19. júní - 19.06.1984, Side 24
gagnvart konum þeir, aðþœrséu síður til
þess fallnar að nema tölvunarfræði á
háskólastigi?
„Nei það er þá helst stærðfræðin. En
stærðfræðin reynist körlum ekki síður
þrándur í götu. Háskóli íslands býður
líka upp á nám í gagnavinnslu í við-
skiptadeild. Þar er lögð minni áhersla á
stærðfræði en í staðinn á fjármálafög.
Það er auðveldara að fara í tölvunar-
fræðinám eða gagnavinnslunám eftir
náttúrusvið eða eðlisfræðisvið í
menntaskóla.“
Stúlkur gefa piltum ekkert eftir
- Hafa viðhorfin breyst gagnvart tölvu-
vinnslu eða námi á undanförnum 8-10
árum?
„Já, viðhorfin hafa breyst. Ungt fólk
um tvítugt er mun opnara fyrir þessu
námi en var, stúlkur ekki síður en
piltar, þ.e.a.s. stúlkur gefa piltum ekk-
ert eftir í þessu námi að mínu mati.“
- Hvenær er heppilegt að byrja að
kenna á tölvur ískólum?
„Æskilegt er að fólk sem ætlar sér að
vinna við tölvur byrji sem fyrst. Þeir,
sem byrja nógu snemma, eiga líklega
eftir að ná lengst."
- Er ekki ákveðin hœtta í sambandi við
tölvukennslu; að hún komi niður á ís-
lenskukunnáttu til að byrja með og leiði
til lélegri kunnáttu í íslensku?
„Jú, en það verður ekki hjá því komist
að hafa kennsluefnið á íslensku þegar
farið verður að nota tölvur almennt í
kennslu."
- Verður tölvutæknin ekki þess vald-
andi að atvinnutœkifœrum fœkkar?
„Jú, Japanir t.d. segja, að eftir 1990
verði ekki lykilborð með tölvunni eins
og nú er, heldur verið einungis talað við
tölvuna. I framhaldi af þessu verður að
huga að því að fjölga atvinnutækifærum
í öðrum greinum. A hinn bóginn ein-
faldar tölvan verksvið ritara, svo dæmi
sé tekið. Það er fljótlegra að vinna
verkefnið og hægt er að leiðrétta áður
en prentað er. Þannig verður starfið
ekki eins lýjandi og það hefur verið.“
- Eitthvað sem þú vilt takafram að lok-
um?
„Konur eru margar hverjar góðir
stjórnendur á sínum heimilum. Að
mínu mati er það álíka erfitt að stjórna
heimili svo vel fari, eins og að hafa á
hendi stjórnun í fyrirtæki. í báðum til-
fellum þarf að skipuleggja hlutina mjög
vel. Við stjórnun fyrirtækja nota menn
ýmis hjálpartæki, eins og t.d. CPM-rit.
En húsmóðirin þarf að hafa þetta allt
saman í kollinum. Þegar þessar konur
síðan leita út á vinnumarkaðinn gleyma
menn oft þessum stjórnunarhæfi-
leikum, ekki síst konurnar sjálfar. Þær
gera sér oft ekki grein fyrir að þær búi
yfir þessum hæfileikum. Þetta er hins-
vegar atriði sem vinnuveitendur þurfa
að gera sér ljóst og hagnýta sér. Það er:
Hafa meiri trú á konum og ráða þær í
vinnu, þótt þær hafi verið við barna-
uppeldi og heimilisstörf um nokkurra
ára eða áratuga skeið á meðan eigin-
menn - feður eru á framabraut."