19. júní - 19.06.1991, Side 42
endurunnum pappír en það fæst ekki
alls staðar eða alltaf. Ég er mjög með-
vituð um þessa hluti núna og það er
margt sem mætti breyta til betri veg-
ar. Hugsaðu þér t.d. þegar þú kaupir
grænmeti, þá fer hver tegund í sinn
poka. Ég versla reyndar mikið í Bón-
us, þar sem grænmeti er selt í stykkja-
tali þannig að þar má láta allt í einn
goka.
Ég hef líka velt því fyrir mér hvers
vegna mjólk er bara seld í eins lítra
umbúðum. Við drekkum mikið af
mjólk eins og sjálfsagt á flestum heim-
ilum hér á landi. Það er skrýtið að
ekki skuli vera boðið upp á 2 1 fern-
ur, það myndi spara umbúðakostnað.
Ég er sannfærð um að fólk kysi það
fremur.
Þannig er það svona hitt og þetta sem
ég rek augun í og hef hugsað upp á
nýtt. Einnota álbakka er ég alveg
hætt að nota og hér verða aldrei fram-
ar pappaglös og pappadiskar í barna-
afmælum! Frauðuplast nota ég ekki
og vildi óska að það væri hægt að
kaupa kjöt í annars konar umbúðum.
Ég er líka farin að nota plastpokana
aftur og aftur, t.d. þessa sem brauð
eru seld í, þá nota ég undir nesti. Hér
eru allar skúffur fullar af plastpok-
Það sem drepur
bakteríur dre(3ur
líka fiska
Eitt af því sem mest er tnkið um er
svo uuðvitað þvottaefnið og reyndar
hreinsiefnið allt sem við notum.
„Já. Ég hef eytt miklum tíma í að
lesa utan á þvottaefni! Við fengum
lista yfir merkingar - hverjar væru
áreiðanlegar og hverjar ekki. Nú er
svo algengt orðið að framleiðendur
merki vöruna með einhvers konar
stimpli, sem á að tryggja að hún sé
umhverfisvæn. En stundum eru þau
merki bara eitthvað sem framleiðand-
inn hefur látið hanna fyrir sig til að
varan seljist betur. Og innihaldslýs-
ingu er mjög ábótvant. Mér hefur
reyndar fundist einna erfiðast að velja
þvottaefni. Ég kaupi bara fosfatfrí
efni og klór nota ég aldrei, hef aldrei
gert. T.d. hef ég alltaf notað umhverf-
isvænar bleyjur á stelpurnar, gat aldr-
ei hugsað mér að láta klórað efni
koma nálægt þeim. Ég nota edik til
að hreinsa klósettið, það er eitt af
þessum gömlu húsráðum sem enn eru
í fullu gildi.
Reglan er einfaldlega sú, að það sem
er bakteríudrepandi getur líka drepið
fiska - það er ágæt áminning til að
fara eftir.“
Finnst þér umhverfisvænu vörurnar
vera dýrari en hinar?
„Það er misjafnt, en í heildina eru þær
það kannski. Hins vegar notar maður
miklu minna magn þegar'maður fer
að velta þessu öllu fyrir sér, þannig
að þar kemur sparnaður á móti. Sem
dæmi get ég sagt þér að ég var vön
að nota um 1 kg af þvottaefni á viku
en nú fer ég bara með 500 gr án þess
þó að þvo minna. Umhverfisvænt
þvottaefni freyðir yfirleitt meira svo
ekki borgar sig að nota of mikið og
auk þess held ég að ég hafi bara not-
að allt of mikið áður. Þetta sama gild-
ir um uppþvottalög, ég nota miklu
minna af honum núna en áður.“
Óregla á
þvottaplaninu
Þegar hér stendur í samtali okkar
Lindu Bjarkar kemur Guðlaugur heim
frá vinnu sinni svo að ekki kemur
annað tilgreina en spyrja hann álits:
„Þetta er gaman og forvitnilegt.
Linda Björk er auðvitað sú sem held-
ur utan um þetta hérna heima, sér
um innkaup og þrif og mér finnst
þetta hljóti að vera skemmtilegt verk-
efni fyrir hana, finn það á henni. Sjálf-
ur hef ég orðið meðvitaðri um öll þau
efni sem fara út í umhverfið. Sem
pípulagningarmaður þekki ég þá
um!
Umhverfisstefna
Getur verið að rusl skapi,
þrengsli, eldhættu, slysahættu, óþrif
eða skaði ímynd?
Viljir þú láta okkur athuga ruslamálin þá vinsamlega hafið samband og
fulltrúi okkar kemur á staðinn.
<ss>
GÁMAÞJÓNUSTAN HF.
VATNAGARÐAR 12 - PÓSTHÓLF 4368
124 REYKJAVÍK - SlMI 688555
KT: 410283-0349
42