19. júní - 19.06.1991, Page 35
Jyrir jafnharðan, þ.e. um leið og málin berast.“ Jafnframt
þVl að sinna dómsstörfunum og ýmsum erindum er koma
bl Hæstaréttar er forsetinn, eins og fyrr getur, einnig einn
briggja handhafa forsetavaldsins í fjarveru forseta íslands.
F.riitt reyndist að ná sambandi við Guðrúnu vegna mik-
1 ,a anna réttarins. Er starf forseta tímafrekt? Guðrún
'imir og bendir blaðamanni á myndarlegan skjalabunka
V|ð hlið skrifborðsins. „Já, það er sannarlega óhætt að
scgja að starfið sé tímafrekt. Dómurinn situr fimm daga
jUnnar þótt hvor deild um sig starfí ekki á hverjum
cgi- Forseti réttarins situr í fimmmannadeildinni, sem
emur saman þrisvar í viku, en ef forföll koma upp þá
1 aupa dómarar í skarðið og sitja stundum í dómi oftar
cn þrisvar í viku. Starf handhafa forsetavalds er hins
Vcgar ekki tímafrekt vegna þess að í raun snýst það um
a<; skrifa undir lagafrumvörp þegar forsetinn er ekki á
midinu. j hnotskurn má segja að dómari í Hæstarétti
Sldríl sjö daga vikunnar og öll kvöld vegna þess að nauð-
syníegt er honum, eða henni, að fara í gcgnum aragrúa
s,-|d a er varða mál sem fyrir dóminn koma. Þetta er
ekki vinna frá níu til fimm.“
Guðrún er eina konan á íslandi sem starfar sem dóm-
ari við Hæstarétt. Þetta leiðir hugann að því hve margar
konur á íslandi hafi öðlast rétt til að flytja mál fyrir rétt-
inum. Guðrún lítur hugsandi á blaðamann og segir síðan
að þær séu ekki margar. „Ég var önnur konan hér á
landi, sem fékk slík réttindi, en fyrst var Rannveig Þor-
steinsdóttir sem nú er látin. Hinar eru Svala Thorlacius,
Guðrún Margrét Árnadóttir, Guðný Höskuldsdóttir og
Þórunn Guðmundsdóttir.“ Guðrún bætir við að hlutfall
kvenna á Islandi með réttindi til að flytja mál fyrir Hæsta-
rétti sé, að því er hún best viti, mjög svipað og á hinum
Norðurlöndunum.
Að lokum spyrjum við Guðrúnu hvernig lögfræðingur
ávinni sér rétt til að flytja mál fyrir Hæstarétti. „Að af-
loknu prófi í lögum frá Háskóla Islands þarf viðkomandi
að öðlast réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi og
það gerist með flutningi íjögurra prófmála fyrir dómi.
Þegar því er lokið verður lögmaðurinn að starfa í þrjú
ár og síðan að taka þrjú prófmál fyrir Hæstarétti. Lög-
fræðingur verður að hafa náð þrjátíu ára aldri til að
mega flytja mál fyrir Hæstarétti,“ segir hún.
35