19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 34
Æskilegt að nýjungar þróist í skólunum
— segir Sólrún Jensdóttir skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu
SI. haust skipaði Ragnhildur Helga-
dóttir menntamálaráðherra Sólrúnu
Jensdóttur sagnfræðing aðstoðarmann
sinn. 1 kjölfar skipulagsbreytinga í
ráðuneytinu fyrr á þessu ári var Sólrún
Tvær konur gegna nú störfum
aðstoðarmanns ráðherra, Þær
Helga Jónsdóttir og Inga Jóna
Þórðardóttir, en sú síðarnefnda
tók fyrir skömmu við starfi Sól-
rúnar Jensdóttur. Aður höfðu
aðeins tvær konur gegnt starfi
aðstoðarmanns ráðherra, þær
Adda Bára Sigfúsdóttir, sem var
Magnúsi Kjartanssyni heilbrigð-
isráðherra til aðstoðar og Stein-
unn Finnbogadóttir, en hún var
aðstoðarmaður Hannibals Vald-
imarssonar félagsmálaráðherra,
sem báðir voru í ráðuneyti Olafs
Jóhannessonar á árunum 1971-
1974.
síðan skipuð skrifstofustjóri, en við
starfi aðstoðarmanns ráðherra tók
nokkru síðar Inga Jóna Þórðardóttir.
A skömmum tíma hafa því þrjár konur
komist til mikilla áhrifa við æðstu stjórn
menntamála, sem hingað til hefur verið
í höndum karla að mestu leyti.
Erindi blaðamanns 19. JÚNÍ í mennta-
málaráðuneytið fyrir skömmu var að
spjalla við Sólrúnu Jensdóttur. Hún
starfaði lengi við blaðamennsku, en hóf
síðan nám í sagnfræði og lauk magi-
stersprófi frá Lundúnaháskóla. Undan-
farin ár hefur hún kennt sagnfræði við
framhaldsskóla og Háskóla íslands.
Hún er gift Þórði Harðarsyni prófessor
og eiga þau þrjú börn, 18, 6 og 2ja ára.
Sólrún var fyrst að því spurð í hverju
starfi hennar sem aðstoðarmaður
menntamálaráðherra hefði verið fólgið
og þvínæst hvert starfssvið hennar væri
núna.
Menning af öllu tagi
„Á mínum skamma ferli sem að-
KVENFATABUÐIN
ÚRVAL AF DAG- OG KVÖLD-
KJÓLUM
Sumarkjólar, pils og blússur st. 38-60.
Fatnaður í yfirstærðum ávallt í úrvali.
Litmyndalisti
Póstsendum
KVENFATABÚÐIN
LAUGAVEGI 2 101 REYKJAVÍK
S:12123
stoðarmaður Ragnhildar Helgadóttur
menntamálaráðherra var starf mitt
einkum fólgið í því að kynna mér mál,
sem ráðherra fól mér og ræða við fólk,
sem átti við hana erindi, því að starf
hennar er mjög erilssamt og oft erfitt að
ná sambandi við hana. Undir mennta-
málaráðuneytið heyra mörg málefni og
margvísleg, en þau eiga það sammerkt
að flokkast undir menningu af ein-
hverju tagi. Hér er t.d. fjallað um nátt-
úruvernd, dagvistarmál, skólamál og
öll svið lista, - sem sagt mjög fjöl-
breyttan vettvang, sem erfitt er að fá
yfirsýn yfir á skömmum tíma. Með
skipulagsbreytingunum, sem nú hafa
verið gerðar hefur ráðuneytinu verið
skipt niður í þrjár skrifstofur. Ein
þeirra annast fjármál, önnur skólamál
að háskólastigi og sú þriðja sér um
menningarmál, en undir hana heyrir
einnig Háskólinn. Raunar fjalla allar
skrifstofurnar um skólamál, en mest
þó skólamálaskrifstofan, sem ég veiti
forstöðu. Undir hana heyrir einkum hinn
faglegi þáttur í yfirstjórn grunnskóla og
framhaldsskóla, starfsmannahald,
eftirlit og fleira. En að sjálfsögðu er lítil
reynsla komin á hina nýju skipan mála,
því að stutt er síðan hún kom til fram-
kvæmda."
Mikið frjálsræði í skólum
„Lögum samkvæmt ber menntamála-
ráðuneytinu skylda til að fylgjast með
því, að öll skólaskyld börn í landinu fái
menntun í samræmi við grunnskóla-
lögin frá 1974. Aðalnámsskrá grunn-
skóla og fagnámsskrárnar eru stefnu-
markandi um, hvað kennt skuli, en
innan þeirra marka er mikið frjálsræði,
t.d. hvað varðar kennslufyrirkomulag.
Hér starfa hlið við hlið grunnskólar
með hefðbundið bekkjarkerfi, skólar
sem hafa tekið upp sveigjanlegt starf og
brotið upp hefðbundin form og í þriðja
lagi svokallaðir opnir skólar. Það
fylgir starfi okkar í ráðuneytinu að hafa
auga með því sem verið er að gera og
margt af því finnst mér ákaflega spenn-
andi. Sums staðar eru verkefni barn-
34