19. júní


19. júní - 19.06.1991, Side 38

19. júní - 19.06.1991, Side 38
Umhverfisvænt heimilishald í „grænni fjölskyldu“ Um þessar mundir er Norræna um- hverfisárðið að renna sitt skeið. Mörg verkefni, sem lúta að umhverfismál- um, hafa verið unnin á árinu, sum sameiginlega á öllum Norðurlöndun- um, önnur hafa verið staðbundin. Eitt af því sem Norðurlöndin hafa gert sameiginlega er verkefnið „Grænar fjölskyldur“. Hugmyndin að því kemur frá Danmörk en þar var slíku verkefni hrundið af stað til að reyna hvernig venjulegum norrænum fjölskyldum gengur að sveigja daglegt líf í umhverfísvænna horf. Verkefnið var hluti af átaki, sem ætlað var að freista þess að koma hugmyndum svonefndrar Brundtland-skýrslu í verk. (Um þá skýrslu er fjallað í við- tali við Auði Sveinsdóttur, formann Landverndar.) „Grænu fjölskyldurnar“ vöktu mikla athygli í Danmörku og verk- efnið þótt takast vel. Því taldist við hæfi að vinna sams konar verkefni á öllum Norðurlöndunum í tilefni um- hverfisársins. Leitað var eftir sam- starfi við fimm sveitarfélög í hverju landi og auglýstu þau eftir fjölskyld- um sem væru reiðubúnar til þátttöku. Hér voru það eftirtalin sveitarfélög sem leitað var til: Akranes, Eyrar- bakki, Grindavík, Kópavogur og Neskaupstaður og undanfarna mán- uði hafa fjölskyldur á þessum stöðum sem sagt lagt sig í líma við að færa heimilishald sitt í umhverfisvænna horf. í Kópavogi reyndist áhuginn svo mikill að þegar umhverfisráð bæjarins auglýsti þar sóttu 8 fjölskyldur um og hafa þær allar tekið þátt í verkefn- inu. 38 j

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.