Fréttablaðið - 11.12.2010, Page 4
4 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
Samningsdrög við Hol-
lendinga 11. október 2008
Samningur við Breta og
Hollendinga 5. júní 2009
Fyrirvarar settir af
Alþingi 28. ágúst 2009
Samningur við Breta og Hollendinga 9. desember 2010
Vextir 6,7 prósent 5,55 prósent 5,55 prósent 3 prósent og 3,3 prósent
Mat á kostnaði ríkisins Óþekkt 162 milljarðar króna 162 milljarðar króna 47 milljarðar króna
Endurgreiðslur hefjast 2012 2016 2016 2011
Greiðslum skal lokið 2019 2024 2024 (möguleiki á fram-
lengingu til 2030)
2046
Efnahagslegir fyrirvarar Engin ákvæði Lægri afborganir ef
hagvöxtur yrði undir
ákveðnum mörkum.
Þak á árlegar greiðslur eftir 2016 miðast við 5% af tekjum ríkisins á
fyrra ári. Ef eftirstöðvar höfuðstöðva nema innan við 45 milljörðum árið
2016 greiðast þær innan 12 mánaða. Endurgreiðslutími hækkar um eitt
ár fyrir hverja 10 milljarða umfram 45 milljarðana.
Úrlausn ágreiningsmála Engin ákvæði Fyrir breskum dómstólum Fyrir breskum dómstólum Hjá alþjóða gerðardóminum í Haag
FRÉTTASKÝRING
Hversu margar tilraunir hafa verið
gerðar til að semja um Icesave?
Segja má að alls hafi fjórum sinn-
um verið samið um lausn Icesave-
deilunnar frá því að íslenska
bankakerfið hrundi haustið 2008.
Enn er ekki ljóst hvort sú niður-
staða sem samninganefnd Íslands
kynnti í vikunni verði sú síðasta.
Fyrst var reynt að semja um
Icesave-skuldir Landsbankans
strax eftir bankahrunið, eftir að
bresk stjórnvöld frystu eignir
bankans þar í landi.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Samfylkingar náði samkomu-
lagi við hollensk stjórnvöld 11.
október 2008, og reynt var að
semja við bresk stjórnvöld á svip-
uðum nótum. Samið var um að
Hollendingar lánuðu íslenska rík-
inu fyrir skuldbindingunum í Hol-
landi með láni til tíu ára með 6,7
prósenta vöxtum. Í janúar 2009
sprakk ríkis stjórnin.
Ný ríkisstjórn Samfylkingar
og Vinstri grænna hóf samninga-
viðræður á nýjan leik, og gerði út
samninganefnd sem Svavar Gests-
son leiddi. Hinn 5. júní 2009 var
nýr samningur um ríkisábyrgð
á skuldunum undirritaður. Þar-
var kveðið á um lán með 5,55 pró-
senta vöxtum, og kostnaður ríkis-
ins metinn á 162 milljarða króna.
Afar hart var deilt um samninginn
í umræðum á Alþingi allt sumarið,
og riðaði stjórnin að því er virtist
til falls vegna málsins á tímabili.
Niðurstaða Alþingis var sú að
gera fyrirvara við samninginn, og
voru lög þar að lútandi samþykkt
28. ágúst. Bretar og Hollending-
ar töldu þar með samninginn ekki
samþykktan, og enn var sest að
samningaborðinu.
Að endingu stóðu aðeins tveir af
fyrirvörum Alþingis út af borðinu
þegar stjórnvöld skrifuðu undir
nýjan samning 18. október. Þeir
fyrirvarar þóttu þó afar mikil-
vægir. Þar var annars vegar um að
ræða fyrirvara um að ekki þyrfti
að greiða lengur af láninu en til
2024, og hins vegar að Íslendingar
drægju lögmæti kröfunnar í efa.
Lög um ríkisábyrgð á láni Breta
og Hollendinga með fyrrgreind-
um skilmálum voru samþykkt á
Alþingi 30. desember eftir afar
harðar umræður. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, synjaði
lögunum í kjölfarið staðfestingar,
og þau voru kolfelld í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í kjölfarið.
Enn hófust viðræður við bresk
og hollensk stjórnvöld, nú undir
forystu Lee C. Buchheit, banda-
rísks lögmanns og sérfræðings í
alþjóðlegum lánasamningum. Við-
ræðurnar gengu fremur hægt til
að byrja með, sem skýrist meðal
annars af því að þingkosningar
voru fyrirhugaðar nokkrum mán-
uðum síðar bæði í Bretlandi og
Hollandi.
Síðastliðinn fimmtudag var svo
að lokum tilkynnt um nýtt sam-
komulag við bresk og hollensk
stjórnvöld. Þar var samið um 3,3
prósenta vexti af láni frá Bretlandi
og 3 prósenta vexti af láni frá Hol-
landi. Kostnaður ríkisins nú er
metinn á um 47 milljarða króna.
Hvort þessi fjórða tilraun til að
ná samkomulagi í þessari erfiðu
milliríkjadeilu ber árangur velt-
ur á viðtökum Alþingis, sem þarf
að samþykkja samninginn áður
en hann tekur gildi. Samþykki
Alþingi lög þar sem samkomulagið
er staðfest fara þau lög til forset-
ans til staðfestingar. Hann hefur
þá val um að staðfesta lögin eða
vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu
á ný. brjann@frettabladid.is
Fjórða atrennan að Icesave
Icesave er mál málanna þessa aðventu eins og verið hefur síðustu tvö ár. Fyrst var reynt að semja skömmu
eftir hrun og enn náðist nýtt samkomulag í fyrradag. Ekki er útilokað að gera þurfi fleiri atrennur.
samningarnir
11. október - Samkomulag
við Hollendinga um greiðslu
á Icesave.
5. desember - Alþingi sam-
þykkir að ljúka Icesave með
samningum.
24. febrúar - Ný samninga-
nefnd undir forystu Svavars
Gestssonar stofnuð.
5. júní - Skrifað undir samn-
inga við Breta og Hollendinga.
28. ágúst - Alþingi samþykkir
ríkisábyrgð með fyrirvörum.
17. október - Skrifað undir
nýja samninga við Breta og
Hollendinga.
30. desember - Alþingi
samþykkir samninginn.
5. janúar - Forseti Íslands
synjar lögum um ríkisábyrgð
staðfestingar.
6. mars - Þjóðin hafnar
Icesave-samningnum í þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
8. febrúar - Lee Buchheit
samþykkir að leiða íslenska
samninganefnd.
9. desember - Nýtt sam-
komulag næst við bresk og
hollensk stjórnvöld.
Tímalína Icesave
2008
2009
2010
STJÓRNMÁL „Ég fagna því mjög að
þessi niðurstaða hafi náðst og ekki
síst að það hafi náðst sátt í samn-
inganefndinni, sem var meðal ann-
ars skipuð fulltrúa frá stjórnar-
andstöðunni,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir forsætisráðherra
um Icesave-samninginn sem nú
liggur á borðinu. „Þetta er gríðar-
legur áfangi í endurreisninni.“
Jóhanna segir að forystumenn
flokkanna séu þegar byrjaðir að
ræða um framhald málsins og
hvernig farið verður með það í
þinginu. Hún vonist til þess að
all ir f lokkar
geti staðið að
því saman.
„ É g v o n a
að það skýr-
ist f ljót lega
í næstu viku
hvernig fram-
haldið verður.
Ég held að það
liggi ljóst fyrir
að það er ekki
hægt að klára þennan samning
í þinginu fyrir jól. Það er eðli-
legt að menn taki sér tíma til að
skoða málið í heild. Það er aftur
á móti spurning um hvort hægt
er að mæla fyrir málinu og koma
því til nefndar fyrir jól,“ segir
Jóhanna.
Forystumenn ríkisstjórnarinn-
ar fóru ekki leynt með óánægju
sína þegar ekki tókst að klára síð-
asta Icesave-samning fyrr á árinu.
Spurð hvort það hafi verið röng
afstaða í ljósi nýja samningsins
segir Jóhanna: „Nei, þetta sýnir
fyrst og fremst að aðstæður eru
verulega breyttar frá því að síð-
asti samningur var gerður. Flest
af því sem hefur orðið til þess að
lækka þennan samning hefði haft
áhrif til lækkunar á fyrri samn-
inginn.“
Hún nefnir til dæmis betri
heimtur úr þrotabúi Landsbank-
ans, hagstæðari gengismun, sterk-
ari gjaldeyrisforða og lægri fjár-
magnskostnað. „Það er veruleg
skýring á þessum 100 milljarða
mismuni sem er á þessum samn-
ingum,“ segir Jóhanna. Ekki megi
heldur gleyma því að tafirnar hafi
kostað sitt fyrir atvinnulífið í
landinu. - sh
Jóhanna Sigurðardóttir segir nýjan Icesave-samning ekki sýna að fyrri afstaða stjórnarinnar hafi verið röng:
Icesave-málið verður ekki klárað fyrir jól
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
10°
3°
6°
3°
5°
4°
4°
22°
6°
15°
6°
22°
-1°
6°
16°
1°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða um land.
MÁNUDAGUR
Fremur hægur vindur
víða um land.
3
2
4
5 256
5 5
4
4
3
3
3
2
2
5
3
6
3
-2
3
5
5
5
4
7
4
15
5
5
5
15
2
MILD HELGI
Veður verður milt
um helgina miðað
við að nú styttist
í jólin og því lítið
um snjó nú þegar
fyrstu jólasveinarn-
ir koma til byggða.
Það verður víða
nokkuð bjart í dag
og fremur hægur
vindur en síðdegis
gæti fallið lítils-
háttar væta allra
vestast.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
HJÁLPARSTARF Um 150 sjálfboða-
liðar Reykjavíkurdeildar Rauða
kross Íslands munu gefa gestum
og gangandi í miðbæ Reykjavík-
ur um átta þúsund bolla af heitu
súkkulaði laugardagana fram að
jólum og á Þorláksmessu.
Súkkulaðið verður gefið á fjór-
tán stöðum víðs vegar um miðbæ-
inn. Verslunareigendur í miðbæn-
um standa straum af kostnaðinum
við verkefnið, ásamt Mjólkur-
samsölunni sem gefur 750 lítra
af mjólk og Nóa Síríus sem gefur
130 kg af suðusúkkulaði.
Tekið verður við frjálsum fram-
lögum í söfnunarbauka og renna
þau í Elínborgarsjóðinn, sem
ætlað er að styrkja einstaklinga
og fjölskyldur í kringum jólin. - sh
Sjálfboðaliðar Rauða krossins:
Gefa átta þús-
und kakóbolla
STOFNANIR Umboðsmaður skuldara
flytur skrifstofur sína um helgina
frá Hverfisgötu 6 og í Kringluna 1.
„Frá því embættið tók til starfa,
þann 1. ágúst, hefur starfsmönn-
um fjölgað mjög og starfsemin
orðið umfangsmeiri,“ segir í til-
kynningu. „Því er talið nauðsyn-
legt að fara í rúmbetra húsnæði.“
Útibú umboðsmanns skuldara
verður opnað í Reykjanesbæ í lok
næstu viku.
Rúmbetra húsnæði nauðsyn:
Umboðsmaður
færir sig um set
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 10.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,5601
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,46 115,00
181,19 182,07
151,74 152,58
20,349 20,469
19,055 19,167
16,653 16,751
1,369 1,377
176,04 177,08
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Ranglega var sagt í frétt á miðvikudag
um deilur um vegarslóða á Vatns-
leysuströnd að eigandi Neðri-Brunna-
staða væri fyrrverandi bæjarfulltrúi H-
listans. Að sögn Eirnýjar Valdsdóttur,
bæjarstjóra Voga, hefur enginn íbúi á
Neðri-Brunnastöðum verið bæjarfull-
trúi eða í hreppsnefnd svo langt aftur
sem minni elstu manna nær.
LEIÐRÉTTING
Dagatalsbókin
er komin!
R
salka.is