19. júní - 19.06.2002, Síða 63
ásættanlegt. Þar við bætist að rannsóknir sýna að
mörg störf á vinnumarkaði sem einkum eru bund-
in við konur fela í sér sérstaka áhættuþætti varð-
andi starfsskilyrði og aðbúnað á vinnustað.
Krefjast verður þess að vinnan og starfsum-
hverfi kvenna jafnt og karla uppfylli kröfur um
góðan aðbúnað og vinnuvernd. Einnig verður að
vinna að því að samfélagsleg skipulagning vinn-
unnar, úti á vinnumarkaðnum og inni á heimilun-
um, taki mið að kröfunni um jafnan rétt og jafna
möguleika kynjanna.
Þau skilyrði og umhverfi sem samfélagið býr
fjölskyldunni, foreldrum og börnum þeirra, skipta
miklu fyrir velferð þeirra og jafnréttisbaráttuna.
Fjárhagslegur stuðningur við barnafjölskyldur, ör-
uggt húsnæði, næg og góð dagvistun og heils-
dagsskóli eru allt þættir sem skipta miklu fyrir
jafnréttisbaráttuna.
Jafnréttisbaráttan hefur skilað mikilvægum á-
föngum en það er enn mikið verk að vinna. Sam-
staðan mun skila árangri.
Baráttukveðjur,
Alþýðusamband íslands - BSRB
Jafnréttisstofa - Kvenréttindafélag íslands
Reykjavíkurborg - SÍB
Ályktun
Fjölskylduráðstefna Kvenfélagasambands íslands, Kvenréttindafélags íslands, Bandalags kvenna
í Reykjavík og Sambands sunnlenskra kvenna skorar á ríkisstjórn og sveitarfélög að marka sér
skýra stefnu í málefnum fjölskyldunnar.
Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins. Innan fjölskyldunnar vaxa einstaklingar og þroskast og
búa sig undir lífið. Ríki og sveitarfélög þurfa að standa vörð um fjölskylduna og búa henni þau
skilyrði sem farsælust eru til að hún geti sinnt hlutverki sínu á sem bestan hátt.
Með markvissri stefnumótun í málefnum fjölskyldunnar er horft til framtíðar og leitast við að
skapa þau skilyrði sem vænlegust eru til árangurs. Mikilvægt er að fjölskyldustefnan taki tillit til
allra fjölskylduforma og að hún sé endurmetin í samræmi við aðstæður og tíðaranda hverju sinni.
Eitt mikilvægasta verkefni opinberra aðila að sinna málefnum fjölskyldunnar, því hún er horn-
steinn samfélagsins. Með farsælu fjölskyldulífi þróast farsælt samfélag.
63