Sólskin - 01.07.1936, Page 49
gleymdi einni jurtinni, sem þrífst í ósöltn
vatni, og gaman væri að hafa í stofutjörn.
Það er blöðrujurtin.
Sprettfiskur.
Sigga litla: Er hún falleg?
Ingveldur: Hún er ekkert ljót. En hún er
merkileg af því að hún veiðir smádýr, til
dæmis smá fiskseiði, og étur þau.
Mjói: Hvernig veiðir hún þau?
Ingveldur: Hún veiðir þau í blöðrurnar,
sem hún er kennd við. Blöðrurnar eru eins-
konar laxakistur. Lyfjagrasið er af sömu ætt
og blöðrujurtin. Það veiðir líka smá flugur
og pöddur og étur þær.
Mjói: Lyfjagrasið? Er það ekki lítið, blátt
blóm, með flötum, gulum blöðum, alveg nið-
ur við jörðina?
Ingveldur: Jú, jú, það er einmitt það.
Þormóður: En hvernig éta þessar jurtir
þessi dýr? Það er þó enginn kjaftur á þeim?
Ingveldur: Ónei, ekki er það. En það er
kallað að jurtirnar éti þessi dýr, af því þær
47