19. júní


19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 35

19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 35
Hvað verður þá um börnin? Það er alveg Ijóst að þegar tveir fara saman með forsjá, hvort sem það er fólk í sambandi eða fólk sem er skilið að skiptum en fer sameiginlega með forsjá, þá verður barnið hjá hinum forsjáraðilanum meðan hitt situr í fangelsi. Málið verður hins vegar flóknara þegar einstætt foreldri þarf að sitja inni. Barnaverndaryfivöld skipta sér ekki sjálfkrafa af börnum einstæðra foreldra sem hefja afplán- un. Reyndin er hins vegar sú að í langflestum tilfellum fer kerfið samt sem áður í gang. Hér á landi gildir ákveðin tilkynningarskylda. Öllum ber skylda að tilkynna það til barnaverndaryfir- valda ef grunur leikur á að barn sé vanrækt á einhvern hátt. Þessi skylda hvílir sérstaklega á stéttum eins og lögreglu, leikskólakenn- urum, kennurum og læknum. Einnig ber að athuga að foreldrum ber skylda að tilkynna barnaverndaryfir- völdum ef einhverjum öðrum er falin umsjón barna lengur en sex mánuði í senn. Það á líka við um ef barn fer til afa og ömmu eða annarra ætt- ingja. Spurning er hvort for- eldri sinni þessari tilkynn- ingarskyldu, enda verð- ur að telja að þetta sé ekki almennt vitað. Það er því Ijóst að barnaverndaryfirvöld koma að málum en eftir mismunandi leiðum. Oft er það þannig að foreldr- ið sjálft hefur samband við barnaverndar- nefnd til þess að fá aðstoð við að koma barni sínu fyrir meðan það afþlánar refsi- _ __ vist. í barnaverndar- lögum eru m.a. ákvæði um samvinnu fangelsis- málayfirvalda og lögreglu við barnaverndar- nefndir. Það að fangelsismálayfirvöld eru nefnd, bendir til þess að löggjafinn hafi gert ráð fyrir því að fangelsismálastofnun tilkynni barna- verndarnefndum þegar til stendur að einstætt foreldri hefji afplánun og er það þannig í raun, þ.e. þegar málið er ekki þegar komið í hendur barnaverndaryfirvalda. Oft er um annan vanda að ræða samhliða afbrotinu, t.d. áfengis- eða fíkniefnaneyslu og afskipti hafin af fjölskyldunni þess vegna. Eins gæti verið að lögregla verði þess áskynja við rannsókn á broti að um ein- stætt foreldri er að ræða sem þarf á aðstoð að halda við umönnun á barni. En það sem má segja að sé útgangspunktur- inn í þeirri stöðu sem við erum að tala um, þ.e. að einstætt foreldri þurfi að afplána refsivist, er að foreldrið getur sjálft séð um það hver sjái um barnið á meðan. Barnaverndaryfirvöld fylgjast hins vegar með og samþykkja slíkan ráðahag sé alveg Ijóst að slík ráðstöfun sé trygg. Móðir eða faðir geta þannig falið t.d. afa eða ömmu umsjá barnins, eða fengið einhvern sem barnið þekkir vel til að sjá um það. Barna- verndaryfirvöld þurfa hins vegar að samþykkja slíka ráðstöfun. Sé þörf á frekari afskiptum, þá annars vegar vegna þess að foreldrið finnur engan sem það treystir til að sjá um barnið eða þá að barnaverndaryfirvöld telja ráðstöfunina sem það velur ekki trygga eða í þágu hagsmuna barnsins, þá kemur til þeirra aðgerða að setja barn í fóst- ur. Fóstur getur verið tímabundið eða varan- legt. Tímabundnar ráð- stafanir eru sjaldnast gerðar fyrir lengri tíma en eitt ár. Þurfi barn að vera lengur er um var- anlega ráðstöfun að ræða. í tengls- um við þetta má nefna að fang- elsisdómar eru yfirleitt styttri en eitt ár. Á árunum 1989-1999 er hlut- fall lengri dóma á bilinu 9% til 17,9% og er þá átt við alla dóma burtséð frá kyni. Enn ein teg- und ráðstafana er svo að setja barn til svokall- aðra vistforeldra en þau taka börn í skemmri tíma en 6 mánuði, t.d. eitt sumar. Þess má geta að ef foreldri ákveður að sjá sjálft um ráðstöfunina þá fær fósturforeldrið engar greiðslur frá ríkinu eða neitt slfkt, en sjái barnaverndaryfirvöld um ráðstöfunina þá fær fósturforeldrið greiðslur fyrir umönnunina. Til 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.