Sólskin - 01.07.1936, Page 79

Sólskin - 01.07.1936, Page 79
livað sólin skín fagurt eftir skúr. Reynið að setja upp rauð eða blá gleraugu, og sjáið hvað heimurinn er fallegur í kring um ykkur fyrst á eftir. En þeim, sem gengur alltaf með slík gleraugu, finnst veröldin miklu fallegri, þeg- ar hann tekur þau af sér, hversu litfögur sem þau eru. Meðan íslendingar bjuggu í óhituðum húsum og voru eftir því illa búnir, þótti öll- um sumarið skemmtilegra en veturinn — já, jafnvel kviðu fyrir honum. En hvað segir fólkið, sem farið er að stunda skíðaíþróttina um helgar hér uppi á fjöllunum? Ja, einn þeirra sagði mér um daginn, að sér hefði ekki þótt neitt sumar eins skemmtilegt og síðastliðinn vetur. Ætli það geti ekki orðið svo um fleiri. Næstum allar þjóðir kvarta undan veðrinu, en þrír af hverjum fjórum kvarta yfir hitanum, og skoða sval- ann sem blessun. Við höfum svalann og í veð- urfari okkar er tilbreyting, sem gerir þjóð- ina harðgera og starfhuga, það er að segja, ef hún vill það sjálf. Sigga litla: Nei, nei, sko álftirnar nú! Þcrmóður: Þær eru að fljúga upp. Mjói: Afskaplega eru þær nú tignarlegar. Ingveldur: Nú ættum við að syngja „Svana- söng á heiði“. 77

x

Sólskin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sólskin
https://timarit.is/publication/672

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.