19. júní


19. júní - 19.06.2002, Síða 67

19. júní - 19.06.2002, Síða 67
Skýrsla formanns Kven- réltindafélags Islands 2001-2002 Á aðalfundi Kvenréttindafélags íslands sem haldinn var þann 23. mars 2001 var kosinn nýr formaður, varaformaður og fulltrúar í stjórn fé- lagsins í stað þeirra sem létu af störfum. Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skipti stjórnin með sér störfum og var þá þannig skipuð: Framkvæmdastjórn: Þorbjörg Inga Jónsdóttir, formaður Erla Hulda Halldórsdóttir, varaformaður Margrét Kr. Gunnarsdóttir, ritari Kristín Þóra Harðardóttir, gjaldkeri Ragnhildur Guðmundsdóttir, meðstjórnandi Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, meðstjórnandi Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, meðstjórnandi Auk fulltrúa í framkvæmdastjórn sitja eftir- taldar í stjórn félagsins, stórustjórn: Guðrún Jónsdóttir fyrir Vinstri hreyfinguna - Grænt framboð Helga Guðrún Jónasdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn Rósa Erlingsdóttir fyrir Frjálslynda flokkinn Sigurveig Björgvinsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn Bryndís Kristjánsdóttir fyrir Samfylkinguna Á aðalfundinum 2001 tóku gildi breytingar á lög- um félagsins sem höfðu það einkum að markmiði að skýra reglur um ákvarðanatöku og stjórnskipu- lag félagsins og í samræmi við þær eru stjórnar- konur félagsins nú alls 13, þar af 5 frá þeim flokk- um sem eiga sæti á Alþingi. Þá eru ekki lengur kjörnir varamenn í framkvæmdastjórn, heldur eru nú alls 7 fulltrúar í framkvæmdastjórn og engir til vara. Er það von þeirra sem stóðu að þessum breytingum að þær leiði til meiri virkni stjórnar- manna í störfum félagsins og auðveldi nýjum full- trúum þátttöku. Verkefni síðasta starfsárs hafa verið mörg og margvísleg eins og venja er til. Þá hafa verkefni varðandi rekstur félagsins og Hallveigarstaða ver- ið tímafrek og rétt að fjalla um þau sérstaklega. Eftirfarandi er umfjöllun um það helsta sem unnið hefur verið að á undanförnu starfsári. 19. júní 2001 Útgáfa 19. júní 2001 var stór hluti af starfi félags- ins á árinu eins og venja er. Á síðasta ári átti blaðið 50 ára útgáfuafmæli og var þess getið í blaðinu auk þess sem blaðið fékk margar góðar afmæliskveðjur. Ritstjóri 19. júní 2001 var Arna Schram blaðamaður og skilaði hún og ritstjórnin sem starfaði með henni af sér góðu blaði með mörgum áhugaverðum greinum. Útgáfa blaðsins fékk nokkra fjölmiðlaathygli að þessu sinni, eink- um grein um kynferðislega áreitni í íþróttum eftir Örnu Schram, efni sem tímabært var að fjalla um. í tilefni útgáfunnar var haldið útgáfuhóf á Hallveig- arstöðum þar sem efni blaðsins var kynnt. Sama kvöld var að venju kvennamessa við Þvottalaug- arnar í Laugardal í samvinnu Kvenréttindafélags- ins, Kvennakirkjunnar og Kvenfélagasambands íslands. Arna Schram annast einnig ritstjórn 19. júní 2002 og hefur verið að störfum ásamt ritnefnd á undanförnum mánuðum. Norrænt og alþjóðlegt samstarf. Kvenréttindafélagið er aðili að samstarfi nor- rænna kvenréttindafélaga innan samstarfshóps- ins, NOKS, (Nordiske kvindeorganisationer i sam- arbejde), og voru haldnir tveir fundir í Helsinki á vegum hópsins 2001. Fyrri fundinn, sem haldinn var í maí 2001, sóttu Þorbjörg Inga Jónsdóttir og Erla Hulda Halldórsdóttir, fyrir KRFÍ, en þann seinni, Erla Hulda Halldórsdóttir og Anna Gunn- hildur Ólafsdóttir. Umfjöllunarefni fundanna var aðallega staða jafnréttismála á Norðurlöndunum og möguleikar hópsins til að beita sér sem ein heild í þágu jafnréttis, auk þess sem fjallað var sérstaklega um karla, völd og jafnrétti á haust- fundinum. NOKS samstarfið er styrkt af Norrænu ráðherra- 67

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.