19. júní - 19.06.1991, Page 41
Fæstir cru mcðvitaðir um
þá sóun á auðlindum
jarðar sem fcr fram á
degi hvcrjum.
þessu með tannburstunina - hann
hafði alltaf vanist því að skrúfa fyrir
vatnið á meðan hann var að bursta!“
Þú nefndir að þið hefðuð fengið holl-
ráð í veganesti. Þurfið þið þá að gera
einhver skil?
„Já, eiginlega. Við fengum skýrslu-
eyðublöð til að fylla út en við ákveð-
um það sjálf hvernig og hvenær við
stöndum að því að færa skýrslu og
reyndar ráðum við hversu ströng við
erum. En sem dæmi um skýrslur þá
settum við okkur það sem verkefni í
eina viku að vigta ruslið - aðra að
mæla vatnið o.s.frv. Ruslið er þá
flokkað í lífrænt sorp og ólífrænt og
hættuefni.
Það er mikið talað um flokkun sorps,
en mörgum finnst sem það hljóti að
vera svo mikil fyrirhöfn. . . ?
„Það finnst mér alls ekki. Ég. komst
fljótlega upp á lag með að nota t.d.
mjólkurfernur undir það lífræna - hef
einfaldlega tóma fernu standandi við
vaskinn í eldhúsinu og í hana fer úr-
gangur á borð við eggjaskurn, hýði ,
skræling og þess háttar. Það er nú
minnsti vandinn!“
Geturðu nýtt þér þennan úrgang, t.d.
í garðinum?
„Nei, ég hef nú ekki farið út í það.
En það stendur til að kenna okkur
að útbúa safnhaug í þeim tilgangi og
ég er ekki frá því að ég eigi eftir að
notfæra mér það. Nágranni minn, sem
á einn fallegasta garðinn í Kópavogi,
er með þannig haug svo að árangur-
inn blasir við mér og er sannarlega
til eftirbreytni.
Og svo þarf varla að bæta því við að
við söfnum öllu saman sem hægt er
að skila aftur til endurvinnslu, gleri,
plasti og þess háttar. Annars er ég
alveg hætt að kaupa drykkjarföng í
málmumbúðum, því að efnin í málm-
inum losna í drykkinn og eru ekki
mjög holl fyrir okkur, - þá er plastið
skömminni skárra og glerið auðvitað
best. Pappír fer í þrjá flokka, venjuleg-
an, heftan og glanspappír. Það stend-
ur til að láta allan pappír frá grænu
fjölskyldunum í endurvinnslu og það
er ekki lítið magn. Vika af Mogganum
vegur t.d. 2 kg.
Pappírslaus
barnaf mæli
Hvað svo með innkaupin?
„Ég forðast flóknar og viðamiklar
umbúðir, reyni t.d. alltaf að kaupa
egg í endurunnum bökkum. Það fer
reyndar töluverður tími í það hjá mér
að leita að slíku. Kaffipokar, bréfklút-
ar, klósettpappír - allt er þetta til úr
41