19. júní


19. júní - 19.06.2002, Page 69

19. júní - 19.06.2002, Page 69
trúar“, Anh Dao Tran frá Víetnam með erindið „Innflytjendur; virkir þjóðfélagsþegnar? og Emil- ía Mlynska frá Póllandi með erindið „Konur á tímamótum í Póllandi. Ráðstefnunni lauk síðan með erindi Hildar Jónsdóttur, jafnréttisfulltrúa Reykjavíkurborgar, sem var með samantekt und- ir yfirskriftinni, Jafnrétti allra, en hún kom einnig að 95 ára félagsins sem var þann 27. janúar sl. Er fjölskyldan Hornsteinn eða hornreka? Þann 4. maí sl. stóð KRFÍ að fjölskylduráðstefnu á Selfossi ásamt Kvenfélagasambandi íslands, Bandalagi kvenna í Reykjavík og Sambandi sunn- lenskra kvenna um stöðu fjölskyldunnar í nútíma- þjóðfélagi. Á ráðstefnunni voru haldin mörg á- hugaverð erindi um breyttar aðstæður íslensku fjölskyldunnar, fjárhagslegt umhverfi hennar og samþættingu barnauppeldis og vinnu. Þá tók Þóra Þórarinsdóttir, dagskrárgerðarmaður, sam- an erindin sem flutt voru á ráðstefnunni og helstu niðurstöður og er unnt að nálgast samantektina á skrifstofu félagsins. Bent er á að til stendur að fjalla nánar um ráðstefnuna í næsta tölublaði Hús- freyjunnar en upplýsingar um hana eru einnig væntanlegar á heimasíðu KRFÍ, www.krfi.is. Fjármál og rekstur. í upphafi árs 2001 var Ijóst að grípa yrði til að- gerða til að bæta fjárhag félagsins, en þá lá t.d. fyrir að ekki væri til fé til að standa undir regluleg- um launagreiðslum til starfsmanns. Þá tók undir- rituð að sér framkvæmdastjórn félagins og hefur annast hana með starfi formanns síðan í mars 2001. Á þessum tíma hefur verið leitað allra leiða, bæði til að draga saman kostnað hjá félaginu og til að afla aukins fjár. Þá hefur undirrituð setið í húsnefnd Hallveigarstaða fyrir KRFÍ, en rekstur hússins var tekin til gagngerra breytinga í árslok 2000. Sótt hefur verið um styrki bæði til opinberra og einkaaðila vegna allra verkefna sem ákveðin voru á síðasta starfsári og lýst hefur verið hér að fram- an og hefur það verið einbeittur ásetningur stjórn- ar að láta hvert verkefni standa undir sér, þar sem Frá vinstri að ofan: Kristín Þóra Harðardóttir, Erla Hulda Halldórsdóttir, Margrét Sverrisdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Þorbjörg I. Jónsdóttir og Margrét Kr. Gunnarsdóttir. Á myndina vantar 7 stjórnarkonur 69

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.