Fréttablaðið - 01.12.2010, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 1. desember 2010
Andlit, hendur og fætur verða oftast verst úti enda
líkamshlutar sem eru oftar en ekki berskjaldaðir
fyrir veðri og vindum. Hér á eftir fara tíu ráð sem
hjálpa húðinni að halda eftirsóknarverðu heilbrigði
og ljóma:
1. Byrjið daginn á því að drekka heitt vatn með sítr-
ónusafa. Samkvæmt indverskri speki á það að hjálpa
líkamanum að hreinsa sig í upphafi dags.
2. Nærið húðina innan frá. Borðið úr öllum fæðuflokk-
um og gætið þess að fá nægilegt magn vítamína og
steinefna. Stundið reglulega hreyfingu og gætið þess
að sofa vel. Besta ráðið er að fara klukkutíma fyrr í
bólið með heitan drykk og góða bók.
3. Drekkið nóg af vatni. Áfengi, kaffi og te þurrka
líkamann og meira þarf að drekka af vatni ef slíkir
drykkir eru oft á borðum.
4. Þurrburstið húðina fyrir sturtu eða bað. Þannig má
fjarlægja dauðar húðfrumur og óæskileg eiturefni.
5. Gætið þess að fara ekki í of heitt bað eða sturtu
enda þurrkar það húðina. Ylvolgt vatn hreinsar húð-
ina alveg jafn vel en veldur ekki jafn miklum þurrki.
Setjið endilega góða olíu í baðið og berið á ykkur olíu
eða krem til að vernda húðina frekar fyrir veðri og
vindum. Veljið auk þess góðan og þekjandi farða.
6. Skiptið yfir í aðeins feitara andlitskrem á veturna
til að vernda húðina fyrir veðri. Veljið auk þess góðan
og þekjandi farða.
7. Notið varasalva. Gleymið fullyrðingum um að var-
irnar verði háðar honum. Þær þurfa raka yfir köld-
ustu vetrarmánuðina enda án allra fitukirtla.
8. Hafið í huga að því heitari sem
vistarverur eru, þeim mun minni
raki er í loftinu og þeim mun meiri
raka þarf að gefa húðinni.
9. Notið kornakrem á andlitið einu
sinni til tvisvar í viku til að fjar-
lægja dauðar húðfrumur. Með-
höndlið hendur og fætur með sama
hætti og jafnvel oftar í viku yfir
vetrartímann. Hægt er að búa
til eigin skrúbb úr salti, sykri og
olíu.
10. Notið sólarvörn á skíðum. Geisl-
ar sólar geta valdið skaða allan árs-
ins hring. Heimild: www.essortment.com
Heilbrigð húð í kuldatíð
Þegar hitastigið fer niður fyrir frostmark dag eftir dag taka margir eftir breytingum á húðinni og finna
hjá sér þörf til að breyta húðhirðunni til að komast hjá þurrki og sprungum.
Best er að velja ofnæmisprófuð krem án
ilmefna. Ekki þarf endilega að hlaupa á
eftir dýrustu kremunum heldur er það
rakinn sem skiptir máli.
Húðin þarfnast aukins raka í frosti og
kulda. Þá eiga flestir það til að kynda
meira á þessum tíma árs og því heitari
sem vistarverur manna eru, þeim mun
minni raki er í loftinu. Við slíkar aðstæður
þarf að gæta vel að því að gefa húðinni
utanaðkomandi raka. NORDICPHOTOS/GETTY
Á síðasta ári söfnuðust 2.2 milljónir á íslandi og fór það fé til
Alnæmissamtaka Íslands og var notað til forvarnarstarfa í
öllum grunnskólum á landinu.
1. desember er alþjóðlegi alnæmisdagurinn og
ætlum við í MAC Kringlunni og MAC Debenhams
að bjóða öllum konum að koma og prófa varaliti
og glossa sem geta bjargað mannslífum.
Allur ágóði Viva Glam rennur til samtaka sem
heita The MAC Aids Fund og er sjóðurinn sá
stærsti og öflugasti í heiminum.
Með einum Viva Glam getur þú:
Keypt skólabækur og efni fyrir sjö HIV smituð börn í Afríku.
Næg lyf til þess að koma í veg fyrir HIV smit frá móður til barns
fyrir tvö börn í Afríku.
Yfir 50 blóðprufur og rannsóknir á HIV smituðum á Indlandi.
Mat í heilan mánuð fyrir HIV smitað munaðarlaust
barn í Kína.
Þrjú net sem vernda 3 börn fyrir moskítóflugum í Uganda.
ÞÆGILEGAR
ABC aðhalds-
sokkabuxur
frá Oroblu
fyrir jólatónleikana og jólahlaðborðin,
Konur þurfa ekki endilega að vera með aukakíló sem þær vilja fela, til að
þurfa á aðhaldssokkabuxum að halda. Margar sem eru búnar að eiga börn eru
með slappari húð en áður, burtséð frá fituhlutfalli og aukakílóum. ABC sokkabux-
ur eru draumur hverrar konu, “bumba yfir streng” hverfur, sokkabuxurnar rúlla
ekki niður og konur verða allar stinnari og sléttari, passa betur í fötin og líður
einfaldlega betur í fötunum sínum. ABC buxurnar eru einnig með þannig áferð
að sokkabuxurnar loða ekki við fatnað, fatnaðurinn situr því á glæsilegri máta.
ABC sokkabuxurnar slétta magasvæðið, lyfta upp og undirstrika rassinn ásamt
því að styðja við mjaðmir og hliðar, til bæði með og án stuðnings niður á læri.
ABC sokkabuxurnar eru til bæði í 40 og 20 denum í svörtum og sun lit, ráðleg-
gjum eindregið 40 den fyrir konur sem eru þéttvaxnar því þær eru hærri upp og
rúlla því síður niður. Báðar týpur er hægt að nota við opna skó.