19. júní - 19.06.1984, Page 70
Frá fundi Framkvæmdanefndar 21. janúar 1984.
Á fundinum var gerð grein fyrir
stöðu kvenna á vinnumarkaðinum
og 6 málshefjendur ræddu spurn-
ingar sem nefndin hafði lagt fyrir
fundinn. í lok fundarins var eftir-
farandi tillaga samþykkt:
„Fundur Framkvæmdanefndar
um launamál kvenna með konum
í samninganefndum stéttarfélaga
innan BSRB, ASÍ, BHM, SÍB og
Félags bókagerðarmanna for-
dæmir harðlega það launamisrétti
kynjanna, sem ríkir á vinnumark-
aðinum.
Fundurinn ályktar að brýn
nauðsyn sé á samstöðu og sam-
vinnu kvenna hvar í stéttarfé-
lögum sem þær standa, til að ár-
angur náist í að brjóta á bak aftur
launamisréttið.
Launakannanir sem gerðar hafa
verið staðfesta að konum er raðað
í lægstu launaflokkana og að
hefðbundin kvennastörf eru lægst
launuðu störfin í þjóðfélaginu.
Ennfremur sýna kannanir að yfir-
borganir, duldar greiðslur og önnur
fríðindi falla sjaldnast í hlut kvenna.
Fundurinn skorar á aðila vinnu-
markaðarins að viðurkenna þessa
staðreynd með því að sérstakt átak
verði gert í komandi kjarasamn-
ingum til að rétta hlut kvenna í tekj-
uskiptingunni í þjóðfélaginu.
Að öðrum kosti munu konur taka
málin í sínar hendur og grípa til
þeirra ráða sem nauðsynleg eru til að
brjóta á bak aftur launamisréttið“.
Fundir víðsvegar um landið
Laugardaginn 18. febrúar var efnt til
funda á 8 stöðum um landið, í Reykja-
vík, Stykkishólmi, ísafirði, Akureyri,
Egilsstöðum, Vestmannaeyjum. Sei-
fossi og Keflavík. Fundarefnið var
„Staðan í Iaunamálum kvenna“. Á
öllum stöðum voru 2-3 ræðumenn frá
Framkvæmdanefndinni og sami fjöldi
heimamanna. Samvinna var höfð við
launþega á stöðunum um skipulag og
framkvæmd fundanna. Starfshópur
hjá Framkvæmdanefndinni gerði drög
að efnisatriðum til umræðu á fundun-
um. Fundirnir voru fjölsóttir, vöktu
athygli og þeim voru gerð skil í fjöl-
miðlum.
Framkvæmdanefndinni berst iðulega
beiðni um að senda fulltrúa á fundi, á
vinnustöðum og hjá félagasamtökum.
Fara jafnan tveir fulltrúar, nefndin er
kynnt og rætt um launamál. Nefndinni
hafa borist til umsagnar lagafrumvörp
frá Alþingi. Á Alþingi gerðist það síðla
vetrar að allar konur er sæti eiga á þing-
inu báru sameiginlega fram fyrirspurn
til forsætisráðherra, hvort stjórnvöld
væru tilbúin að beita sér fyrir saman-
burðarkönnun á öllum þáttum kjara-
mála karla og kvenna. Svar forsætis-
ráðherra var mjög jákvætt. Fram-
kvæmdanefndin reit ráðherra bréf þar
sem tekið var undir fyrirspurn þing-
mannanna. Nefndinni hefur borist bréf
forsætisráðherra með beiðni um að hún
setji fram þau markmið, er hún telji
æskilegt að ná með könnuninni og
bendi á leiðir til að ná þeim.
Tilgangur - Lokaorð
Hér hefur aðeins verið stiklað á því
stærsta um stofnun og störf Fram-
kvæmdanefndar um launamál kvenna.
Sú spurning hlýtur óhjákvæmilega að
vakna, hvort allt þetta umstang og fyrir-
höfn vegna stöðu kvenna á vinnu-
markaðinum þjóni tilgangi. Því er fyrst
til að svara allar konur í samninganefnd-
um, er mættu á samráðsfundina,
svöruðu þeirri spurningu hiklaust ját-
andi. Þær töldu æskilegt - að til væri
aðili er sameinaði allar konur hér á
landi í þessu tilliti; safnaði upplýsing-
um, kæmi þeim á framfæri í fjölmiðlum
ogmiðlaði þeim innbyrðismilli kvenna;
sameinaði þær til átaks ef á þyrfti að
halda; styddi þær í því langtímaverk-
efni að uppræta launamisrétti kynj-
anna, en tæki ekki sérstaklega afstöðu
í hverjum kjarasamningum fyrir sig.
Með öðrum orðum, einhver sem léti
einstakar orustur framhjá sér fara en
stefndi að því að vinna stríðið.
Við þetta má svo bæta, að allt frá því
að lögin um launajöfnuð kvenna og
karla voru samþykkt 1961 og komu til
framkvæmda í áföngum til ársins 1967,
hefur þrátt fyrir skýlausa orðanna
hljóða meira og minna verið farið í
70