19. júní - 19.06.2002, Side 45
fimm árum eldri en fyrirmynd hennar í bókinni og
karlhetjan er fimm árum yngri. Þannig eru konurn-
ar í sögunum yfirleitt um 20-25 ára en karlarnir um
30-35. Karlarnir eru þetta gamlir af því aö ef konan
á að líta upp til þeirra og dást að þeim fyrir völd
þeirra og auðæfi verða þeir að vera af barnsaldri en
þó á besta aldri.
Söguhetjan á kápumyndinni á að vera falleg en
ekki of falleg, karlhetjan ríkur en ekki of ríkur, falleg-
ur en ekki sykursætur og sköllótt karlhetja er jafn ó-
hugsandi og þybbin kvenhetja á bókarkápu.
Kvenhetjan
Eins og gefur að skilja skiptir persónusköpun miklu
máli í ástarsögunni. Á henni veltur það hvort við
getum samsamað okkur aðalpersónu, fundið til
með henni og þar með hvort sagan heppnast eður
ei. Nafn persónunnar skiptir miklu máli, útlit, vöxt-
ur og skapgerð, stétt og staða.
Danielle í Nágranni í hættu er mjög fögur, dökk-
hærð með mikið óstýrilátt hár og glæsilega vaxin.
Hún klæðist bara gallabuxum og bol þangað til hún
kaupir kjól fyrir fjölskylduveisluna í sögunni. Rósa í
Draumsýnum eyðir hins vegar töluverðum tíma í að
velja föt og skreyta sig um leið en það er undirstrik-
að að hún hafi megna andúð á tildurrófum sem hafi
dýran smekk og hugsi aðeins um að líta vel út.
Rósa er komin yfir það. Danielle í Nágranni íhættu
er barngóð, syngur vel, er húsleg og vílar ekki fyrir
sér að hreingera kofa Miltons frænda síns þó að
hann sé óíbúðarhæfur, rafmagnslaus og niðurnídd-
ur og þó að hún brjóti allar neglurnar. Henni tekst
að gera kofann snotran og heimilislegan. Sömu-
leiðis tekst henni að baka smákökur þrátt fyrir raf-
magnsleysið. Danielle getur verið fyndin og er þar
að auki hugrökk og slagsmálahetja ef hún þarf þess
þó að hún sé alla jafna mjög varnarlaus og höfði
sterkt til verndartilfinningar karlhetjunnar Langley.
Þetta síðasta skiptir mjög miklu máli. Aðalper-
sónan verður nefnilega ekki aðeins að höfða til karl-
hetjunnar heldur til lesandans - hún verður að vekja
bæði aðdáun hans og samúð fyrir hugdirfsku sína
og styrk en vegna þessa á hún skilið að vera vernd-
uð og elskuð.
Karlhetjan
Karlhetjan verður að vera karlmannlegur, hann er
oft fimmtán árum eldri en konan í bókum frá 1970
til 1980 en núna hefur þetta jafnast og bilið er kom-
ið niður í fimm til tíu ár og fer minnkandi. Aldurs-
munur verður þó að vera til að saklausa stúlkan geti
litið upp til elskhugans lífsreynda. Auk þess á karl-
hetjan að vera stæltur, vel vaxinn, hávaxinn (það er
skilyrði), menntaður og metnaðarfullur og ráðríkur
og/eða yfirráðagjarn, þögull og harður í horn að
taka en undir hinu hrjúfa yfirborði slær gullhjarta.
Hetjan getur verndað kærustuna og hann er fullur af
ábyrgðartilfinningu gagnvart öllu því sem honum er
trúað fyrir, bæði börnum, gamalmennum og kon-
um. Hann er áreiðanlegur og traustur. Þó að hann
sé kynþokkafullur og mikill elskhugi er það fyrst og
fremst hans innri maður sem söguhetja okkar fellur
fyrir.
Karlhetjan í ástarsögunum sýnir ekki strax að
hann sé gull af manni. Fyrst virkar hann mjög
hrokafullur, hann kemur fram eins og karlremba,
jafnvel kvenhatari og er oft verulega andstyggilegur
jafnvel beinlínis sadískur við söguhetju okkar á
þeirra fyrsta fundi. Það er vegna þess að hann ger-
ir sér einhverjar ranghugmyndir um konuna sem
byggðar eru á fölskum forsendum og/eða röngum
ályktunum. Hann heldur að hún sé laus á kostun-
um, hún sé með öðrum manni, sé að reyna við
W7 ' \|
f ! JBm'.I
Á kápu Draumsýna er par í siðprúðum faðmlög-
um, stúlkan heldur laust um háls unga mannsins
sem heldur laust um mitti hennar. Likamar
þeirra snertast varla og alls ekki fyrir neðan mitti.
45