19. júní


19. júní - 19.06.1984, Side 47

19. júní - 19.06.1984, Side 47
Úr æui og starfi íslenskra kuenna Eins og lesendum 19. JÚNÍ mun flestum vera kunnugt, var Björg Einars- dóttir með vikuleg erindi s.l. vetur í útvarpinu um ævi og störf íslenskra kvenna. Aðföng efnis voru aðallega úr blöðum, tímaritum og við- tölum, sem Björg bjó síðan til flutnings og las sjálf. Frá miðjum september til loka apríl hefur hún flutt 31 þátt og fjallað þar mcira eða minna um 40 konur. 1 ráði er að Björg hefji erindaflutn- inginn aftur 1. september og þá um þriggja mánaða skcið. Útvarpserindin hafa vakið verðskuldaða athygli og til tals komið að gef þau fljót- lega út. Blaðamaður 19. JÚNÍ innti Björgu eftir, hvernig að útgáfunni verði staðið og leitað upplýsinga um efnið. „Tilgangur minn með þessum þáttum var að gera mitt til að varpa ljósi á, að ís- lenskar konur eiga sér sögu, þó svo að hin almenna sögu- ritun beri þess lítinn vott,“ sagði Björg. „Við val á konum til frásagnar hefi ég leitast við að taka jöfnum höndum þekktar konur og hinar sem lítt eru þekktar, en voru uppi á þeim tíma að þær gætu verið mæður, ömntur og langömmur núlifandi fólks. Af viðbrögðum sem ég hefi fengið við erindunum marka ég að jarðvegur sé fyrir efni af þessu tagi. Ekki linnir óskurn frá hlustendum um að fá handritin að láni til að fræðast um formæður sínar eða af öðrunt ástæðum. Að athuguðu máli og eftir áskoranir í þá veru, fannst mér einfaldara að gefa erindin sem slík út í bók. Öllum er þá gert jafnhátt undir höfði.“ Varðandi útgáfuna, sagði Björg, að starfshópur fimm kvenna sem hún á aðild að mundi í fyrstu kanna, hvort grundvöllur væri fyrir slíkri útgáfu m.a. með því að taka við áskriftum og sjá um framkvæmdina og reyndist áhugi nægur. Aðspurð sagði Björg að tilkynna mætti á- skrift í síma 75694 eða 16121, eða póstleggja til sín að Einarsnesi 4, 101 Reykja- vík. Ennfremur kom fram að loforð eru um töluverðan fjölda mynda frá aðstand- endum kvennanna, ef af útgáfu bókarinnar verður. Kokkhúskviða Ó hugljúfa kokkhús. Hve skark þitt lætur vel í eyra. Skrölt í pottum og pönnum, göfflum og skeiðum, sleifum og þvörum, bollum og glösum, sem brotna. Hljómkviða þín er endalaust viðlag tómleikans. Og þarna er kastarholan. Botninn í henni er kolsvartur. Það var þurraseyðsla á kartöflunum. Ég gleymdi mér við krossgátuna í blaðinu danska. Skyldi ég geta hreinsað pottinn með stálull. Vænn var ráðherrann, sem lækkaði skattinn á stálullinni. Ó eldhúsmolla hvað þú ert mjúk og hlý. Þú ert eins og blautt brauðdeig, sem hefast ekki, af þvi lyftiduftið vantar. En gott er fyrst handstyrkurinn erfarinn, að plastið skuli vera komið til að breiða yfir brothætt elliglöpin. Valborg. SMÁAUGLÝSINGAÞJOIMUSTA VID GETUM LETT t»ER SPOR1N OG AUDVEIDAD t>ÉR FYRIRHÖFN • Afsöl og sölutilkynningar bifreiða • Húsaleigusamningar (löggiltir) • Tekið á móti skriflegum tilboðum Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá um að svarafyrir þig símanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur síðanfarið yfir þær í góðu tómi virka daga kl. 9—22 OPIÐ: Iaugardaga9—14 sunnudaga kl. 18—22 Tekið er á móti myndasmáauglýsingum og þjónustuauglýsingum virka daga kl. 9 — 17. SÍMINN ER 27022. ATHUGIÐ Ef smáauglýsing á að birtast í helgarblaði þarf hún að hafa borist fyrir kl. 17 föstudaga. SMÁAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLT111, SÍMI 27022.

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.