19. júní - 19.06.1991, Síða 72
Ársskýrsla stjórnar KRFÍ
dagskráin eftirfarandi. Fyrri hluta
laugardags: Staða kvenna á vinnu-
markaðnum og launamismunur karla
og kvenna.
Framsögu fluttu Helgi Tómasson
tölfræðingur hjá Kjararannsóknar-
nefnd og Hrefna Ólafsdóttir frá
B.H.M. Eftir framsöguerindi voru
fyrirspurnir og umræður.
Seinni hluti laugardagsins fór í að
ræða starfshætti og framtíðarsýn
KRFÍ og áttu sér stað fjörug og gagn-
leg skoðanaskipti. Ályktanir voru
samþykktar í sambandi við komandi
alþingiskosningar. Leikfimikennari
mætti á staðinn til að liðka fundar-
konur eftir langa setu en um kvöldið
var svo sameiginlegur kvöldverður
með dagskrá á vegum skemmtinefnd-
ar. Þær höfðu Herdísi Egilsdóttur
hljóðfæraleikara með í farteskinu og
varð úr þessu hin fjörugasta og
skemmtilegasta kvöldstund. Það er
skoðun allra, sem áttu hlut að máli,
að ferð þessi hafi tekist mjög vel og
vel þess virði að hafa slíkar helgar-
ferðir á dagskrá reglulega í starfsemi
KRFÍ
Heimsókn Muriel Fox í nóvember
Bandarísk kvenréttindakona, Muri-
el Fox, kom í heimsókn til íslands á
vegum Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna á fyrirlestrarferð um Evrópu.
KRFÍ hélt opinn fyrirlestrafund með
henni í bókasafni Menningarstofnun-
ar Bandaríkjanna þann 14. nóv. og
var hann vel sóttur.
Fyrirlesturinn fjallaði um samvinnu
kvenna á næsta áratug og kallaðist á
ensku; „Networking among women:
How women can help one another in
the 1990’s.“
Jólafundur 11. desember
aó Hallveigarstöðum
Jólafundur var haldinn að venju í
desembermánuði, þetta sinn þann 11.
des. Lesin var hugvekja og boðið upp
á ljúfar veitingar undir tónlistarflutn-
ingi og lestri úr nýjum bókum. Fund-
urinn var vel sóttur og hinn hátíðleg-
asti.
Útjgáfustarf
Arsrit félagsins 19. júní kom út í
júnímánuði. Efni blaðsins var fjöl-
breytilegt og áhugavert að vanda en
tæknilegum frágangi þess var því mið-
ur nokkuð ábótavant og kom það
ekki í ljós fyrr en of seint. Ritstjóri
var Magdalena Schram.
Næsta ritstjórn hefur verið skipuð
og er hún sem hér segir:
Ellen Ingvadóttir, ritstjóri
Anna Gunnarsdóttir
Bryndís Kristjánsdóttir
Erna Hauksdóttir
Magdalena Schram
Soffía Guðmundsdóttir
Unnur Stefánsdóttir
Vilborg Davíðsdóttir
Sigrún Gissurardóttir, auglýsinga-
stjóri.
Fréttabréf KRFÍ kom út eftir þörf-
um og er ritstjóri þess Inga Jóna
Þórðardóttir.
Saga Kvenréttindafélags íslands,
sem Sigríður Th. Erlendsdóttir, sagn-
fræðingur, hefur unnið að, verður
næsta útgáfuverk KRFÍ, en óvíst er,
hvenær af því verður.
Ýmis ráó og nefndir
KRFÍ á fulltrúa í hinum ýmsu ráð-
um og nefndum. Skal þeirra og starfs
þeirra getið hér í örstuttu máli.
1. Áfengisvarnarnefnd kvenna í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Fulltrúi okkar þar er Jóhanna Signý
Gunnarsdóttir. Nefndin gaf eins og
áður jólagjafir til gistiskýlisins í Þing-
holtsstræti og í fangageymsluna við
Hverfisgötu.
2. Landvernd.
Fulltrúi okkar þar er Valborg Bents-
dóttir. Aðalfundur félagsins var hald-
inn norður á Hrafnagili haustið 1990
en KRFÍ sá sér ekki fært að senda
fulltrúa á þann fund.
3. Friðarhreyfing íslenskra kvenna.
Fulltrúi þar er Júlíana Signý Gunn-
arsdóttir.
4. Landssamband gegn áfengisböl-
inu.
Fulltrúi þar er Dóra Guðmunds-
dóttir. Uppi eru hugmyndir um
nafnabreytingu þar þannig að nefndin
kallist Landssamband gegn vímuefn-
um og þykir það nær nútímanum.
5. Stígamót.
Okkar fulltrúi þar er Kristín Karls-
dóttir. Þar hefur verið unnið ótrúlega
mikið og þarft verk á stuttum tíma,
en athvarfið hefur verið starfrækt í
rétt rúmlega ár og þörfin mikil, því
miður.
72
1