19. júní - 19.06.1991, Side 77
Arsskýrsla stjórnar KRFI
Bandaríkjunum af 50.000 dollara
framlagi sem ein úr hópi bandarísku
lagði fram strax í byrjun. Þess vegna
var unnt að ráða framkvæmdastjóra
til verksins og tók Guðrún Agnars-
dóttir við því starfi frá og með 1.
október 1990. Til þess að halda kostn-
aði í lágmarki á meðan framvindan
var enn óljós féllst stjórn KRFI á að
leggja verkefninu til húsnæði og að-
stöðu á skrifstofu félagsins að Hall-
veigarstöðum og deildi Guðrún Agn-
arsdóttir skrifstofunni með Herdísi
Hall allt fram að áramótum. Auk
þess hafa nær allir fundir undirbún-
ingshópsins verið haldnir á Hallveig-
arstöðum.
I upphafi var ljóst að meginhluti
fjármögnunar þessa risavaxna verk-
efnis myndi koma frá Bandaríkjun-
um. Fram eftir hausti var þess beðið
með eftirvæntingu að ákveðin loforð
um framlög lægju fyrir þar eð tími til
undirbúnings var afar naumur og
engri íslensku kvennanna kom til hug-
ar að ráðast í 1000 kvenna ráðstefnu
án öruggrar vissu um fjármögnun.
Þegar þeir eindagar, sem settir voru,
runnu út án þess að nokkuð lægi fyr-
ir samþykkti hópurinn að farið skyldi
fram á frestun ráðstefnunnar um hálft
eða eitt ár. Mcð þau skilaboð fóru
svo þrjár konur héðan á fund með
bandarísku konunum í Washington
D.C. skömmu fyrir jól. Þær voru
Guðrún Agnarsdóttir, Jónína M.
Guðnadóttir og Oddný Vilhjálms-
dóttir. Þar var samþykkt að ráðstefn-
unni skyldi frestað í eitt ár, til júní
1992, en jafnframt skyldi tryggt að
undirbúningurinn yrði meira í sam-
ráði við konur frá þróunarlöndunum
og Austur-Evrópu heldur en ráðgert
var í fyrstu. Var ákveðið að halda
sérstaka undirbúningsráðstefnu með
völdum hópi 20 til 30 kvenna frá þess-
um svæðum heimsins. Bandarísku
konurnar tóku að sér að annast hana
og verður hún haldin í Washington í
sumar.
Síðan þessar ákvarðanir voru teknar
hefur starf undirbúningshópsins hér
heima legið niðri að mestu og er þess
nú beðið að fjáröflunin vestanhafs
verði endanlega tryggð svo hægt verði
að taka til við eiginlegan undirbúning
af fullum kröftum. Um þessar mund-
ir er framkvæmdastjórinn í hálfu starfi
og er að koma sér upp skrifstofu í
Hlaðvarpanum. En ljóst er að okkar
bíður mikið starf á næstu mánuðum
ef vonir okkar um stóra alþjóðlega
kvennaráðstefnu í Reykjavík árið
1992 eiga að verða að veruleika.
Vestnorræn jafnréttisráóstefna
Á döfinni er að halda jafnréttisráð-
stefnu á íslandi árið 1992 á vegurn
Vestnorræna þingmannaráðsins.
Guðrún Árnadóttir form. KRFÍ er
fulltrúi félagsins í undirbúningsnefnd,
sem tók til starfa í apríl n.k.
Lokaorð
Opnir félagsfundir hafa ekki verið
haldnir þessa þrjá fyrstu mánuði árs-
ins, en ýmislegt er þó á döfinni.
Fyrirhugað er að í apríl verði haldn-
ir tveir fundir með kvenframbjóðend-
um í sambandi við Alþingiskosning-
arnar 20. apríl. Annar er fyrirhug-
aður á Akureyri þann 7. apríl, en hinn
í Hafnarfirði, dagsetning enn óákveð-
in. í undirbúningi er alntennur fundur
um konur og EB. Fundur þessi verð-
ur haldinn í samvinnu við jafnréttis-
ráð, væntanlega í maí. Þá má ekki
gleyma að framundan er geysileg
vinna í sambandi við væntanlegt al-
þjóðamót og vestnorrænt mót, svo
eitthvað sé nefnt. Það er sýnt að það
þurfa margar hendur að vinna ef vel
á að vera.
Úr varastjórn hverfur Kristín Fly-
gering að eigin ósk. Er henni þökkuð
samveran og óskum við eftir henni í
starfi eftir sem áður hjá félaginu. Ást-
hildur Ketilsdóttir hverfur úr aðal-
stjórn að eigin ósk, en gefur kost á sér
í varastjórn og fögnum við því. Engin
þeirra er skipa ráð og nefndir fyrir
félagið færðust undan áfranthaldandi
starfi og er það vel.
77