Sólskin - 01.07.1936, Síða 26
að svo stórír álar geti farið upp fossana, sem
eru í Elliðaánum?
Ingveldur: Nei, það held eg ekki.
Þormóður: Mig grunaði það. Þá hljóta þeir
að vera fæddir þar, en ekki í sjó.
Ingveldur: Það er ekki furða, þó þú haldir
það. En álarnir eru nú samt allir komnir úr
sjó. Þegar þeir ganga í árnar og lækina, þá
er afskaplegur áhugi í þeim að komast áfram
upp eftir, því að eðlishvötin segir þeim, að
þrengslin séu mest eða flestir um ætið nálægt
ósunum. Þegar svo verður fyrir þeim stríður
straumstrengur, sem þeir ekki geta synt upp,
þá skríða þeir eftir votum steinum eða klöpp-
um, sem eru meðfram honum. Eða með öðr-
um orðum, þeir labba sig bara upp á land, þar
sem þess þarf með. En auðvitað er, að þeir
geta ekki skriðið nema þar sem er blautt.
Þormóður: En eg skil ekki, hvernig þeir
geta farið upp fossa.
Ingveldur: Þeir skríða upp blautt bergið
meðfram fossunum. Þeir geta farið upp al-
veg lóðrétt berg, já, meira að segja þó að það
slúti út yfir sig. Maðurinn, sem eg var að
segja ykkur frá að hefði látið álaseiðin í
Tjörnina, veiðir þau við læki, þar sem þau
24