19. júní - 19.06.1984, Side 42
Ada Ágústa
— fyrsti forritarinn
Einhvers staðar heyrðist því fleygt, að fyrsti forritarinn hefði
verð kona. Einhver Ada Lovelace. Ku hafa verið dóttir Byrons og
aðstoðarmaður Charles Babbage - mikið ef hún var bara ekki ást-
kona hans líka! Annað var ekki um hana vitað. Að því er virtist.
Hvað konum er gjarnt að hverfa
niður á milli spjalda sögunnar.
Stundum fá þær að sitja prúðar á milli
línanna á brydduðum brúðarskónum;
eiginkonur stórmennanna. Eða í
minnsta lagi sem dætur stórmenna eins
og Ada og þá ekki einu sinni á milli lín-
anna heldur si svona rétt utan við ystu
mörk spássíunnar. Samt þarf oft svo
fjarska lítið til að komast á afrekaskrá
sagnfræðinnar: er ekki fyrsti maðurinn
til að fljúga í loftbelg fastur stafur í
kennslubók? Hvað þá um fyrsta forrit-
arann, verður hann færður til bókar
þegar þar að kemur að segja börnunum
frá fyrstu sporunum á þessari tækni-
braut, sem nú liggur framundan?
En bíðum við. Eftir nokkurt krafs og
klór kom upp úr kafinu norrænt tölvu-
tímarit með engri annarri en Ödu þess-
ari Lovelace á forsíðunni og grein inni
fyrir. Málum reyndist svo háttað, að
bandaríska varnaramálaráðuneytið lét
á árunum 1974-1983 hanna nýtt forrit-
unarmál, sem talið er eiga eftir að skipa
sama sess og Fortran og Cobol gera
núna. Og það er engin önnur en Ada,
sem nýja málið er heitið eftir. Þetta
þafnaðist skýringa, sem tímaritið lét í
té.
Stærðfræði í stað útsaums
Ada Agústa var dóttir enska skálds-
ins Byrons lávarðar og eiginkonu hans,
Annabellu. Þau slitu samvistum aðeins
einum mánuði eftir fæðingu Ödu og
hún ólst upp í móðurhúsum án þess að
líta föðurinn augum það sem eftir var
ævinnar. Móðurhúsin tilheyrðu enskri
yfirstétt og góðum efnum. Svo er að
heyra sem Annabella hafi látið sér annt
um menntun dótturinnar og var það
harla óvenjulegt á þessum tímum, en
Ada mun fædd um 1816. t>á voru allar
æðri menntastofnanir lokaðar konum í
Englandi og skólun yfirstéttarstúlkna
fólst einkum í að kenna þeim fallega
42