19. júní - 19.06.1991, Page 65
Texti: Anna Gunnarsdóttir
Kvennaráðgjöfin
- leið til sjálfshjálpar
Flestar ef ekki allar konur hafa
einhvern tíma á lífsleiðinni verið
í þeim sporum að finnast sér allar
bjargir bannaðar og hafa engan sér
til liðsinnis. Vandinn, sem þær standa
frammi fyrir, getur verið margs kon-
ar, en flestar konur lenda í vandræð-
um vegna einhvers í hjónabandi sínu
eða sambúð. Það sem margar konur
vita ekki er að hér á landi hefur í um
átta ár verið starfrækt kvennaráðgjöf,
sem hefur það markmið að leiðbeina
og liðsinna konum sem þurfa á aðstoð
að halda.
Að þessari kvennaráðgjöf standa
konur, sem eru lögfræðingar og fé-
lagsráðgjafar, ásamt laganemum og
félagsráðgjafarnemum. Kvennaráð-
gjöfin er þannig uppbyggð að fjórir
hópar skiptast á um að vera á skrif-
stofu ráðgjafarinnar, sem er í Hlað-
varpanum Vesturgötu 3, á þriðju-
dagskvöldum til klukkan 20 - 22 og
þangað geta konur hringt eða komið
til að leita ráða. Þarna ríkir alger
nafnleynd og trúnaður auk þess sem
ráðgjöfin er konum að kostnaðar-
lausu.
Símanúmerið er 91-21500 og í þetta
númer er einnig hægt að hringja á
öðrum tímum og leggja inn skilaboð
á símsvara, en þá hringja ráðgjafarnir
01 baka í þá konu sem hringdi hafi
bún óskað eftir því. Einnig geta kon-
Ur, bæði í Reykjavík og úti á landi,
skrifað Kvennaráðgjöfinni og annað
bvort fengið skriflegt svar eða í gegn-
uni síma, eftir því hvað hentar við-
komandi best. Kvennaráðgjöfin hefur
e>nn starfsmann í hlutastarfi á skrif-
stofunni á fimmtudögum frá klukkan
14-16.
Auk ráðgjafar við einstaklinga hafa
sjalfboðaliðar ráðgjafarinnar bent á
lciðir til úrbóta við lagasetningar þeg-
ílr til þeirra hefur verið leitað við gerð
nýrra laga. Kvennaráðgjöfin hefur
baldið tvö námskeið fyrir konur sem
standa í skilnaði. Námskeiðin standa
yfir nokkur kvöld og á þeim er farið
yfir lagalegar, félagslegar og fjárhags-
Iegar hliðar skilnaðar, auk þess sem
umræður fara fram um viðfangsefni
hvers fundar. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvenær næsta námskeið af þessu^
tagi verði haldið en hafi konur áhuga
geta þær hringt eða komið í Kvenna-
ráðgjöfina og látið skrá sig. Einnig
1 MBm
■ rVj.. 'Jm
SSÍ * 7NN fe'r. 1i i ^
lSI ■ rvjw JÍL\Í)\ \ÍÍI‘1N\ , IH Hli ,
Kvcnnaráðtdöfin cr i hlaðvarpanum.
beinir Kvennaráðgjöfin því til kvenna
sem sjá fram á vandamál, sem þær
geta ekki leyst einar síns liðs, að leita
tímanlega til ráðgjafarinnar til að
hægt sé að liðsinna þeim áður en allt
er farið úr böndunum.
Til Kvennaráðgjafarinnar leita
konur á öllum aldri og af öllu
landinu með margvísleg vandamál og
spurningar. Þegar kona kemur til við-
tals taka vanalega á móti henni bæði
félagsráðgjafarnemi og lögfræðinemi
og saman reyna konurnar að leysa
vandamálið. En eins og nafnið bendir
til er Kvennaráðgjöfin aðeins ráðgjöf
og stuðningur þannig að verði mál
viðkomandi konu ekki leyst þar þá
leiðbeina ráðgjafarnir konunum hvert
skal leita næst. Mjög algengt er að
konur hringi vegna fyrirhugaðs skiln-
aðar, hvort sem um er að ræða á
65