19. júní - 19.06.1991, Qupperneq 54
greiðslur í gegnum Tryggingastofnun.
Frá upphafi hafa lög um fæðingar-
styrki og fæðingarorlof verið í stöð-
ugri endurskoðun - og eru enn - bæði
til að jafna hlut kvenna og til að að-
laga þau breyttum þjóðfélagsháttum.
Nú hefur því jafnrétti verið náð að
allar konur á íslandi eiga rétt á sex
mánaða fæðingarorlofi, en að vísu á
afar mismunandi launum. Baráttan á
þeim vettvangi heldur því áfram og á
hverjum tíma eru í gangi ýmis mál
þar sem einstaklingar eru að leita rétt-
ar síns varðandi fæðingarorlof. Ekki
alls fyrir löngu vakti eitt þessara mála
talsverða athygli. Þar var um að ræða
mál, sem Lára V. Júlíusdóttir sá sig
knúna til að höfða í bæjarþingi
Reykjavíkur, gegn Tryggingastofnun
ríkisins til að fá fæðingarorlof sitt
greitt. Lára vann málið og um leið
má segja að hún hafi unnið réttinda-
mál fyrir fjölda annarra kvenna sem
eru í sömu stöðu og hún var og því
ástæða til að fagna.
„Úr því hann er tilbúinn til að
borga, færð þú ekkert!”
En því miður eru þarna ekki öll
kurl komin til grafar. Lára er
framkvæmdastjóri og lögfræðingur
ASÍ og bæði vegna starfs síns, þessa
máls og vegna starfa sinna í stjórn-
skipaðri nefnd til endurskoðunar á
fæðingarorlofslögum frá árinu 1986,
er Lára fróðari en margur um fæðing-
arorlofsmálin og hún féllst á að segja
lesendum 19. júní frá baráttumáli sínu
og ýmsu öðru fróðlegu um fæðingar-
orlofsmálin.
„Þann 1. mars 1989 eignaðist ég
barn og fór í fæðingarorlof eins og lög
gera ráð fyrir. Hjá ASÍ starfa ég sam-
kvæmt kjarasamningum Verslunar-
mannafélagsins og átti því samkvæmt
túlkun Tryggingastofnunar ríkisins
eingöngu að fá greiðslur frá Trygg-
ingastofnun í fæðingarorlofinu og
hefði því orðið fyrir talsverðu tekju-
tapi. Ef ég hefði aftur á móti átt mitt
barn á meðan ég var að vinna hjá
ríkinu þá hefði ég, eins og aðrar kon-
ur í starfi hjá hinu opinbera, haldið
mínu óskerta kaupi fyrstu þrjá mán-
uðina og síðan dagvinnukaupi í næstu
þrjá. En af því að ég fór að vinna á
almennum markaði þá fæ ég 53.000
krónur á mánuði og ekkert meir, því
að það er það mesta sem ég get feng-
ið frá Tryggingastofnun.”
Vitað er að margir velviljaðir at-
vinnurckcndur hafa bætt góðum
starfsmanniþann tckjumissi scm hann
verður þarna fyrir og greitt honum
mismuninn á milli greiðslunnar frá
Tryggingarstofnun og fullra launa.
Þannig var þetta í Láru tilfelli.
„Vinnuveitandandi minn var tilbú-
inn að greiða mér það sem upp á
vantaði til að ég héldi fullum launum
og gerði það á þann hátt að lána mér
þann hluta sem Tryggingastofnun átti
að borga, sem ég átti síðan að endur-
greiða þegar ég hefði fengið greitt
þaðan. En þá fékk ég þau svör hjá
Tryggingastofnun að úr því að at-
vinnurekandi væri tilbúinn til að
borga mér þessa viðbót, þá fengi ég
ekki neitt!”
-En ef þú hefðir ekkert látið vita að
þú fengir uppbót á orlofið?
„Sjáðu þetta eyðublað sem ég fyllti
út þegar ég sótti um fæðingarorlof -
bara almennar upplýsingar s.s. nafn,
kennitala, starf og stéttarfélag mitt
og föður míns. En þú sérð að það er
ekkert spurt hérna um tekjur, hvort
ég sé að leggja niður störf eða annað
í þeim dúr. Af því að ég vildi fá úr
þessum málum skorið þá gaf ég yfir-
lýsingu um að ég fengi uppbót frá
vinnuveitanda mínum og lét hana
fylgja með. En þegar út í málferlin
var komið var því haldið fram að ég
hefði ekki upplýst að ég fengi greiðslu
frá mínum atvinnurekanda sem ég
ætlaði að endurgreiða þegar ég fengi
fæðingarorloFið. Ég get ekki séð að
það breyti neinu í dæminu, en það
er það sem þeir eru að reyna að hanga
á núna. Ef ég hefði ekki skrifað þessa
yfirlýsingu, þá hefði umsóknin runnið
í gegn og þetta hefði aldrei orðið neitt
mál - en það vissi ég og ég skrifaði
yfirlýsinguna af því að ég vildi fá úr
þessu skorið.”
-En er þetta þá í rauninni löglegt
umsóknareyðublað, þar sem þú ert
ekki beðin um neinar upplýsingar sem
koma máli sem þessu við?
„Það er meðal annars um það sem
dómurinn fjallaði. Þar var komist að
þeirri niðurstöðu að Tryggingastofn-
un gæti ekki neitað mér um þessar
greiðslur. Núna er mér tjáð að búið
sé að breyta umsóknareyðublaðinu í
kjölfar þessa máls og nú er spurt hvort
umsækjandi fái einhverjar greiðslur
frá vinnuveitanda, enda er það fárán-
legt að þeir skuli fram að því ekki
hafa spurt frekar út í hlutina cn þeir
gerðu.”
í mál við Trygginga-
stofnun ríkisins
ður en Lára höfðaði mál gegn
Tryggingastofnun hafði hún far-
ið þá leið að vísa máli sínu til Trygg-