19. júní


19. júní - 19.06.1984, Page 51

19. júní - 19.06.1984, Page 51
Jafnréttið og samskipti kynjanna „Þau 12 ár sem ég hef verið prestur í þéttbýlinu hefur orðið gjörbreyting á hvað fólk leitar meira til prestsins út af margs konar sambúðarvanda. Pað er ekki lengur álitin niðurlæging að tala við sérfræðinga. Sálfræðingar og geð- læknar taka fólk til viðtals.“ - Hver er ástæðan fyrir auknum hjóna- skilnuðum? „Ástæðurnar eru að sjálfsögðu margar. Konan er á vinnustað við hlið karla og þeir eru ef til vill fúsari að hlusta á vandkvæði hennar en eigin- maðurinn sjálfur. Hún fær hrós fyrir störf sín og finnur að þau eru metin. Hún er veikari fyrir ef brestir eru í hjónabandinu. Stærsta vandamálið hjá báðum kynjum er óhófleg áfengis- neysla og að fólki finnst það vera niður- lægt. Fólk vill opna hug sinn fyrir presti og í vaxandi mæli kemur fólk ekki ein- göngu til að skilja - hjónabandið er oft- 'ast sem betur fer ekki alveg komið á síðasta snúning - en viðkomandi getur ekki sætt sig við ástandið og vill fá aðstoð til að breyta því. Stundum er annar aðilinn of upptekinn af vinnu eða tómstundaiðju. Hann eyðir tíma og fjármunum án tillits til maka og barna. Miklar fjarvistir frá heimilinu hafa slæm áhrif á fjölskyldulífið.“ - Er það rétt að flestir skilnaðir verði eftir jól eða sumarfrí? „Ég held að ástæðan sé sú að fólk bíði með að skilja þar til eftir frí eða jól. Jólin eru hátíð tengd tilfinningum fólks og gangi sambúð fjölskyldu ekki áfalla- lítið í fríi eða ef illa gengur á jólum, hvenær á þá að ganga vel? Ef þetta gengur ekki þá telur fólk e.t.v. sambúð- ina alveg vonlausa.“ - Á hvaða aldrei erfólkið sem kemur til þín vegna hjúskaparerfiðleika? „Unga fólkið kemur yfirleitt ekki fyrr en eftir 5 ára sambúð eða giftingu til að ræða skilnað. S.l. ár hefur 35-40 ára aldurinn verið algengasti skilnaðar- aldurinn. Fólk hefur enn von um að ná góðu ástar- eða tilfinningasambandi við aðra. Um fimmtugt er svo önnur bylgja - börnin eru farin, hjónin þarfnast hvors annars meira, en þau eiga lítið sameigin legt - þau hafa e.t.v. haldið heimilinu saman vegna ástar á börnunum. Hjón á þessum aldri skilja oft í góðu sam- komulagi og eru vel stödd fjárhagslega. Konur með börn fara verst út úr skiln- aðinum. Fólk gerir sér ekki alveg grein fyrir því hvað tekur við. Einstætt for- eldri verður að takast á við alvarlegar hegðunarbreytingar hjá börnunum eftir skilnað. Það þyrfti að breyta lögunum um skilnað að borði og sæng, sem er eins árs tímabil, þannig að það væri skylda að tala við sáttaaðila (sem ávallt er prestur) á miðju tímabilinu. Fólk er þá farið að skoða hug sinn í jafnvægi, en hvorugur aðili vill eða treystir sér til að stíga fyrsta skrefið til sátta. Ég hef heimsótt fólk sem skilið hefur verið að borði og sæng í hálft ár og hefur verið þakklátt og hefur jafnvel tekið saman aftur. Ég er ekki vinsæll skilnaðarprestur. Ég hef þann skilning á sáttum að fara eigi fram 3 viðtöl a.m.k., einstaklings- viðtöl með hvoru hjóna fyrir sig og síðan viðtal við þau bæði saman. Yfir- leitt hvet ég fólk til áframhaldandi sam- búðar, en reyni að benda því á hvað það geti gert öðruvísi." Giftingarundirbúningur - Af hverju fara svo margir fljótt í nýja sambúð? „Það er stutt í huggarana og ein- semdin er yfirþyrmandi. Geðfræðin segir að tvisvar á ævinni komist maður alvarlega úr tilfinningalegu jafnvægi, í tilhugalífinu og við skilnað. Sumir virð- ast ekki vera færir um að vera í hjóna- bandi en eru alltaf að leita að tilfinn- ingalegri hlýju sem geti fullnægt þeim. Þegar ég undirbý hjón fyrir giftingu tala ég um hjónabandið sem lög- gerning, skyldur sem þjóðfélagið leggur hjónum á herðar og réttindi sem það gefur. í augum kirkjunnar er hjónabandið heilög stofnun þar sem tveimur einstaklingum er gert fært að rækta hinn óeigingjarna kærleika. Hópur sérfræðinga vinnur nú á vegum kirkjufræðslunefndar að gerð bæklings sem nota á við giftingar- undirbúning. í athugun er að bjóða upp á fyrirlestra sérfræðinga um skyldur hjúskapar, ræktun hjónaástar, upp- eldisvandamál o.fl. Algengt er að ungt fólk hafi ranga lífssýn. Það telur að hið eðlilega líf hljóti að vera sífelld hamingja, gleði og eignaaukning og að kúrfa lífsham- ingjunnar eigi alltaf að vera upp á við. Þetta er andstætt eðli sköpunarinnar vegna þess að lífið er barátta. Fjöldskyldan í dag er í nokkurs konar upplausn. Foreldrarnir eru úti- vinnandi og ná ekki að mynda nægileg tilfinningatengsl við hvort annað og börn sín. Ég vona að þessi mál verði leyst með gjörbreytingu á vinnulöggjöf- inni, að komið verði á sveigjanlegum vinnutíma og fólk geti unnið hlutastörf, svo hjón geti unnið úti og heima og börnin geti verið meira heima við. Ég er sannfærður um að um næstu aldamót verður litið á dagvistarheimili sem eins konar fangelsi. I öllum hjónaböndum eiga þarfir barnsins að sitja í fyrirrúmi. Sá skaði sem börn verða fyrir verður aldrei bættur. Afkomendurnir eru hinn áþreifanlegi ávöxtur lífs okkar. Ætti að banna að taka barnið um helgar Ég vil nefna vandamál sem kemur upp við skilnað. Það er að sá aðilinn, sem ekki hefur barnið, tekur það til sín um helgar. Þetta tel ég að eigi að banna. Sá aðili sem hefur forræði barnsins situr þá einn eftir heima - í 90% tilfellum er það móðirin. Menn ættu frekar að taka sér frí í miðri viku til að umgangast barnið. Barnið þarfnast tilfinningahlýju móðurinnar, sem vinnur alla daga, yfir- leitt láglaunastörf, og er þreytt á kvöldin. Helgarnar eru þá eini tíminn sem móðirin hefur óskiptan fyrir barnið. Hún ber hitann og þungann af uppeldi barnsins. Það er verulega óréttlátt að hún fái ekki tækifæri til að rækta sambandið við barnið sitt 'um helgar. Þess í stað fer það að hitta föður sinn sem í flestum tilfellum er mun betur stæður fjárhagslega og getur gefið barn- inu ýmislegt sem kostar peninga. Kannski er hann kominn með nýja konu og börn og getur boðið barninu upp á ýmislegt sem móðir getur ekki og samanburðurinn verður óhagstæður og getur skapað verulega beiskju og van- metakennd hjá þeim aðila sem hefur forræði barnsins.“ 51

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.