19. júní


19. júní - 19.06.1991, Side 14

19. júní - 19.06.1991, Side 14
að það veitti þeim mikla ánægju að sjá árangur og framfarir í þeim málum er þær unnu að. Neikvæðu hliðamar vega hins vegar þungt í áliti þeirra á sveitarstjómarstörfunum. Þær nefndu óskemmti- lega starfshætti, ómálefnalegt þras, jafnvel óheið- arleg vinnubrögð og klíkuskap. Erfítt væri að setja einhverjarreglurumhvemigstarfshættirog vinnu- brögð eigi að vera nema þá helst rammareglur. Spyrja má hvort konur, sem vinna á þremur vinnu- stöðum, séu í verri samkeppnisaðstöðu, ef nota mætti það orð, en karlamir, og hafí þar af leiðandi minni tækifæri til samráðs heldur en karlar sem í mörgum tilfellum vinna „aðeins“ á tveimur vinnu- stöðum, þ.e. í launavinnu og sveitarstjómum? I könnuninni voru konumar spurðar hvort það skipti þær máli að fleiri konur en þær væm í nefndum og ráðum og ef svo væri hvers vegna. Athyglisvert er að Iiðlega helmingur kvennanna svaraði þessari spumingu játandi, sagði að það skipti sig máli að fleiri konur störfuðu saman í nefndum og ráðum. Þær lögðu ekki aðeins áherslu á sérstöðu kvenna og sameiginlega reynslu heldur töldu einnig að konur sköpuðu betri vinnuanda og að þær næðu oftar samstöðu í mikilvægum málum þvert á pólitíska flokka. Tæplega helmingur að- spurðra lagði áherslu á að kynferði einstaklinga skipti ekki máli, aðalatriðið væri að fólk ynni vel saman. í niðurstöðum skýrslu Jafnréttisráðs er dregin sú ályktun að krafan um fleiri konur í sveitarstjómum ogáþingi skipti miklu máli fyrirkonurog auðvitað fyrirallaaðra. Sú skoðun kom fram í könnuninni að ef fleiri konur næðu kjöri ætti það að hafa áhrif á starfshætti og þá til hins betra. Fleiri kjömir kven- fulltrúar ættu að auðvelda þeim að halda áfram og nýta þá reynslu sem þær hafa öðlast á einu kjör- tímabili. Þetta þýðir hins vegar að ytri aðstæðum kvennanna verður að breyta og að ekki er nóg að fylkja konum inn í sveitarstjómimar við óbreyttar aðstæður. Aðstæður þeirra á vinnumarkaðinum, ábyrgð og verkaskiptingu á heimilunum, mat flokkanna á mikilvægi málaflokkanna, sem þær sinna mest, og afstöðu pólitískra félaga og samstarfsaðila til þeirra verður að skoða og bæta. Ef við viljum að konur eigi raunverulega möguleika á að standa jafnfætis körlum í stjóm- um bæjar- og sveitarfé- lagaverðuraðtakatillit ti 1 þeirra atriði sem þær vilja úrbætur á. Það er háalvarlegt mál að konur hrökklast hrein- lega frá störfum í sveit- arstjórnum vegna of mikils vinnuálags og vegna þess að þær njóta ekki þess stuðnings, sem þær eiga rétt á, til áhril'a. Stefanía Traustadóttir segirf viðtali við 19. júnf VINNUSTAÐU að það hafí haft sláandi áhrif á sig, þegar hún gerði könnunina, að meðal þeirra sem ekki gáfu kost á sér til endurkjörs eftir aðeins eitt kjörtímabil voru yngstu konumar meðal varamanna. „Þær töluðu mikið um tímaskort og skort á stuðningi. Þetta fannst mér óhugnanlegt að heyra,“ segir hún og bætir við að rauði þráðurinn í svörum kvennanna var að þær höfðu hreinlega ekki tíma afgangs til að sinna sveitarstjórnarstörfunum í þeim mæli sem þær töldu nauðsynlegan. Aðspurð segir Stefanía að ekki hafí verið spurt um stuðning heima við, þ.e. maka eða bama, og telur hún að slíkt myndi hafa verið ógerlegt. Önnur athyglisverð hlið á þessu máli öl lu og ef til vill ekki síður alvarleg er sú staðreynd að fjölmiðl- arsýndukönnuninniákafíega takmarkaðan áhuga. Að sögn Stefaníu var þeim kynnt skýrslan og fékk hún örlitla umljöllun en fráleitt nægjanlega. „Könnunin vakti töluverða athygli kvenna, ekki síst þeirra sem em í stjómmálum, og Kvenréttinda- félag Islands gerði sitt til að vekja athygli á skýrslunni með því að halda ráðstefnu um málið. Ráðstefn- una sóttu konur sem voru í sveitarstjórnum, einnig þær sem ætluðu að hætta, og lýstu þær sjónarmið- um sínum og reynslu. Þetta var mjög fróðleg ráðstefna,“ segir Stef- anía. Það kemur fram í máli hennar að stjóm- málaflokkarnirogsam- tök hafa sýnt lítinn sem engan áhuga á þessari könnun Jafnréttisráðs, sem þó ætti að varða alla.

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.