19. júní


19. júní - 19.06.1984, Page 88

19. júní - 19.06.1984, Page 88
IBM 1 nami og starfi IBM Personal Computer er ein fullkomn- asta einkatölva sem hægt er að fá. IBM PC er svar við kröfum þeirra, sem þurfa að minnka pappírsvinnu um leið og þeir fá betri yfirsýn og stjórnun á verkefnum sínum, m.a. við gagnasöfnun, samanburð, kennslu og upplýsingamiðlun, svo að dæmi séu nefnd. IBM PC einkatölvan getur bæði unnið sem sjálfstæð eining og einnig í beinu sambandi við stærri og umfangsmeiri tölvusamstæður. IBM PC einkatölvan er þannig aðeins hluti af þeim búnaði, sem námsmönnum, tækni- mönnum, vísindamönnum og leiðbeinendum stendur til boða í sambandi við nám sitt, rannsóknir og kennslu. Það eru milljónir af framleiðslueiningum sem notaðar eru í samsetningu á IBM tölvubúnaði, jafnt smáum sem stórum, á hverju ári. Hver eining er þrautreynd áður en hún er tekin í notkun. Hjá IBM er svo sér- þjálfað tæknifólk, hérlendis sem erlendis, sem tryggir að allt sé í fullkomnu lagi. Þeir sem nota IBM PC, einkatölvuna, í starfi sínu eða námi, fá þannig fullkomna þjónustu og leiðbeiningar fyrir smátölvu sína, jafnt og þeir, sem hafa stærri tölvur og tölvusamstæður í þjónustu sinni. IBM PC er því ekki „leiktæki" heldur mikilvægur hluti af tölvuþróun í þágu þeirra, sem nota tölvu- tækni í námi og starfi. Skaftahlíð 24 105 Reykjavík Sími 27700 'TnU'

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.