19. júní


19. júní - 19.06.1996, Page 51

19. júní - 19.06.1996, Page 51
á, að þar sem myndir Mapplethorpes væru list þá gætu þær ekki verið klám, nema í augum þeirra sem væru blindir fyrir listrænu gildi mynda hans. Aftur á móti vildu sækjendur meina að myndirnar væru argasta klám undir yfirskini listar. Tjáningarfrelsi eða velsæmi? Slíkar deilur verða sérstaklega bitrar, þar sem aðilar saka hvor annan um lágkúru og brenglun. Listfylking- in saka hina um barbarisma og að vilja fótumtroða tjáningarfrelsið, verndarar velsæmis svara síðan með því að ásaka þá um að vera afbrigði- lega. Það er ekki nema von að sumir fórni höndum og segi að þetta sé allt spurning um persónulegan smekk. Reyndar hef ég heyrt klám og erótík skilgreint á þann veg, að erótík sé klám sem manni sjálfum líkar, en klám sé erótík sem öðrum líkar. I umræðu um klám lýstur tveimur málefnum saman, sem eru ekki óskyld, en krefj- ast ólíkra svara. Annars vegar er þörfin fyrir al- rnennar viðmiðunarreglur um velsæmi á al- mannafæri (dæmi um þetta eru viðmiðunar- reglur kvikmyndaframleiðanda um hversu mikla nekt má sýna), hins vegar er spurningum um það hvað klám er og hvernig maður getur þekkt það frá því sem er ekki klám, t.d. erótík (sumir vilja reyndar ekki gera neinn greinar- mun á klámi og erótík), eða listræn tjáning á því sem hinu líkamlega og kynferðislega. Velsæmi varðar fyrst og fremst samskipti fólks og um- gengni hvert við annað og tekur til kurteisi, til- litsemi og samskiptareglna við ýmsar kringum- stæður. Velsæmi er því siðferðilegt og pólitískt álitaefni fyrst og fremst, sem hvert samfélag menn leyfa sér í daglegu lífi. Ekki þarf að fletta mörgum listaverkabókum til að átta sig á því að nekt og kynlíf hafa ávallt talist til viðfangsefna skapandi manna, alveg frá því að mannskepnan fyrst risti í stein. I vestrænni myndlistarhefð frá endurreisnartímabilinu hefur mannslíkaminn verið talinn til háleitustu viðfangsefna mynd- listarmanna. Húmanistar og listamenn endur- reisnartímabilsins sóttu fyrirmyndir sínar til klassískrar menningar Grikkja og Rómverja. Eitt af leiðarljósum þeirra var Platón, sem lýsir því í Samdrykkjunni hvernig ástarþráin, Eros, sé frumhvöt mannsins, sem birtist ekki að- eins í kynhvötinni og líkamlegri þrá, held- ur einnig í göfugri hvötum, eins og siðferð- iskennd og viskuást. Fegurðin er vitinn sem vísar mönnum veginn í átt til þroska og fullkomnunar. I gegnum slíkar hug- myndir fundu húmanistar endurreisnar- innar leið til að tengja saman andlega veg- ferð mannsins og líkamlegar hvatir, án þess að gera úr þeim ósættanlegar and- stæður. Hin ídealíska fegurð mannslíkam- ans varð því nokkurs konar erótísk tálbeita til að laða menn í átt að æðri og andlegri fegurð. Lýsing og tjáning á fegurð manns- líkamans gat því gegnt siðferðilegu hlut- verki við að leiða ástríðurnar af brautum Kúpíds, hins holdlega og lostfengna, og í ált til kærleika sem beinist að andlegu at- gervi frekar en líkamlegu. Til að taka af allan vafa, að ekki lægu neinar vafasamar hvatir að baki, urðu myndir að hafa móralskan boðskap eða undirtón, sem yfirleitt var sóttur annað hvort í Biblíuna eða klassískan skáldskap. Varið ykkur á girndinni, varið ykkur á að gefa ykkur nautnunum á vald, varið ykkur á hégómleikanum; æskublóminn og fegurðin eru hverful o.s.frv. Þessi mórölsku mottó voru sett fram í líki allegóría, eða táknsagna, þar sem helstu persónurnar í hinum guðdómlega gleði- leik ástarinnar voru þau Venus, Afródíte, Eros, Amor, Kúpid, Bakkus, Seifur og rnargir fleiri. Alþýðulistinni var stillt upp sem andstæðu við 'göfuga’ erótík hástétta. Hún hefur ávallt verið uppfull af tilvísunum í líkamann og hið kynferðislega, m.a. í gegnum sögur og kvæði, skop og háð, klúryrði og blótsyrði, og sem hluti af skemmtunum og hátíðahöldum. Aðallinn skilgreindi siðfágun sína andstætt hinum óheflaða almúga. Þannig spannaði hið erótíska framhald á bls. 50 Ljósmyndin er tekin af glímumönnum áriö 1940. verður að koma sér saman um. Seinni spurning- in aftur á móti varðar innihald tiltekinna verka og hvers konar áhrif það hefur á áhorfandann. Þetta er því spurning sem varðar frekar gagn- rýni, fagurfræði eða jafnvel heimspeki. Oft lýst- ur þessu tvennu saman, þannig að menn nota velsæmisreglur til að gagnrýna listaverk, eða líta á velsæmisreglur sem ofríki og ógnun við tjáningarfrelsi. Agreiningur vaknar þegar menn eru ósammála um hvort eigi að hafa forgang, al- mennt velsæmi eða listrænt gildi verksins og tjáningarfrelsi einstaklingsins. Fegurð sem erótísk tálbeita Listamenn hafa lengst af leyft sér meira en 49 19 .jlírií RIT KVENRÉTTINDAFÉLAGS ISLANDS

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.