Sólskin - 01.07.1936, Síða 38
komið var með á „Gottu“, að þeir skyldu allir
drepast. Ætli sauðnaut geti ekki lifað hér?
Ingveldur: Jú, áreiðanlega, þótt svona illa
tækist í fyrstu.
Þormóður: Eg hefi heyrt suma menn segja,
að það hefði verið betra, að sleppa sauðnaut-
unum og láta þau eiga með sig sjálf uppi í
óbyggðum. Ætli það hefði verið betra?
Ingveldur: Það verður aldrei sama gagn að
þeim þar, og fáir myndu sjá þau þar og hafa
gaman af þeim. Ef eg mætti ráða, myndi eg
láta flytja inn sauðnaut á ný, og hafa sum í
girðingum í byggð og temja þau, en sleppa
sumum upp í óbyggðir.
Þormóður: Ætli það væru fleiri dýrateg-
undir, sem gætu lifað hér á landi?
Ingveldur: Já, margar. Hér voru rostung-
ar í fjörunum, þegar landnámsmennirnir
komu. Og selurinn var alstaðar með landi
fram. Og svo fuglamergðin. Yitið þið hvernig
endurnar eru við Mývatn? Mergðin af þeim
er svo mikil, og þær eru svo gæfar þar, að
ókunnugir halda að þetta séu alifuglar. En
svona hefir verið við flest vötn, nema þau, sem
dýpst eru, og þau, sem sandur fýkur í. í þeim
er minna æti. Af gæsum hefir verið alveg
ótrúlegur grúi.
36