19. júní - 19.06.2002, Qupperneq 38
Varið ykkur konur!
Silíkonbrjóst í gær - silikona í dag!
Eftir: Nínu Rúnu Kvaran blaðamann og háskólanema
Konur góðar,
þetta er von-
laus barátta
og þið ættuð
bara að gefast
upp núna
strax því hvað
er par af si-
líkonbrjóstum
í samanburði
við heila konu
úr silíkoni!
Eins og flestir vita þá hefur konan í gegnum aldirnar verið kyngerð á
marga vegu, en eins þversagnakennt og það virðist hljóma þá hefur á-
herslan á konuna sem kynveru sjaldan verið eins mikil og nú á dögum
framþróunar og kvenfrelsis. Vissulega hefur hlutverk konunnar í nútíma-
samfélagi tekið stakkaskiptum miðað við það sem var en þrátt fyrir að nú
séu gerðar kröfur til kvenna um að vera sjálfstæðar, vel menntaðar og
framagjarnar þá hafa útlitskröfur ekkert minnkað og konur ganga sífellt
lengra í því að ná útliti hinnar „fullkomnu" kynveru. Konur í kynlífsiðnað-
inum hafa löngum uppfyllt þessar kröfur með sínar löngu gervineglur,
aflitað hár, tálgaða líkama, hárlaus kynfæri og varir og brjóst uppblásin
með silíkoni. En það eru ekki lengur bara klámleikkonur sem stæra sig af
slíku útliti heldur er það að verða æ algengara að „venjulegar" konur
leggist undir hnífinn í þeim tilgangi að „fullkomna" líkama sinn frekar og
auka sjálfstraustið með til dæmis fitusogi eða silíkonpúðum í brjóstin. En
konur góðar, þetta er vonlaus barátta og þið ættuð bara að gefast upp
núna strax því hvað er par af silíkonbrjóstum í samanburði við heila konu
úr silíkoni! Já, þetta er því miður bláköld staðreynd en þær eru komnar á
markaðinn. Brúðu-beibin eða Real-Dolls eins og þær heita á frummálinu
hafa brotið blað í sögu kynlífsiðnaðarins og steypt konum af holdi og
blóði af stóli. Núna geta kynsveltir karlar einfaldlega keypt sér hina full-
komnu konu, sérhannaða úr silíkoni og heimsending í gjafapakkningu er
innifalin í verðinu!
Brúðu-beibin
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér nánar allt um brúðu-beibin geta farið á
heimasíðuna sem selur brúðurnar www.realdoll.com. Þar er að finna allar
upplýsingar um þetta tækniundur sem ollið hefur byltingu á stefnumóta-
markaðinum. Núna er það algjör óþarfi að fara í gegnum hið þreytandi og
erfiða ferli að finna sér konu, stefnumót og blómvendir heyra sögunni til og
rómantík hefur tekið á sig nýjan blæ. Þú hefur bara samband við www.real-
doll.com og finnur hinn fullkomna maka. Eða eins og þeir segja sjálfir: „Hafi
þig einhvern tímann dreymt um að skapa hina fullkomnu konu fyrir sjálfan
þig, þá ertu kominn á rétta staðinn." Notuð hefur verið nýjasta brellutækni
frá Hollywood til þess að hanna gervikonur sem eru eins raunverulegar og
hugsast getur. Þessi hönnun býður upp á heimsins fullkomnustu ástar-
dúkku. Brúðu-beibin hafa „beinagrind" sem er nánast fullkomin eftirlíking
af kvenbeinagrind og er því hægt að stilla þeim upp í allar stellingar sem
mannslíkaminn ræður við. Þær eru gerðar úr gæðasilíkoni sem er lyktar- og
bragðlaust, nema ef væri smávægilegur ávaxtakeimur. Silíkonið er afar
sterkt og þolir meðal annars 400° hita og það má hita brúðuna upp undir
rafmagnsteppi til þess að gefa líkamanum eðlilegan líkamshita svo að það
sé nú notalegra fyrir karlana að kúra sig upp við „konuna" sína á köldum
vetrarnóttum. Silíkonið hefur mjög eðlilega áferð og hristist og bylgjast á
öllum ,,réttu“ stöðunum.
38