Sólskin - 01.07.1936, Side 73

Sólskin - 01.07.1936, Side 73
hér að, svo sem hettumáfur, ugla og starri. Hettumáfs-hreiður og uglu-hreiður hafa fund- ist hér, en starra-hreiður ekki. En starrahjón hafa sést vera að tína maðka í júlímánuði og var talið víst, að þau ættu hreiður í nánd. Og nú man eg ekki eftir fleirum. Sigga litla: En snjótittlingurinn? Ingveldur: Eg er búin að telja hann. Hann er kallaður sólskríkja á sumrin. Hann hefir víst fengið sérstakt nafn af því, að karlfugl- inn er allt öðruvísi á sumrin. Þá er hann mjög fallegur. En nú man eg eftir, að eg á ótalda tvo fugla, sem er hrossagaukurinn og rindill- inn. Mjói: Hvenær verpa þeir þá? Ingveldur: Ja, það er það, sem eg ekki man. Hrossagaukurinn verpir einhvern tíma síðari hlutann í maí eða fyrstu dagana í júní. Hann er auðþekktur um varptímann á hinu ein- kennilega hljóði er hann gefur frá sér, „hneggi“, sem kallað er. Hann lætur sig falla úr háa lofti niður á við, og lætur loftið leika milli f jaðranna í vængjunum, en við það mynd- ast hljóðið. Rindillinn, sem líka er kallaður músarbróðir, verpir einhvern tíma í júní. Hann býr sér til einkennileg hreiður, því það eru eiginlega hús, með dyrum á hliðinni. Hann 71

x

Sólskin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.