19. júní - 19.06.1984, Qupperneq 83
Starfsemi út á við
Námskeið
Námskeiðahald á vegur KRFÍ
hefur verið nokkuð biómlegt. Tvö
námskeið voru haldin í ræðu-
mennsku og fundarsköpum og var
Valgerður Sigurðardóttir leið-
beinandi á báðum námskeiðunum.
Þá var haldið námskeið um greina-
skrif og fjölmiðlun og var Vilborg
Harðardóttir leiðbeinandi á því
námskeiði. Starfandi var sérstakur
námskeiðshópur, en í honum eru
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Sigrún
Gísladóttir og Ragnhildur Hjalta-
dóttir.
í júní 1983 kom hingað til lands
Alene H. Morris frá Bandaríkjunum
og hélt hún námskeið fyrir félags-
menn í KRFÍ. Námskeiðið stóð í tvo
daga með þátttöku 16 kvenna og efni
þess var ráðgjöf fyrir konur sem vilja
leita sér að atvinnu við sitt hæfi, jafnt
þær sem hafa stundað heimilisstörf í
lengri eða skemmri tíma og þær sem
hafa hug á að skipta um starf. Aiene
H. Morris kynnti fyrirþátttakendum
aðferðir sem beitt er í ráðgjafarstöð
sem hún rekur í þessu skyni í heima-
landi sínu og gaf hún félaginu heim-
ild til að nýta margvíslegt prentað
mál sem stofnunin gefur út. Ætlunin
er að KRFÍ fari í gang með ráðgjafar-
starfsemi af sama tagi, á næstunni.
Undirbúningur þess er hafinn og
vinnur hópur þátttakenda af nám-
skeiðinu að þýðingu þess efnis sem
Alene H. Morris lét félaginu í té.
Umsjón með þessu starfi er í
höndum Jónínu M. Guðnadóttur, og
annaðist hún einnig undirbúning
námskeiðsins.
Umsagnir
KRFÍ var beðið um umsögn frá Alþingi:
1. Um tillögu til þingsályktunar um rétt
heimavinnandi til lífeyris, gagnkvæman
makalífeyri og upplýsingaskyldu lífeyris-
sjóða.
2. Frumvarp til laga um endurmat á störfum
láglaunahóp.
3. Um tillögu til þingsályktunar um könnun
á kostnaði við einsetningu skóla, sam-
felldan skólatíma og skólamáltíðir.
Þessar umsagnir liggja frammi á skrifstofu
félagsins.
Fjáröflun
Eins og í flestum félögum þarf
KRFÍ að standa að fjáröflun. Að
þessu sinni var haldinn í haust köku-
kerta-bóka-flóamarkaður sem hefði
mátt ganga betur. Félagið fjárfesti í
kertum sem seldust upp fyrir jólin.
KRFÍ á fulltrúa í ráðgjafanefnd Jafnréttis-
ráðs og hefur Oddrún Kristjánsdóttir verið
aðalmaður þar í vetur en Esther Guðmunds-
dóttir varamaður. Hlutverk ráðgjafanefndar
er að vinna að þeim málum sem Jafnréttisráð
felur nefndinni hverju sinni svo og að gera
tillögur til ráðsins að nýjum verkefnum og
framkvæmd þeirra. Formaður nefndarinnar
er Magdalena Schram og varaformaður
Oddrún Kristjánsdóttir. Störf nefndarinnar
fram að þessu hafa verið í beinu framhaldi af
starfi fyrri nefndar, einkum varðandi mót-
andi áhrif skóla, þ.e. kennara og náms-
gagna, á viðhorf skólabarna til kyn-
hlutverka. Ráðstefna var haldin um þessi
mál 24. mars og nefndist „Stelpurnar og
strákarnir í skólanum“.
Skv. lögum á formaður KRFÍ sæti í ís-
lensku UNESCO nefndinni og hafa tveir
fundir verið haldnir á s.l. vetri.
Á ráðstefnu Sambands Alþýðuflokks-
kvenna um launamismun kvenna og karla
sem haldin var í september 1983 var sam-
þykkt tillaga frá átta konum um að efna til
þverpólitísks samstarfs um launamál kvenna
og m.a. skipuleggja aðgerðir sem leiði til
úrbóta og uppræti launamisréttið.
Þessar konur hittust fljótlega eftir ráð-
stefnuna og var þá samþykkt að bjóða
fleirum til samstarfs. M.a. var KRFÍ beðið
að tilnefna fulltrúa í nefndina og annan til
vara. Er Esther Guðmundsdóttir aðal-
maður, en Sigríður Vilhjálmsdóttir vara-
maður. Nánar er sagt frá Framkvæmdanefnd
um launamál kvenna annars staðar í blað-
inu.
Vorið 1983 sótti formaður „kontakt" fund
norrænu jafnréttisnefndarinnar, sem að
þessu sinni var haldinn í Bergen í Noregi. Á
fundinum voru kynnt verkcfnin „Hlutastörf
á Norðurlöndum" og „Stjórnmálaþátttaka
kvenna á Norðurlöndum", en norræna jafn-
réttisnefndin hefur kostað bæði verkefnin.
Þá sótti formaður stjórnarfund Alþjóða-
samtaka kvenréttindafélaga IAW sem hald-
inn var í Aþehu í maí sama ár. Á þessum
fundi var fjallað um innra starf samtakanna
og sérstaklega kom til umræðu Fréttabréf
1AW.
KRFÍ hefur árum saman átt fulltrúa í
Mæðrastyrksnefnd, Landvernd, Áfengis-
varnarnefnd kvenna og Landsambandinu
gegn áfengisbölinu. Á aðalfundi skiluðu full-
trúar skýrslu til stjórnar. Fulltrúar KRFÍ í
Mæðrastyrksnefnd voru Ingibjörg Snæ-
björnsdóttir og Helga Sigurðardóttir. I
Landvernd Oddrún Kristjánsdóttir og Val-
borg Bentsdóttir. í Áfengisvarnarnefnd
kvenna, þær Júlíana Signý Gunnarsdóttir og
Þóra Brynjólfsdóttir. í Landssambandi gegn
áfengisbölinu, Þorbjörg Daníelsdóttir.
KRFÍ var beðið að gera tillögu að aðgerð-
um hér heima og erlendis á árinu 1985 en þá
lýkur kvennaáratug SÞ. Hugmynd stjórnar
KRFÍ er að íslenskar konur fari hringinn í
kringum landið.
Útgáfustarfsemi
Útgáfa Fréttabréfs er orðin fastur
liður í starfi félagsins og hafa 4 frétta-
bréf komið út á milli aðalfunda.
Hefur Guðrún Egilson verið rit-
stjóri, en Þórhildur Jónsdóttir hefur
séð um útlit og uppsetningu.
19. JÚNÍ kom að vanda út í júní
1983. Að þessu sinni var ekkert
ákveðið efni í blaðinu heldur var
fjallað um það sem efst var á baugi í
jafnréttisbaráttunni. Ritstjóri blaðs-
ins var Jónína Margrét Guðnadóttir,
fjármálastjóri Sigríður Vilhjálms-
dóttir og auglýsingastjóri Júlíana
Signý Gunnarsdóttir.
Hallveigarstaöir
KRFÍ á þrjá fulltrúa í hússtjórn Kvenna-
heimilisins Hallveigarstaða, auk formanns
eru þær Guðrún Gísladóttir varaforntaður
og Oddrún Kristjánsdóttir gjaldkeri.
Haldið var áfram að gera við húsið, og var
viðhaldskostnaður því töluverður. S.l. vetur
var húsnæði KRFÍ og KÍ teppalagt. Þá
greiðir hússjóður Hallveigarstaða síma-
kostnað félaganna þriggja þ.e. KRFÍ, KI og
BKR.
Landsfundur
Landsfundir KRFÍ eru haldnir á fjögurra
ára fresti. Síðasti landsfundur var haldinn
1980 og næsti fundur verður því haldinn á
þessu ári. Er hann fyrirhugaður um 20.
október í Reykjavík. Ákveðið hefur verið
að fjalla um konur og atvinnulífið og þá sér-
staklega áhrif tækninýjungar á vinnumark-
aðinn. Fram að landsfundi mun hópur undir
stjórn Oddrúnar Kristjánsdóttur fjalla um
þessi mál.
Stjórn
Stjórn Kvenréttindafélags íslands
skipa nú: Esther Guðmundsdóttir,
formaður, Arndís Steinþórsdóttir,
varaformaður, Jónína M. Guðna-
dóttir, ritari, Oddrún Kristjáns-
dóttir, gjaldkeri. Meðstjórnendur
Ásthildur Ketilsdóttir, Árnþrúður
Karlsdóttir, Ásdís Rafnar, Guðrún
Gísladóttir og María Ásgeirsdóttir.
Varamenn: Erna Bryndís Halldórs-
dóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir
og Heiðrún Dóra Eyvindardóttir.
Íapríl 1984
Esther Guðmundsdóttir.
83