19. júní - 19.06.1991, Side 29
NAFNABANKI
Vilborg Davíösdóttír
Viötal við Sigrúnu Stefánsdóttur
Sigrún Stefánsdóttir doktor í ijölmiðlafræði hefur unnið
við tvennskonar rannsóknir sem lúta að hlut kvenna í
fjölmiðlum. Helstu niðurstöður
þeirra eru þær að mikil slagsíða er
á fréttum konum í óhag og jafn-
iramt að konur í fréttamannastétt
hal'a mun meiri áhyggjur af þessu
ójafnvægi en starfsbræður þeirra.
<£g held að upplýsingabanki sé
góður liður í þá átt að auka hlut
hvenna í fjölmiðlum en hann einn
^ugir ekki,“ segir Sigrún.
>,Nafnabanki getur eytt afsökun-
hini um að fjölmiðlafólk viti ekki
hvar konurnar er að fínna en það
þttrí líka að kenna þeim konum,
sem eru á skrá hjá Jafnréttisráði, að
uingangast ijölmiðla og læra að
nota þá. Það þyri'ti ekki mikið til,
stutt námskeið myndu jafnvel
homa að góðu gagni. Banki án
tnnistæðu er einskis virði.“
„Gömul afsökun fjölmiðlafólks er
sú að eríltt sé að finna konur til að
tala við og það er nokkuð til í því.
Heiðin er sú að tala við fólk í topp-
stöðum og óneitanlega eru karlar
þur ijölinennari en konur. Auðvit-
að er oft hægt að tala við undirmennina en þeir vísa oftar en ekki
heiðnum um viðtöl frá sér þar sem þeir vilja ekki troða
yfirmönnum sínum um tær. Og það er erfitt við því að gera.“
í könnun, sem Sigrún stóð að árið 1988 meðal félaga í
Blaðamannafélagi Islands, kom skýrt fram að konur líta öðrum
augum á málin en karlar. Sem
dæmi má nefna að þegar spurt var
hvort viðkomandi teldi að hin rýra
mynd af konum í ijölmiðlum drægi
úr þeim kjarkinn í sókn til aukinna
áhrifa svöruðu 37,8% kvenna ját-
andi og 15% karla. Þegar spurt var
hvort þetta atriði gæfi körlum for-
skot í valdabaráttu daglegs lífs
svöruðu 73,3% kvenna játandi og
17,6% karla. 72% kvenna töldu að
ein leið til breytinga væri að jafna
hlut kvenna í fréttamannastétt en
tíundi hver karl var sammála þeirri
skoðun.
Sigrún spurði einnig um hversu
mikilvægt viðkomandi teldu að
stofnaður yrði upplýsingabanki
eins og sá sem Jafnréttisráð hyggst
koma í gagnið. Slíkt töldu 36%
kvenna í fréttamannastétt mjög
mikilvægt og 21% karla.
„Það er synd hversu hægt gengur
að koma þessum nafnabanka í
gagnið,“ sagði Sigrún. „Reyndar er
ég mest hissa á því hve konur eru
seinar að taka við sér. Ég held að ef jafnvægi næðist milli kynja
í fjölmiðlum yrðu þeir ijölbreyttari og um leið betri. Og það
hlýtur að vera allra hagur.“
29