19. júní


19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 44

19. júní - 19.06.2002, Blaðsíða 44
Harlequin bækurnar eru ekki seldar í dýrum bóka- búðum heldur í sjoppum, bensínstöðvum, járn- brautastöðvum, í kjörbúðum, og mikið af bókum er sent beint til lesendanna sem eru áskrifendur að sínum uppáhaldsseríum. Allt er gert til að halda kostnaði niðri og eins og sjá má eru þessar bækur ekki auglýstar eins og bókmenntir heldur vara. Það þýðir að útlit bókarinnar skiptir miklu máli. Eins og auglýsingin verður hún að vekja athygli kaupand- ans og næga forvitni til aó hann kaupi bókina. En það er ekki nóg. Lesendur vilja fá góðar sögur skrifaðar af góðum höfundum. Þess vegna fer fram stöðug nýliðun hjá forlögunum sem auglýsa öll eft- ir nýjum höfundum og bjóðast til að kenna þeim og þjálfa. Ásútgáfan á Akureyri gefur Harlequin ástarsög- urnar út hérlendis. Hún gefur út fjórar skáldsögur í jafn mörgum seríum (ástarsögur, ástir og afbrot, ör- lagasögur og sjúkrahússsögur) mánaðarlega. Hver titill kemur út í 2800 eintökum. Hluti upplagsins er seldur beint til áskrifenda sem kaupa allar fjórar bækurnar í pakka og pakkarnir eru líka seldir í bókabúðum auk stakra bóka. Nýr skammtur kem- ur út 20. hvers mánaðar. Óhætt er að fullyrða að Rauðu ritin frá Ásútgáfunni séu mest lesnu bækur landsins. Forvitni vakin George Paizis bendir á að tilvonandi lesandi velur eða hafnar ástarsögu á grundvelli kápumyndarinn- ar á bókinni. Ef ástarsagan er vara liggur í augum uppi að hana þarf að pakka fallega inn svo að hún veki áhuga lesandans. Örlagasagan Nágranni í hættu eftir Joanna Way- ne er ein af bókunum frá Harlequin forlaginu, gefin út af Ás-útgáfunni (20.apríl 2002), í þýðingu Hönnu M. Sigurðardóttur. Forsíðumyndin á íslensku þýð- ingunni er sú sama og á ensku útgáfunni og hún er gott dæmi um það hve merkingarþrungin kápu- myndin getur orðið á fjöldaframleiddum ástarsög- um. Á kápumynd ástarsögunnar er söguhetjan langoftast sýnd í allri sinni dýrð og með henni er oft- ast karlhetjan og stundum er keppinautur hans eða hennar. Myndbygging ástarsöguforsíðunnar er ekki flókin en þar skiptir máli hver horfir á lesanda, hver snýr sér undan, hver hallast að hverjum, hver horfir á hvern og hver snertir hvern. Eins og við sjáum á kápumynd Nágranna íhættu lýtur karlmaðurinn yfir konuna, hann er hærri og herðabreiðari og staða hans er mjög ráðandi á myndfletinum. Hann fyllir upp í meira en (sinn) helming af myndinni. Hann er með lokuð augu og er greinilega á valdi ástríðna sinna með það eitt í huga að kyssa stúlkuna. Hann heldur stórri hendinni um háls hennar og tak hans er ekki laust við að vera ógnandi af því að hann er svo stór og yrði ekki skotaskuld úr því að kyrkja svo fíngerða stúlku ef hún harðneitaði allt í einu að kyssa hann. Hún hallar sér lítillega aftur á bak, frá mitti, þannig að efri hluti líkamans er í varnarstöðu um leið og hún brosir og horfir Ijómandi augum á hann. Hún miðlar þannig alveg tvöföldum skila- boðum eða „haltu mér -slepptu mér,“ hún er sið- prúð og grandvör en mun gefa sig á vald kossum unga mannsins fyrr eða síðar. Sambandsleysi Ekkert samband er sjáanlegt á milli myndarinnar framan á kápunni og titils sögunnar en það er al- vanalegt á forsíðum ástarsagna og virðist ekki trufla neinn. Algengast er að aðalpersóna á forsíðu snúi sér hvorki að né frá lesanda og þó að hún brosi er það oftast dularfullt bros með lokuðum munni og ó- ræðum svip. Stundum er þó stúlkan ástríðufull með lokuð augu og bjóðandi varir en oftar með opin eða hálflokuð augun og horfir dreymandi út í bláinn. Hún hallast að karlmanninum í leit að styrk og vernd, hann horfir á hana - hún á lesanda eða út í buskann. Útlit bæði karl- og kvenhetju mótast af kvik- myndaleikurum, tískumyndum og auglýsingum auk vinsælla fjölmiðlastjarna. Það er fyrst og fremst gert út á staðlaðar fegurðarhugmyndir úr tískublöð- um - ekkert óvenjulegt eða persónulegt eða smá- gallað má sjást heldur fríðleiki sem allir þekkja og taka gildan. Ef kápumyndir ástarsagna eru skoðað- ar frá lengra tímabili má glöggt sjá hvernig hinar fögru konur breytast - þær eru með þykkari varir, enn hærri kinnbein og stærri augu núna en fyrir tutt- ugu árum en klassíska síða hárið og kvenlega útlit- ið heldur sér. Þannig sýnir kápumynd ástarsög- unnar Draumsýna par í siðprúðum faðmlögum, stúlkan heldur laust um háls unga mannsins sem heldur laust um mitti hennar. Líkamar þeirra snert- ast varla og alls ekki fyrir neðan mitti. í baksýn er Golden Gate brúin yfir til San Fransisco og róman- tískt sólarlag. Parið á myndinni á fátt sammerkt með söguhetju okkar í bókinni, Rósu, sem er tutt- ugu og sex ára, mjög grönn, með stutt dökkt og krullað hár öfugt við karlhetjuna sem sagður er Ijós- hærður, þrjátíu og sex ára og einn og níutíu á hæð. Þetta er hvorki í samræmi við efni bókar né for- síðumyndahefðina eins og Paizis lýsir henni (Paizis: 1998, 56) því að kvenhetja á forsíðumynd er yfirleitt 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.