19. júní - 19.06.1984, Síða 44
Ragnhildur með „Stóran fugl í búri“.
wm- j. i V, * , t B'v / M
JBj K - Jyll
. %
■HrV < 2JH Hk , •’ kS
Ekki er það síður tilhiökkunarefni
þegar við bætist liðsauki í hina fámennu
stétt íslenskra myndhöggvara, en í
hana var stórt skarð höggvið, þegar
myndhöggvararnir Ásmundur Sveins-
son og Sigurjón Ólafsson hurfu burt af
sjónarsviðinu.
I byrjun aprílmánaðar dró ungur
listamaður saman í sína fyrstu einka-
sýningu að Kjarvalsstöðum. Þetta er
Ragnhildur Stefánsdóttir mynd-
höggvari sem á að baki ágæta menntun
í sinni grein. Ragnhildur sýndi 25 verk,
öll unnin í leir. Óhætt er að segja að
sýning Ragnhildar vakti verðskuldaða
athygli og þykir ljóst að þar er á ferðinni
óvenju hæfileikamikill og duglegur lista-
maður. Einn gagnrýnandinn lét jafn-
vel hafa það eftir sér, að hann hefði
ekki átt von á því að slíkur frumkraftur
kæmi frá kvenþjóðinni. Það er rétt að
ekki hafa margar íslenskar konur lagt
fyrir sig þessa listgrein og reyndar ekki
karlmenn heldur. Þó hafa á síðustu
árum bæst í hópinn ungir og efnilegir
myndhöggvarar, a.m.k. þrjár konur.
Alltaf ætlað í myndlist
- Hvenœr og hvernig vaknaði áhugi
þinn á myndlist?
„Ég hef alltaf haft gaman af að
teikna. í barnaskóla var ég síteiknandi,
ég teiknaði ósköp líkt og önnur börn en
var kannski dálítið flinkari. Ég man að
Ég vildi vinna með
form manneskjunnar
- segir Ragnhildur Stefánsdóttir myndhöggvari
l>að er ætíð tilhlökkunarefni þegar það fréttist í bænum að ungur lista-
maður sé að búa sig undir að koma opinberlega fram með hugverk sitt.
Eflaust þarf mikið hugrekki til að afhjúpa umbúöalaust, það sem lista-
maðurinn hefur átt einn með sjálfum sér, bera á borð fyrir aðra dýpstu hugs-
anir og langa baráttu við viðfangsefnið.
ég þurfti alltaf að teikna fyrir vinkon-
urnar og fyrir jólin féll það í minn hlut
að skreyta kennslustofuna. En heima
var ég líka örvuð. Mamma, Lára Sam-
úelsdóttir, hefur alltaf haft mikinn
44