19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.2002, Qupperneq 46

19. júní - 19.06.2002, Qupperneq 46
Á kápu Nágranna í hættu lýtur karlmaðurinn yfir konuna, hann er hærri og herðabreiðari og staða hans er mjög ráðandi á myndfletinum. Konan hallar sér lítillega aftur á bak, frá mitti, þannig að efri hluti líkamans er í varnarstöðu um leið og hún brosir og horfir Ijómandi augum á hann. hann til að komast yfir líkama hans, peninga eða völd, hún geti ekki leyst vandamálin sem hún standi frammi fyrir, sé ekki húsleg, barngóð, blíð- lynd o.s.frv. Nú eru góð ráð dýr fyrir söguhetju okk- ar því að hún verður að sanna að hún sé ekki það sem hún er ásökuð um. Hún á um fjóra kosti að velja: 1. Sýna veikleika og sýna að hún þarfnist hetjunn- ar til að hjálpa sér og vernda sig. 2. Sýna að hún sé ekki eigingjörn og frek heldur fórnfús og Ijúf og þetta sýnir hún með því að fórna sér fyrir manninn sem hún elskar. 3. Sýna að hún viti að henni sé ekki ætluð frægð og frami í opinbera lífinu heldur sé hennar svið heimilið og það muni hún velja hvað sem tautar og raular. 4. Sýna að hún sé myndarleg húsmóðir sem taki heimilið og manninn fram yfir allt annað, sama hvaða menntun og tekjur hún hefur þegar hún hittir hann. Vægi þessara þátta hefur verið að breytast og þó að það skipti enn miklu máli að stúlkan sé barngóð og fórnfús fer það í vöxt að hún sé treg til húsverka og vilji halda starfi sínu Frá því að vera afar siðprúð í eldri ástarsögum þykir nú við hæfi að stúlkan og kærastinn elskist, oft með ærslum - eftir mislangt tímabil þar sem þau halda aftur af fýsnum sínum, bæði eða til skiptis, og sýna mikinn siðferðisstyrk. Öskubuska í bókinni Reading the Romantic Heroine (1985) seg- ir Leslie Rabine að það liggi Ijóst fyrir að endalaus- ar endurtekningar Harlequin sagnanna nái að segja eitthvað sem margar konur í dag vilja og þurfa að heyra. Hún segir að mikill meirihluti ástarsagnales- enda í dag eða 40-60% lesenda séu útivinnandi konur. Þær lesi Harlequin bækurnar og vilji að söguhetjan sé sterk og berjist fyrir því sem hún vill fá. Hvað vill konan fá? Hún vill fá viðurkenningu á því, segir Rabine, að hún sé einstök og framúrskar- andi manneskja. Sá sem getur gefið henni þessa viðurkenningu er karlhetjan. Karlhetjan getur viður- kennt hana og hafið til vegs af því að hans er vald- ið og hann er oft yfirmaður stúlkunnar eða hærra settur en hún í öðru fyrirtæki. Síðustu þrjátíu árin hefur orðið samþjöppun í at- vinnulífinu á Vesturlöndum, fyrirtæki eru sameinuð, tölvuvæðingin hefur gert vinnustaðina ýmis dreifð- ari og fámennari eða fjölmennari og ópersónulegri. Konurnar sem vinna við skrifstofustörfin, í bönkun- um, heilsu- og menntunargeiranum og verslunum hafa ekki farið varhluta af þessari hátæknivæðingu og firringu á vinnustað og þær eru stór hluti af les- endum Harlequin. Flestir karlar draga skýra línu á milli vinnu og heimilis en það gera konur síður seg- ir Rabine. Þær þurfa að þjóna körlunum sem vald- ið hafa á vinnustað og oft verða þær að þjóna öðr- um karli heima hjá sér. Um leið og vinnustaðirnir verða ópersónulegri verður tilfinningin um valda- leysi og tilfinningin af að vera einskis virði áleitnari (- Rabine: 1985, 165-175). Janice Radway gerði fræga könnun á lestri ástar- sagna sem lauk árið 1983 og birtist í bókinni Read- ing the Romance (1984). Konurnar sem hún talaði við sögðu að þær læsu ástarsögur til að slappa af og til að flýja. Þegar þær voru spurðar að því hvað þær væru að flýja nefndu þær „álag“ og „streitu" sem þær upplifðu sem eiginkonur, mæður og úti- vinnandi konur. „Það sem Harlequin ástarsögurnar 46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.