19. júní


19. júní - 19.06.2002, Side 58

19. júní - 19.06.2002, Side 58
Forstöðumaður Krossins, Gunnar Þorsteins- son, segir „Krossinn vera eina kristna söfnuðinn á íslandi þar sem er jafnstaða karla og kvenna sbr. „í Kristi er ekki karl eða kona....“.“ í Krossinum eru skýr hlutverkaskipti kvenna og karla sam- kvæmt rannsókn Margrétar Jónsdóttur. Karlar predika yfirleitt á samkomum þótt þar séu undan- tekningar á og þeir kosnir í stjórn safnaðarins. Konurnar sjá um barnagæslu á samkomum og kenna yngri börnunum. Þær eru líka öflugar í bænahaldi og þykja jafnvel næmari á anda Guðs en karlarnir. Að sama skapi eru þær ófeimnar við að láta skoðanir sínar í Ijós á fundum og starfa í ýmsum nefndum á vegum safnaðarins. Margrét bendir enn fremur á að sú skoðun sé almennt ríkj- andi innan Krossins að hlutverk og stöður fólks tengist kynferði þeirra og því beri körlum og kon- um að annast ólík mál. Hjónabandsskyldur eiginkvenna í söfnuðum Nú má alveg gera sér í hugarlund að innan söfn- uða sem aðhyllast kristna bókstafstrú ríki óskert húsbóndavald mannsins yfir heimili sínu og fjöl- skyldu. T.d. segir í Efesusbréfinu svokallaða (5:21-24), sem Þáll postuli skrifaði Efesusmönn- um, að kona eigi að vera eiginmanni sínar undir- gefin, því hann sé höfuð hennar eins og Kristur er höfuð karlsins. Hvaða skyldum hefur því gift kona innan trúarsafnaðanna að gegna gagnvart eigin- manni sínum? Gunnar Þorsteinsson, forstöðumaður Krossins, telur eiginkonuna einfaldlega eiga að standa með manni sínum í blíðu og stríðu og Svanberg K. Jakobsson, kynningarfulltrúi Votta Jehóva, segir Biblíuna kveða á um að hjón eigi að elska og virða hvort annað. Vottarnir virðast líka vera hlynntir þátttöku kvenna á atvinnumarkaðinum því Svanberg segir engar reglur vera settar um það hvort annað eða bæði hjónanna eigi að vinna úti. Samkvæmt hon- um er barnauppeldið og heimilið sameiginleg á- byrgð þeirra. Guðlaug Tómasdóttir, rekstrarstjóri Vegsins, segir að fullt jafnræði sé með hjónum og kveður 58

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.