19. júní - 19.06.1984, Page 60
Jafnréttið og samskipti kynjanna
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi:
t\onur hafa ekkert minni möguleika að læknast
af áfengissýki en karlar
Ég hringdi í Þórarin Tyrfings-
son, yfiriækni á Vogi, og skelli á
hann spurningunni: „Telur þú að
jafnréttisumrœðan hafi haft áhrif á
samskipti kynjanna?
„Nú það var aldeilis" segir Þórar-
inn og hlær. „Hvers vegna spyrðu
mig bara ekki um áhrif frönsku
stjórnarbyltingarinnar?“ En eftir
nokkra umhugsun segir hann:
„Mörgum konum finnst lítið gert úr
kvennastörfum og sjálfsvirðing
þeirra verður oft lág. Þær hafa verið
heima að ala upp börnin og hugsa
um karlinn og allt í einu finnst þeim
þetta allt harla lítils metið. Það
hefur verkað illa á konur sem áður
spekúleruðu lítið í þessum málum,
að lítið hefur verið gert úr kvenna-
störfunum. Konur með áberandi
lágt sjálfsmat þeysast nú í öld-
ungadeildir og skóla út um allan bæ.
Uppeldisþátturinn er orðinn
minni í lífi kvenna og við karlarnir
höfum ekki bætt honum á okkur
nema síður sé. Okkur finnst við
ekkert kunna á þetta.“
í Danmörku, Noregi og Svíþjóðvirð-
ist vændi hafa aukist mjög mikið, en
miklu minna hefur verið um það í Finn-
landi og á Islandi.
Skemmtanir og skemmtistaðir eru
líka með öðrum hætti á íslandi og í
Finnlandi. í báðum löndunum eru
mörg opin veitingahús þar sem almenn-
ingur getur komið og stofnað til kynna.
í Helsingfors eru sum danshúsanna
opin að degi til. Þetta fyrirkomulag
býður upp á meira ókeypis kynlíf - eða
kannski væri réttara að segja kynlíf á
j afnréttisgrundvelli. “
- Hafa drykkjuvenjur breyst?
„Drykkjuvenjur fóru verulega að
breytast á áttunda áratugnum og áfeng-
isneysla kvenna hefur aukist á síðustu
árum. Algengt er að konur neyti áfeng-
is en flestar konur drekka afskaplega
-
Þórarinn Tyrfingsson.
(Ljósmynd Gel).
- Leita margir til ykkar?
„Við áætlum að síðan SÁÁ hóf
starfsemi sína árið 1977 hafi um
fjögur þúsund manns leitað til okkar
vegna áfengissýki, þar af um eitt
þúsund konur eða tæpur fjórð-
ungur.“
lítið. Þorri unglinga byrjar að smakka
áfengi 14-15 ár og stelpur byrja að
drekka á sama aldri og strákar, en
drekka mun minna.“
- Hvernig geta konur varist ofbeldi og
óréttlœti?
„Til að koma í veg fyrir að konur þoli
ofbeldi og óréttlæti þarf öfluga kvenna-
baráttu. Reynslan sýnir að allar félags-
legar hreyfingar þurfa að byrja á því að
efla vitund sinna eigin félaga. Það er
því von mín að eldri konurnar í kvenna-
hreyfingunni nái að miðla reynslu og
styrk til yngstu kvennanna. En þjóð-
félagsþróunin bendir til þess að þeirra
kjör fari versnandi. Þegar störfum
fækkar verða konur sendar heim, sem
getur leitt til þess að einkum yngri
konur komist aldrei út á vinnumarkað-
inn.“
- A hvaða aldri eru þessar konur?
„Flestar konurnar sem leita til
okkar eru ýmist kornungar, á aldr-
inum 18-23 ára, með lélega félags-
lega stöðu eða bakgrunn. Síðan
vantar nánast aldurshópinn 24—40
ára. Aftur á móti koma hingað
konur á aldrinum 40-50 ára sem eru
þá margar mjög illa farnar.“
- Afhverju drekkur fólk?
„Fólk byrjar að drekka til að taka
betur þátt í lífinu, en síðan verður
þetta sjúkdómur hjá sumum. Kvíði
er meira áberandi hjá konum. Þær
kvíða jafnvel fyrir daglegum
störfum. Það er eins og karlmenn
eigi betra með að hrista af sér
kvíðann.“
- Pola konur áfengi verr en karlar?
„Konur þola drykkju andskoti vel
líka, en eftir fertugt verður þróunin
oft hraðari. Þær verða sjúklingar
jafnvel á tveimur árum.“
- Hverjir hafa mesta möguleika á
lœkningu?
„Við teljum að minnsta kosti
þriðji hver sjúklingur, scm til okkar
leitar, fái góðan bata. Karlar sem
leita sér lækninga um þrítugsaldur
standa sig best og hafa mesta mögu-
leika, en ég held að konur hafi ekk-
ert minni möguleika að læknast af
áfengissýki en karlar. Þeir sem
kikna fyrst og koma fyrst inn á
stofnun eru yfirleitt ekki í hjóna-
bandi né eiga traust heimili sem
bakgrunn. Sá sem má sín meira
kemur seinna."
- Er áfengssýkin andlegur eða lík-
amlegur sjúkdómur?
„Áfengissýkin er tvímælalaust
margþættur sjúkdómur og einn
meginþátturinn er líkamlegur.
Áfengissjúkir bregðast öðruvísi við
áfengi en aðrir. Annars vitum við
ekki fyllilega hver lyfjaáhrif áfengis
eru á heilann.“
60