19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 31
Raett viö Auði Sveinsdóttur formann
Landverndar um skýrslu Sameinuðu
þjóðanna, Brundtland-skýrsluna, um
umhverfisvanda móður Jarðar...
Viðtal: Magdalena Schram
Árið 1983 fól aðalritari Sameinuðu þjóðanna Gro Harlem Brundtland, sem nú er forsætisráðherra
Noregs, að setja á stofn sérstaka óháða nefnd til að takast á við umhverfisvanda jarðarinnar og veita
henni forstöðu.
Efttirtalin atriði átti að leggja til grundvallar starfi nefndarinnar:
1 - langtímamarkmið í umhverfismálum sem stefndu að því að ná árangri fyrir aldamótin 2000,
2 - benda á nýjar leiðir í samstarfi þjóðanna í umhverfismálum,
3 - skoða á hvern hátt hver þjóð fýrir sig getur glímt við umhverf isvandann,
4 - að skilgreina hvernig litið er á umhverfismál í langtímasamhengi og benda á réttar leiðir.
Alls voru tuttugu manns kallaðir til starfa í þessari nefnd auk formannsins, Gro Harlem Brundtland
og varaformannsins, Mansour Khalid frá Súdan. *
Nefndin skilaði árið 1987 viðamikilli skýrslu, Brundtland-skýrslunni sem svo er kölluð, og sama ár
Var hún lögð fyrir allsherjarnefnd Sameinuðu þjóðanna og rædd þar. Samþykkt var að senda skýrsluna
öllum aðildarþjóðum SÞ til umfjöllunar og með þeim tilmælum að tekið yrði mið af niðurstöðum henn-
ar við allar ávarðanir og stefnumörkun. Skýrslan hefur nú verið þýdd á meira en 20 tungumál og umræð-
an um innihald hennarvex.
kíkisstjórnir íslands frá 1987 hafa ekki sinnt þessum tilmælum SÞ og því var það, að Landvernd lét
hýða úrdrátt úr skýrslunni eftir að umhverfisráðuneytið hafði hafnað samstarfi þar um. í nóvember
1990 kom sá úrdráttur út í formi handhægs bæklings.
I’cssi voru í nefndinni: Susanna Agnelli, Ítalíu,
Saleh A.
. Al-Athel, Saudi Arabíu, Bernard Chidzero.Z-
■mhabwe, Lamine Mohamed Fadika, Fílabeins-
strondinni, Volker Hauff, Þýskalandi, istvan Lang,
Ungverjalandi, Ma Shijun, K.ína, Margarita Marino
de Botero, Kolumbíu,
Nagendra Singh, Indlandi, Paulo Nogureira-Neto,
Brasilíu, Saburo Okita, Japan, Shridath S. Rampal,
Guyana, William D. Rckelhaus, Bandaríkjunum,
Mohammed Sahnoun, Alsír, Emil Salim, Indónesíu,
Bukar Shaib, Nigeríu, Vladimir Sokolov, Jugóslavíu,
Mauricc Strong, Kanada, auk aðalrítarans, Jims
MacNeill frá Kanada.
31