðildarfélaga, að þau beiti sér fyrir þvl I heimahémðum sínum,
að landssamtökin Landvernd hljóti allan þann stuðning, sem
unnt er að veita til að vinna að vernd á góðri og eflingu hans.
Beinir fundurinn því og til aðildarfélaga að athuga hvort
unnt væri að koma á starfshópum sem hefðu þau verkefni að
vernda og rækta sórstök svæði, sem í hættu væm fyrir upp-
blæstri og skemmdum".
„13. Landsfundur KRFI, lialdinn 19.-—22. júni 1972, hefur
kynnt sér samþykktir frá fundi norrænna kvenréttindafélaga,
sem var haldinn 7.—12. maí s.l. með styrk frá norræna menn-
ingarsjóðnum, og var samþykktunum beint til Norðurlandaráðs.
Landsfundurinn telur mjög æskilegt, að flest þeiira atriða, sem
samþykktin fjallar um, komist sem fyrst til framkvæmda, en
önnur telur fundurinn allrar athygli verð og til umhugsunar
við framtiðarskipulagningu þjóðfélagsins.
Fundurinn vill benda islenzkum stjómvöldum á, að brýnustu
atriði norrænu samþykktarinnar em þessi:
að sett verði í stjórnarskrá landsins ákvæði um jafnstöðu
milli karls og konu.
■að meginreg\an um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf verði
lögfest.
að sett verði löggjöf, sem tryggi, að öllum bömum gefist
kostur á vist á dagheimili rétt eins og í skóla“.
1. „13. Landsfundur KRFf, haldinn 19,—22. júní 1972, ákveður
að félagið haldi áíram útgáfu blaðsins 19. júní, í svipuðu
foimi og verið hefur“.
2. „Fundurinn leggur til, að endurskoðuð verði reglugerð
blaðsins 19. júní, og telur rétt, að þeirri nefnd, sem falið
verður að endurskoða þingsköpin, verði falið það verkefni".
3. „Landsfundurinn telur, að prenta beri reglugerð fyrir 19.
júní og í'eglugerð fyrir fulltmaráðið um leið og lögin verða
prentuð".
Frá starfi KRFÍ 1972—1973.
Félagsfundir hafa verið haldn;r samkvæmt því, sem lög
félagsins mrela fyrir og stjórnarfundir eftir þvi, sem tilefni
gefst.
Á fundum hafa jafnan verið flutt erindi um ýms merk mál
og farið fram umræður. Um mánaðamótin febr.-marz var
haldinn aðalfundur. Þar fór fi'am auk venjulegra aðalfundar-
starfa, kosning fulltnía á 13. Landsfund KRFf, sem haldinn
var s.l. sumar og getið er um hér i blaðinu.
Á marzfundi vom rædd skattamál og breytingar á þeim,
sem þá lágu fyrir Alþingi. Framsöguerindi flutti Auður Auðuns
alþingismaðui.
Á aprilfundi flutti doktor Þuriður Krisljánsdóttir erindi um
skólamál.
Á maifundi flutti Guðrún Jónsdóttir, formaður Arkitekta-
félags íslands erindi sem hún nefndi: Skipulag ibúðahverfa og
áhrif umhverfisins á íbúana.
í september var að venju haldinn fundur með konum úr
Reykjavik og nágrenni til að undirbúa merkjasölu Menningar-
og minningarsjóðs kvenna, sem fer fram árlega 3. laugardag í
septejnber.
Á októberfundi sagði varaformaður KRFf Ásta Bjömsdóttir
fréttir af Landsfundinum. En aðalefni þess fundar var erindi,
sem norsk kona, Tlelga Stene lektor, flutti. Hún er kennari við
kennaraháskólann i Osló. Nefndi hún erindi sitt: Konur og
saga (Kvinder og historie).
,Nóvemberfundui-inn var að venju á vegum ungra félags-
kvenna (tJa). Einnig tóku þátt í þessum fundi konur úr
Rauösokkahreyfingunni. Þama var einkuin til umræðu fmm-
varp, sem lá fyrir alþingi, um hlutdeild rikisins um stofnun
og rekstur dagvistunarheimila fyrir böm. Samkvæmt samþykkt
þessa fundar var kosin nefnd skipuð konum bæði úr KRFl og
Rauðsokkahrcyfingunni. Var verkefni hennar að gangast fyrir
undirskriftasöfnun, þar sem skorað er á alþingi að samþykkja
44
19. JÚNÍ