19. júní


19. júní - 19.06.2002, Side 31

19. júní - 19.06.2002, Side 31
Barbara Stanwyck sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í myndinni Double Indemnity (Billy Wilder, 1944), sem fjallar um konu sem fær tryggingar- sölumann til að drepa eiginmann sinn. Stanwyck lék reyndar oftast femme fatale allra leikkvenna og hún hlaut því hið skemmtilega viðurnefni „Barbara the Butcher", eða slátrarinn Barbara, því áhorfendur vissu að um leið og hún birtist á skjánum væri ekki langt í að blóðið færi að flæða. Framakonur geðsjúkar ófreskjur Staða kvenna í samtímanum er hluti af þeirri þró- un sem hófst á eftirstríðsárunum því nú er öldin önnur, flestar konur eru útivinnandi og margar þeirra kjósa að eignast ekki fjölskyldu heldur ein- beita sér frekar að starfsferli sínum. Hollywood kvikmyndir hafa hins vegar ekki fylgt þessari þró- un eftir, því bandarískar kvikmyndir þar sem sjálfstæðar konur eru sáttar við hlutskipti sitt eru sjaldgæfar. Enn gerir draumaverksmiðjan í Hollywood kröfu um að konur láti sig dreyma um karlmenn sem bjargi þeim frá því að pipra og stofni með þeim fjölskyldu. Samkvæmt þessum stöðluðu hugmyndum þá er hamingjan ekki fólg- in í sjálfstæði kvenna heldur þeirri vernd sem karlinn getur veitt þeim í skjóli fjölskylduumhverf- is. Sá draumaheimur sem Hollywood framreiðir á svo sykursætan hátt er ekki draumur kvenna um allan heim. Þvert á móti eru hún vitnisburður um karlrembulegan hugsunarhátt. Þetta misræmi milli birtingarmyndar kvenna í kvikmyndum sam- tímans og þeirrar þróunnar sem hefur orðið á lífs- viðhorfi kvenna almennt, sýnir svo ekki verður um villst að kvikmyndaiðnaðurinn er karlaheimur. Þær kvenpersónur sem eru nú ráðandi í kvik- myndum eru ekki alvöru konur ef mið er tekið af bandarísku þjóðfélagi í heild, hvað þá heiminum. Tálkvendið sem á rætur að rekja til eftirstríðsár- anna er aftur á móti frekar hin dæmigerða 21. ald- ar kona, sem vill fá að velja sér sinn lífsmáta án þess að viðhorf karlmanna móti hann. Þrátt fyrir það að samfélagið reyni að sætta sig við hina nýju stöðu kvenna þá eimir enn eftir af þeim ótta sem birtist fyrst í film noir myndum á fimmta áratugnum. Enn sýna kvikmyndir okkur karla sem eru ekki á varðbergi gagnvart hættuleg- um konum, þeir hafa ekki lært af sögunni og sjá því ekki að þær skyggja á draum þeirra um hina full- komnu fjölskyldu. Frægasta dæmið um þetta við- horf er vafalaust kvikmyndin Fatal Attraction (Adri- an Lyne, 1987), þar sem Michael Douglas leikur manngrey sem lætur tálkvendið Glenn Close nærri skemma hið fullkomna fjölskyldulíf hans. í mynd- inni er Close hin fullkomna framakona sem veit hvað hún vill, kann að vefja karlmönnum um fingur sér og sættir sig ekki við höfnun. Eftir stutt ástar- ævintýri, sem skilur hana eftir ófríska og ástfangna upp fyrir haus, vill Douglas hins vegar ekkert með hana hafa. Við það sturlast konan, sem sést m.a. af því að hún sýður gæludýr fjölskyldunnar, litla kanínu, í potti. Hin fluggáfaða, fagra starfsframa- kona reynist því ekki aðeins vera geðveik heldur segir hún dýraverndunarsamtökum stríð á hend- ur!!! Tálkvendum fækkandi fer Undanfarin ár hefur ekki borið eins mikið á fram- leiðslu mynda þar sem tálkvendi eru fyrirferða- mikil. Það má velta því fyrir sér hvort slík þróun sé jákvæð eða neikvæð. Kannski mógúlarnir í Hollywood séu einfaldlega hættir að kynda undir ótta karlmanna við hina sjálfstæðu starfsframa- konu? Eða ætli um sé að ræða hina endanlegu þöggun kvenna, því ef ungar konur fá ekki að sjá annað í kvikmyndum en fjölskyldukonur og kon- ur sem hafa alla burði til að verða sjálfstæðar en vilja samt láta bjarga sér þá verður framtíðarsýn þeirra ekki björt yfirlits. Er það ekki frekar já- kvætt fyrir okkur sem höfum gaman af kvikmynd- um og erum útivinnandi konur að hafa sjálfstæð- ar framakonur á hvíta tjaldinu sem fyrirmyndir, jafnvel þótt þær séu pínkulítið klikkaðar út í aðra röndina? Eða hvor ætli sé betri fyrirmynd, tál- kvendið í Fatal Attraction eða gleðikonan með gullhjartað í Pretty Woman (Garry Marshall, 1990)? □ Dan Gallagher (Douglas) róar Alex Forest (Glen Close) sem er trufluð og í sjálfmorðs- hugleiðingum. Fatal Atraction (Adrian Lyne, 1987)

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.