19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 20
forsjá barna við skilnað, fæðingaror-
lof og annað sem varðar félagsleg rétt-
indi. Ég held því að þessi hreyfanleiki
geri konum að mörgu leyti erfiðara
fyrir en körlum.
Enn skal neyslan aukin
Erum við þá ekki komnar aö frelsi
vörunnar, sem m.a. á aó Ixkka vöru-
veróP
Jú, þessu er stillt þannig upp að
vöruverð muni lækka því að varan
verður framleidd þar sem tilkostn-
aðurinn er allra lægstur. Þetta á að
leiða til aukinnar neyslu, meiri veltu
og þ.a.l. aukins hagvaxtar.
Sú spurning vaknar þá hversu já-
kvæð enn aukin neysla er, því hún
hefur í för með sér að enn frekar verð-
ur gengið á auðlindir Jarðar, eins og
nú sé ekki nóg komið. Samdráttur
neyslu er reyndar talinn ein megin
forsenda þess að unnt verði að draga
úr umverfisvanda Jarðarinnar.
Framleiðsla á láglaunasvæðum og
svo flutningur vörunnar á markaðinr
mun fyrirsjáanlega hafa í för með sér
gífurlega aukningu á vöruflutningum.
Græningjar í Þýskalandi hafa reyndar
reiknað út að bílaumferð í Evrópu
muni aukast um 30% með tilkomu
hins innri markaðar. Hér komum við
aftur að umhverfissjónarmiðinu því
að allir sjá hvaða afleiðingar aukin
umferð hefur ekki aðeins á umferðar-
kerfið heldur á þær auðlindir jarðar-
innar sem bílar byggjast á.
I þriðja lagi mætti nefna eitt
áhyggjuefnið enn, sem er ólíkar kröfur
um gæði, hreinlæti og innihaldslýs-
ingu frá einu aðildarríki til annars.
EB er aðeins með um 50 efni á skrá,
sem talin eru krabbameinsvaldandi.
Alþjóðahcilbrigðisstofnunin er hins
vegar með 250 slík efni á sinni skrá.
Sem sagt, einstök aðildarríki geta ckki
krafist þess að 200 þessara efna séu
gefin upp í innihaldslýsingu vöru,
hvort sem þau eru í matvælum eða
öðru, vegna þess að EB skilgreinir
slíkar kröfur sem viðskiptahindrun.
Þar með er t.d. Dönum núna meinað
að fara eftir sínum eigin ströngu regl-
um hvað varðar innihaldslýsingu
vegna þess að þær ganga lengra en
reglurnar sem settar hafa verið í
Brússel. Þegar maður hugsar til þess,
að um fjórðungur allra barna í Þýska-
landi þjáist af öndunarfærasjúkdóm-
um og ofnæmiseinkcnnum vegna eit-
urefna í mat eða umhverfinu, t.d í
20
viðarvörn og öðru sem notað er við
innréttingar, - þá spyr maður sig líka
um leið hvort heilsa mannfólksins
ætti ekki að skipta meira máli en hag-
ur viðskiptalífsins. En þarna sýnir það
sig aftur að Evrópubandalagið er
hagsmunasamtök viðskiptalífsins og
ber hag þess fyrst og fremst fyrir
brjósti.
Afnám tolla og vörugjalda mun vænt-
anlega hafa í för meö sér lægri tekjur
ríkiskassanna?
Já vissulega. Enda er því spáð, að
t.d. Danir muni þurfa að skera opin-
ber útgjöld sín niður um 20% og ein-
hversstaðar mun það koma niður á
velferðarkerfinu. Jafnframt þessum
tekjumissi hættir ríkisvaldið á hverj-
um stað að hafa stjórn á neyslu með
stýringu vöruverðs með tollum, líkt
og víða er gert t.d. með áfengi og
tóbak. Slík pólitísk stefnumótun fer
úr höndum þjóðríkjanna í hendur fá-
mennisstjórnarinnar í Brússel.
í síðasta lagi er svo frelsi þjón-
ustunnar. Þar er átt við banka, trygg-
ingarfélög og opinbera þjónustu. í
þessu sambandi er m.a. talað um að
„kostir stórfyrirtækja fái að njóta
sín“. ÖII íslensk fyrirtæki eru auðvit-
að smáfyrirtæki í samanburði við er-
lendu risana sem þar er átt við og því
vandséð hvernig við munum hagnast
á þessu frelsi. Því er spáð að þetta
frelsi þjónustunnar muni hafa í för
með sér fækkun starfa, t.d. í banka-
geiranum, en þar eru konur í miklum
meirihluta sem vinnuafi. Frelsi þjón-
ustunnar hefur enn fremur í för með
sér að allir vertakar jafnt innlendir
sem erlendir eiga að sitja við sama
borð þegar boðnar eru út opinberar
framkvæmdir. Þannig er erfiðara að
nota slíkar framkvæmdir til að skapa
atvinnu heimafyrir á samdráttartím-
um.
Sudvesturhovn Evrópu
er í Briissel
annig má segja margt og mikið
um þær fjórar tegundir frelsis
sem ci_ga að hafa svo mikið að-
dráttarafi. í mínum huga kemur þó
alltaf aftur að því sem ég tel alvarleg-
asta ágallann og að koma muni verst
niður á þjóðum Evrópu og það er
hversu hættuleg þessi risasamsteypa
hljóti að verða lýðræðinu. Ég segi
risasamsteypa, því að stærðin ein seg-
ir sína sögu; við erum í rauninni að
tala um heila heimsálfu, ckki nokkur
ríki. Innan EB búa núna alls 324 millj-
ónir manna en það eru fleiri íbúar en
eru í Bandaríkjunum. í svo stórri ein-
ingu er erfitt að hafa áhrif, valdið er
svo fjarlægt og erfitt að festa á því
hönd. Við erum enn freniur að tala
um hópa fólks sem tala gjörólík
tungumál, eiga ólíkan menningararf
og hafa ólíka siði. Þessir þættir geta
samstöðu alls þorra fólks erfiða ef
ekki illmögulega. Hér á landi er verið
að tala um að fjármagnið, valdið og
fólkið fari á suðvesturhornið. í Evr-
ópu fer það til Brússel. Kvennahreyf-
ingar hafa um árabil beitt sér fyrir
valddreifingu, gegn pýramídabygg-
ingu valdsins og fyrir auknum áhrif-
um og réttindum kvenna. Sú barátta
verður að engu gerð með því að búa
til hærri og valdameiri pýramída í
Brússel og við munum þurfa að byrja
aftur upp á nýtt við að brjóta glufur
í veggi valdsins.
Flýtum okkur liægt en með
opinn hug
Viö höfum hér talaö um Evrópu-
handalagió og markmið þess, en nú
virðast flestir nokkurn veginn sammála
um aö aöild aö handalaginu sé ekki
æskileg fyrir ísland. Hins vegar er þaö
mörgum kappsmál aö við verðum meö
í Evrópska efnahagssvæöinu. Er stór
munur á þessu tvennu?
g lít ekki svo á. Viðræður EB og
EFTA um evrópska efnahags-
svæðið cru um aðlögun ríkjanna
utan EB að bandalaginu, nokkurs
konar aukaaðild þeirra, sem enn hafa
ekki fengið inni í sjálfu höfuðvíginu
í Brússel. Það er verið að semja um
að fjórfrelsið nái líka til EFTA-ríkj-
anna. Ef evrópskl efnahagssvæði
verður að veruleika kann full aðild
að EB að vera skemmra undan en
margur heldur. Þótt ég sé þeirrar
skoðunar að í eðli sínu sé Evrópu-
bandalagið ekki konum vinsamlegt,
þá geri ég mér grein fyrir að það er
ekki alvont. Evrópubandalagið er
breytingum háð og við konur vcrðum
að fylgjast grannt með og vera opnar
fyrir öllu sem getur orðið til hagsbóta
fyrir konur. Við verðum líka að gæta
okkar á því að líta ekki á almenn
þróunareinkenni Vesturlanda sem
einskorðuð við EB. I rauninni gildir
það sama um þetta mál og önnur
afdrifarík mál, - flýtum okkur hægt
en mcð opnum hug.
J