19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 19

19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 19
cn karla. Verkalýðshreyfingin hefur svo fyrst og fremst fjallað um þetta ut frá hagsmunum launafólks, sem er ckki nema eðlilegt. I annan stað má nefna að umræð- urnar hafa líka fyrst og fremst snúist um viðskiptalífíð, um markaðinn hvort sem það er vörumarkaður eða vinnumarkaður - og hagsmuni hans. Það er einmitt svo áberandi við sjálft Evrópubandalagið, að lagasetningar þess og sáttmálar taka alltaf mið af markaðnum. Það sem ekki tengist honum vill því detta niður á milli ships og bryggju. Þar er um að ræða aldraða, börn, öryrkja, heimavinn- andi fólk, námsmenn og fleiri. Innan Evrópuban(ja]agSins sjálfs eru 57% ■búa alls ekki á þessum vinnumarkaði þannig að það er stór hópur sem verð- ur utangarðs í umræðunni. nKvengerfing fútæktarinnar “ Hvad er þarí helst sem konur hafa venrí arí velta fyrir sér í sambandi virí EB? E'tt er það sem kallað hefur verið „feminisering“ eða kvengerfing fátæktarinnar, þ.e. að konur séu að verða fátæklingar heimsins. í ríkj- 7so ^vrópubandalagsins eru t.d. 5 /o-85% allra kvenna efnahagslega ^sjálfstæðar. Það er talið að um 14% 1 uanna í EB-ríkjunum, eða um 44 milljónir, lifl undir fátækramörkum °8 helmingur þeirra eru aldraðar kon- Ur °g einstæðar mæður. Staðreyndin er sri félagsmálasáttmáli EB mið- ust allur við vinnumarkaðinn. í hon- um er fjallað um laun, atvinnuleysi, °'yggi og hollustuhætti á vinnustað o-s.frv. Félagsmálasáttmálinn er þar a au^' ckki bindandi fyrir aðildarrík- 111 Vegua þess að hann hlaut ekki ein- ^0"13 samþykki þeirra, þ.e. um hann V " 'tcitunamild. Þessu er aiveg 0 1 t farið með lög og rcglur um hinn markað, þar gildir aukinn meiri- ? ut'- Bretar hafa beitt neitunarvaldi gcgn félagsmálasáttmálanum og ýms- um tillögum sem fram hafa komið m jafnréttismál. Vegna þess að aðild- rn . cru þannig ekki bundin af amningum sem varða félagsmál liafa aði^ k' 'a§a8''d' svo að ekki er hægt 1 Æra slík mál til Evrópudómstóls- « heyrir maríur einmitt, arí félags- Pjonusta muni hatna; - konur í Suríur- viopu telja sif> munufáfteðingarorlof til jafns virí konur norríar í álfunni t.d. - vegna þess arí allt slíkt verríi jafnarí. Það er hugsanlegt að konur á svæð- um, þar sem t.d. fæðingarorlof er alls ekki til staðar, muni njóta einhverra hagsbóta sem auðvitað er mjög já- kvætt, en spurningin er bara: á kostn- að hverra? Konur á Norðurlöndum óttast að það verði á sinn kostnað. Þær óttast það sem þær kalla „social dumping“ sem mætti þýða félagslegt hrap. Miðstýrt karlveldi Annað, sem sérstaklega hefur verið gagnrýnt, er stjórnkerfi EB. Þar er nú fyrst fyrir að taka karlveld- ið sem þó er e.t.v. ekki verra en geng- ur og gerist í mörgum aðildarríkj- anna. En til viðbótar því er svo stjórn- fyrirkomulag EB einkar ólýðræðis- legt. Framkvæmdavald þess er hjá embættismönnum, löggjafarstarfið fer fram í ráðherraráði og þing EB hefur mjög takmörkuð völd. Eins og í öðr- um valdapýramídum fækkar konum eftir því sem nær dregur toppnum. Konur eru mjög sjaldséðar í ráðherr- aráðinu, þær eru innan við 5% meðal æðstu embættismanna EB og ég held mér sé óhætt að fullyrða að engin kona eigi sæti í framkvæmdastjórn- inni. Á EB-þinginu eru þær um 18%. Því hefur verið haldið fram af bresk- um þingmanni að ef EB sækti um aðild að sjálfu sér yrði þeirri beiðni hafnað á þeirri forsendu að það stæð- ist ekki kröfur EB um lýðræði. En eins og þú veist setur EB mjög strang- ar kröfur þar um og á þeim forsendum hefur m.a. verið talið útilokað fyrir Tyrkland og Austur-Evrópuþjóðir að sækja um aðild. Frelsi hlutanna en ekki fólksins Eigum virí arí láta þetta nxgja um umbúríir EB og smia okkur arí innihald- inu? Já. Þá finnst mér rétt að vekja á því athygli, að Rómarsáttmálinn, þar sem hið margrómaða fjórfrelsi er skilgreint, það plagg sem kalla mætti stjórnarskrá EB, lögbindur í raun „frjálst“ markaðskerfi. Stjórnar- skrár eins og við þekkjum þær af stjórnarskrám 18. og 19. aldar taka til frclsis fólksins, hugtakið Ijórfrelsi var rcyndar notað af Franklin D. Roosevelt árið 1941 en þá var hann að tala um mál- og tjáningarfrelsi, trúarbragðafrelsi, frelsi frá skorti og frelsi frá ótta. En í stjórnarskrá EB er öðru fremur fjallað um frelsi hlut- anna. í mínum huga er það mikið vafaatriði að hér sé um framför að ræða! En innihald Evrópubandalagsins er sem sagt frelsi Ijármagns, vinnuaíls, vöru og þjónustu til að flæða á milli landa án þeirra hindrana sem nú eru í veginum. Mannlífið verður svo að taka mið af þessu frelsi hlutanna en ekki öfugt. Eigum virí arí líta á þetta fjórfrelsi lirí fyrir lirí og byrja þá á frelsi Jjármagns- ins? Augljósasta athugasemdin sem hægt er að gera við þetta frá sjónarhóli kvenna er að benda á að við eigum ekki fjármagnið. Konur eru háðar eigendum þess. Þá er gert ráð fyrir því að með frels- un íjármagnsins muni fjárfestingar í framleiðslu leita þangað sem tilkostn- aðurinn er lægstur. Þá erum við að tala um lág laun, lága öryggisstaðla, lítil réttindi o.s.frv. Framleiðslan mun sem sagt fara fram á láglaunasvæðum. Það er m.a.vegna þessa, sem konur á Norðulöndunum óttast fyrrnefnt fé- lagslegt hrap; það verður fýsilegri kostur fyrir framleiðendur og eigend- ur fjármagnsins að fjárfesta þar sem minnstar áhyggjur þarf að hafa af útgjöldum vegna t.d. orlofsréttinda launþeganna. Hvarí þá um frelsi þegnanna til arí stunda vinnu þar sem þeim sýnist? Engar kröfur verða gerðar um at- vinnu- eða búsetuleyfi, heldur getur hver sem er gengið í störf hvar sem er innan bandalagsins. Þetta getur auðvitað verið mjög spennandi fyrir marga, sem hafa eftirsótta þekkingu eða menntun. Karlar eru af ýmsum ástæðum hreyfanlegra vinnuafl en konur og til þess liggja margar ástæð- ur. Ein er að konur taka tillit til barna og fjölskyldu. Hvar viltu að börnin eigi rætur - viltu yfirleitt að þau eigi rætur? Hvar eiga þau að ganga í skóla, hvaða tungumál á að verða móðurmál þeirra? Aldraðir foreldrar, vinir og fjölskylda, rætur...allt þetta kemur inn í myndina hjá konum þeg- ar þær velja sér starf og vinnuum- hverfi. Ef konur fylgja mönnum sín- um eftir, fari þeir í vinnu erlendis, verða þær að búa við þær reglur og lög sem gilda í viðkomandi landi og þá erum við að tala um lög um t.d. 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.