19. júní - 19.06.2002, Side 6
Tíkur teknar tali
-tikin.is, nýtt pólitískt vefrit hefur göngu sína
Eftir: Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur
Hinn 22. maí síðastliðinn hóf göngu sína nýr vefur sem ber
hið óvenjulega nafn tikin.is. Vefritið er ekki síst merkilegt
fyrir þær sakir að það eru einvörðungu konur sem að því
standa. Á tíkina skrifa konur sem deila þeirri skoðun að
einstaklingsfrelsi og jafnrétti séu grundvöllur heilbrigðs
samfélags og að allir skuli hafa jöfn tækifæri til að raungera
möguleika sína.
Vefurinn ætti að vekja eftirtekt þeirra sem áhuga hafa á
stjórnmálaumræðu og jafnréttismálum. Á tíkinni er að finna
fréttir, greinar, stutta mola og þar eru að auki spjallrásir þar
sem lesendum gefst tækifæri til að koma sínum sjónarmið-
um að.
Blaðamaður 19. júní hitti tvær þeirra kvenna sem að tíkinni
standa og átti við þær stutt spjall. Konurnar eru þær
Guðríður Sigurðardóttir, ráðningar- og starfsþróunarstjóri
hjá ANZA, og Inga Lind Karlsdóttir, íslenskunemi við Há-
skóla íslands.
Tíkin er óneitanlega óhefðbundið nafn á vefriti. Hvers
vegna þetta nafn?
Inga Lind: „Af því að hún er svo skemmtileg tík þessi pólitík.
Reyndar veltum við nafninu mjög lengi fyrir okkur og vorum
alls ekki vissar um að það væri heppilegt. Höfðum helst á-
hyggjur af því að við yrðum ekki teknar alvarlega sem ein-
hverjar „tíkur“ og enginn myndi heimsækja vefinn okkar.
Þessar vangaveltur eru allar á bak og burt núna og við sjáum
að nafnið bæði vekur athygli og býður upp á ýmsa möguleika
í orðaleikjum á síðunni. Og í framtíðinni munu synir okkar
geta, með stolti, sagst vera tíkarsynir..."
Guðríður: „Nafnið er að okkar mati sniðugt, mátulega
ögrandi og vekur eftirtekt. Tíkin hefur þar að auki augljósa
vísun í pólitík."
Pólitík, þjóðmál og menning
Allir pennar tíkurinnar eru konur, er þetta þá einvörðungu
jafnréttisvefrit?
Inga Lind: „Að miklu leyti snýst það um jafnrétti, já, en þó
ekki einvörðungu. Þar er mikið fjallað um pólitík og einnig
menningu og almenn þjóðmál."
Guðríður: „Hugmyndin að baki tíkinni var að koma fram
með miðil þar sem ungar hægrikonur geta kynnt skoðaðnir
sínar og tjáð sig um þau málefni sem eru efst á baugi hverju
sinni, jafnt varðandi efnahagsmál, utanríkismál, heilbrigðis-
og menntamál, sveitastjórnarmál og
jafnréttisbaráttuna og svo framvegis."
En er tikin.is sérstaklega ætluð kven-
kyns lesendum?
Inga Lind: „Alls ekki. Þótt konur standi
að baki henni þá er fróðlegt fyrir fleiri
en bara konur að lesa hvað þar stend-
ur. Sjónarmið ungra kvenna á hægri
væng stjórnmálanna hafa ekki farið
ýkja hátt í þjóðfélagsumræðunni,
hverju svo sem það sætir. En hér er
kominn vettvangur fyrir ungar hægri-
konur sem geta nú kynnt skoðanir sín-
ar og tjáð sig um þau málefni sem eru
efst á baugi.“
Guðríður: „Markhópurinn er allt ungt
fólk sem áhuga hefur á pólitík og þjóð-
félagslegri umræðu en sérstaklega vilj-
um við vekja athygli á ungum konum í
þessu samhengi. Vonandi mun vefur-
inn höfða til sem flestra."
Hvernig hefur undirbúningsvinnan
gengið?
Inga Lind: „Mjög vel og hún hefur
verið virkilega skemmtileg, eiginlega
eins og vel heppnuð meðganga
barns - nema fæðingin var ekki eins
erfið. Konurnar sem standa að
tikin.is eru samhentar og gríðarlega
áhugasamar um það sem þær eru að
gera.“
Guðríður: „Já, undirbúningurinn hefur
gengið glimrandi vel þó það sé alltaf
visst átak að koma svona vinnu af
stað. Við erum samstilltur hópur og
höfum skipt með okkur verkum og
þannig hefur þetta unnist mjög vel.“
Hverjar eru þessar ungu hægrikonur
sem standa að vefnum? Er vefurinn
tengdur einhverjum stjórnmálaflokki?
6