19. júní


19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 62

19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 62
„Mér sýnist ekkert áhorfsmál að almenn viðhorf hafi breyst svo síðan um 1970, að samskipti kynjanna hljóti að njóta góðs af. Lífsháttum fólks og sam- skiptum eru ekki settar nærri eins þröngar skorður nú og þá var. Eg þakka kvennabaráttunni mikinn hlut í þessari framför, því að engu fer nokkurn tíma fram nema að því sé unnið, og því verða þeir að sinna sem eiga hlut að máli. Konur hafa vissulega átt margt að sækja svo að jafnrétti kæmist á, og eiga vitanlega enn,“ segir Guðni. „Við í Samtökunum ’78 teljum, held ég flest, að barátta okkar lesbía og homma sé hliðstæða kvennabarátt- Jafnréttið og samskipti kynjanna Guðni Baldursson. minnst varir. Homma- og kvenfyrir- litning renna saman í eitt þegar orðið „kvenlegur“ er haft um homma, ekki í merkingunni að hann búi yfir góðum eiginleika kvenna, heldur þeirri að hann sé hallærislegur, afkáralegur. - Að ég nefni ekki lesbíufyrirlitningu kemur ekki til af góðu: í vitund fjöl- margra eru hommar einu fulltrúar sam- kynhneigðar, konur hafa ekki sjálf- stæða kynhneigð! Lesbíur vekja engin viðbrögð, núll plús núll eru núll. Ástir milli karlmanna hins vegar, þær geta skipt sköpum um það hvort þjóðfélagið stendur eða fellur!“ Önnur ástæðan er andstaðan gegn Guðni Baldursson, formaður Samtakanna '78: Konur standa ekki jafnfætiskörlum, ekki heldur í félagi okkar unnar, svo og baráttu litra manna, verklýðsins o.s.frv., að hér sé um að ræða mismunandi hliðar á sama málinu - sem er frelsi einstaklingsins, frelsi til samskipta við aðrar manneskjur á jafn- réttisgrundvelli. Fyrir því þarf sannar- lega baráttu, báráttu innávið og baráttu útávið. Ég er viss um að kvennabaráttu- konur þekktu sjálfar sig, eins og við í Samtökunum ’78 gerðum, þegar Jó- hanna Egilsdóttir sagði frá því, að í upphafi verkakvennabaráttunnar hafi vandinn verið að fá konurnar til þess að trúa því að þær ættu rétt að sækja og að þær gætu náð honum. Engum sem er ófrjáls af sjálfum sér nýtist það þótt aðrir vilji gefa honum frelsi. Jafnrétti nær aldrei milli tveggja ef annar unir því að vera án þess. Það er ljóst að enn standa konur ekki jafnfætis körlum, ekki heldur í félagi okkar. Konur eru um fjórðungur félagsmanna, sem eru reyndar ekki nema um 40, þó að nokkurhundruð manna hópur eigi meiri og minni hlut í ýmsum þáttum starfseminnar. Við karl- arnir höfum verið aldir upp til þess að gera kröfur, líka kröfur um að fá að lifa því ástalífi sem á við okkur og að velja okkur elskhuga sjálfir. - Mér finnst óhætt að segja að við karlmennirnir í Samtökunum ’78 séum flestir meðvit- a<Mr um raunverulega stöðu kvenna 1984, líka innan félagsins. Þess vegna held ég að ekki ætti að þurfa að koma til þess klofnings, sem hefur orðið t.d. í rómönsku löndunum við það að lesbíur sneru margar baki við félögum lesbía og homma og ákváðu að vinna að fram- gangi mála sinna eingöngu innan kvennahreyfingarinnar. Hins vegar finnst mér að það mætti bera meira á lesbíum og sjónarmiðum þeirra í, íslensku kvennahreyfingunni, á því sviði stöndum við aftar en flestar þjóðir er við berum okkur saman við. Jafnréttisbarátta okkar fór miklu síðar af stað en jafnréttisbarátta kvenna. Jafnvel urðum við lesbíur og hommar á íslandi 30 árum seinni til en Norðurlandabúar að stofna með okkur hagsmunafélag. Samt sem áður ein- setjum við okkur að ná þeim árangri að eftir fimm ár stöndum við jafnfætis Norðurlandaþjóðunum, en þar eru að sjálfsögðu margar hindranir í veginum. Ég nefni hér þrjár þær helstu, því að ég þykist vita að þær komi kunnuglega fyrir úr kvennabaráttunni. Fyrsta ástæðan er rótgróin homma- fyrirlitning, systir kvenfyrirlitningar- innar. Hún birtist oft svo fínlega að flestir leyfa sér að trúa því að þeir séu lausir við hana, en opinberast oft þegar því að við skýrgreinum okkur sjálf. Ég nefni hér hvernig valdaaðilar beita stöðu sinni til þess að hamla gegn því að lesbíur og hommar landsins öðlist þá tilfinningu að þau séu frjálsr mann- eskjur: Ríkisútvarpið meinar að upp- lýsingum sé komið á framfæri við les- bíur og homma í tilkynningalestri, orðanefnd KHÍ leggur til að við verðum framvegis kennd við umsnúning! Kvennabaráttukonur vitað að orða- forðinn markar hugsuninni farveg, og að lítill fengur og verri en enginn er að .skrautyrðum uppfundnum til þess að breiða yfir illa afstöðu. Þriðja ástæðan er sinnuleysi ís- lenskra stjórnmálamanna um póitík. Ýmsum atriðum jafnréttismála verður að ná fram með atbeina löggjafans, vegna lagafyrirmælanna sjálfra og vegna þess fordæmis um almenna afstöðu, sem felst í lagasetningu. Konur reka sig á vegg vegna kynferðis síns þegar þær vilja sækja fram, t.d. í stjórnmálaflokkunum. Þá taka þær sig til og bjóða fram sjálfar. Það er krökkt af hommum í flokkunum, meinið er að þeir eru svotil allir í felum. Framboð felu- og laumuhomma held ég að félli um sjálft sig! Öll jafnréttisbarátta á eftir að verða okkur öllum til góðs.“ 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.