19. júní - 19.06.1991, Page 43
Við notum meira af þvottacfni en við gcrum okkur grein fyrir.
staðla sem gilda, t.d. hvað varðar
úrgang frá efnaverksmiðjum hér á
landi. En það gilda engar slíkar reglur
á bensínstöðvum, svo ég nefni eitt
dæmi. Hugsaðu þér allt eitrið sem
hlýtur að renna niður frárennslin á
þvottaplönunum. Þar eru engar regl-
ur, - maður fer og hreinsar bílinn sinn,
fleygir dósunum utan af frostlegi og
mörgu öðru sem ætti áreiðanlega að
fara í gám fyrir hættuefni rétt eins og
lyf og rafhlöður.“
Þú sknippst heim úr vinnunni á bíln-
um - þú hefur ekki tekið upp á því
að hjóla?
„Það er eiginlega illmögulegt fyrir
mann í mínu starfi að hafa ekki bíl.
Hins vegar hafa vinnuveitendur mínir
það fyrir sið að safna okkur saman
og keyra okkur á vinnustað, þannig
að margir nota sama farið. Það er
bara þegar sérstaklega stendur á að
ég nota minn eigin bíl.“
Hvernig hafa vinirykkar og kunningj-
ar brugðist við þessu uppátæki ykkar
að gerast græn fjölskylda?
„Vel - og af miklum áhuga.“
Hvað með þig Linda, þegar þú ert
að versla og biður sérstaklega um
umhverfísvænar vörur, þykir það
sjálfsögð beiðni?
„Það er dálítið misjafnt en er yfirleitt
mjög vel tekið. Stundum verður af-
greiðslufólk bara hissa á mér, t.d.
þegar ég spyr kjötkaupmanninn hvort
hann geti virkilega ekki notað annað
en þessa frauðplastbakka! En samt
fmnst mér andinn yfirleitt vera sá, að
þetta sé sjálfsagt. Eg held líka að fólk
sé mjög reiðubúið til að kaupa um-
hverfisvænar vörur, kjósi þær öðrum
fremur, en það veit ekki alltaf hvernig
hægt er að snúa sér í því.“
Haldið þið að þessir fjórir mánuðir í
hlutverki grænnar fjölskyldu muni
breyta lifí ykkar - verðið þið nokkurn
tímann söm aftur?
„Nei, líklega ekki! Við erum miklu
meðvitaðri og tökum nú orðið eftir
svo mörgu, sem ekki vakti athygli
áður. Og það sem líka er svo
skemmtilegt - við sjáum breytingar í
kring um okkur því að þetta er svo
smitandi. Nágrannarnir, fjölskyldur
okkar og vinir, allir í kring um okkur
eru að velta þessu öllu saman fyrir sér
og breyta sinni hegðun gagnvart um-
hverfinu líka. Það er mjög ánægju-
legt.“
Og undir það má taka með Lindu
Björk, því að þá fyrst er tilganginum
með verkefninu náð, þegar við hin,
sem enn erum ekki orðin græn, höfum
smitast rækilega!
43