Fréttablaðið - 11.12.2010, Page 6
6 11. desember 2010 LAUGARDAGUR
FRAMKVÆMDIR Samningaviðræður
ríkisins og lífeyrissjóðanna um
fjármögnun sjóðanna á tugmillj-
arða vegaframkvæmdum runnu
út í sandinn á fimmtudag.
Of mikið bar í milli þess sem
ríkið var tilbúið til að greiða og
þess sem sjóðirnir vildu fá.
Kristján L. Möller, þingmaður
Samfylkingarinnar fer fyrir
verkefninu
fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar.
„Við vi ldum
semja út frá
Íslandi nútím-
ans þar sem
vex t i r e r u
að lækka og
buðum ákveðna
breytilega vexti
sem grunnvexti
og álag ofan
á þá. Það var
að okkar mati
mjög vel boðið
en lífeyrissjóð-
irnir sögðust
í gærmorgun
[fimmtudags-
morgun] alls
e k k i v i l j a
breytilega vexti
heldur fasta
vexti til fjög-
urra eða fimm ára. Það réði úrslit-
um,“ segir Kristján.
Í ljósi þessa hafa stjórnvöld
ákveðið að fjármagna framkvæmd-
irnar með skuldabréfa útboði.
Lánin bera því ríkisábyrgð.
Arnar Sigurmundsson, for-
maður Landssamtaka lífeyris-
sjóða, segir að í þrjá mánuði hafi
legið fyrir að ríkið væri, sam-
hliða viðræðum við sjóðina, að
skoða möguleikana á skulda-
bréfaútboði. „Við vildum semja
um fasta vexti enda mikilvægt
fyrir lífeyrissjóðina en ríkið
vildi breytilega vexti. Við héld-
um að lending myndi nást en
svo slitnaði upp úr. Við vorum
ró legir yfir því enda vissum við
að hinn kosturinn væri til stað-
ar.“ Aðspurður segir Arnar það
koma í ljós hvort lífeyrissjóðirn-
ir taki þátt í skuldabréfaútboðinu
en bendir á að þeir séu stór kaup-
andi slíkra bréfa.
Arnar og Kristján eru sammála
um mikilvægi þess að niðurstaða
fáist. Fram undan séu umfangs-
miklar framkvæmdir sem að
hluta til komi til framkvæmda á
næsta ári en einkum árin 2012,
2013 og 2014. Bæði skapi þær
störf og auki á umferðaröryggi
á nokkrum fjölförnustu leiðum
vegakerfisins. bjorn@frettabladid.is
Ríkið býður út lán í
stað þess að semja
Umfangsmiklar vegaframkvæmdir verða fjármagnaðar með skuldabréfaútboði
en ekki beinum lánum frá lífeyrissjóðunum. Viðræður þar um sigldu í strand.
ARNAR
SIGURMUNDSSON
KRISTJÁN L.
MÖLLER
VEGAGERÐ Vonir standa til að mikill kraftur færist í vegagerð, einkum að næsta
ári liðnu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Heildarfjárhæð vegaframkvæmdanna sem stjórnvöld hafa ákveðið að ráðist
verði í á næstu fjórum árum er á milli þrjátíu og fjörutíu milljarðar króna.
Framkvæmdir fyrir sex milljarða hefjast á næsta ári, og fyrir tíu til tólf millj-
arða árin þrjú á eftir.
Kristján Möller segir að framkvæmdir við Suðurlandsveg, á fimmtán kíló-
metra kafla milli Hellisheiðarvirkjunar og Hveragerðis, verði boðnar út í byrj-
un nýs árs. Einnig tæplega tveggja kílómetra verk á Vesturlandsvegi, nærri
gatnamótum Bæjarháls og um fjögurra kílómetra kafli á Reykjanesbraut,
milli Kaldárselsvegar og Krísuvíkurvegar. Þá séu Vaðlaheiðargöng tilbúin til
forvals á evrópska efnahagssvæðinu en í því er kallað eftir áhugasömum
verktökum og nokkrum boðið að bjóða í verkið. Það ferli getur tekið fjóra
til sex mánuði. Kristján vonast til að hægt verði að byrja að sprengja fyrir
göngunum á þjóðhátíðardaginn næsta sumar.
Sprengt í Vaðlaheiði 17. júní 2011?
MENNTUN Íslenskir háskólanemar á Englandi þurfa ekki
að óttast hækkanir á skólagjöldum með tilkomu nýrra
laga þar í landi. Mikill styr hefur staðið um breyting-
ar á lögum um hámarksskólagjöld í enska háskóla,
frá haustinu 2012 verða gjöldin færð úr 3.290 sterl-
ingspundum á ári upp í 9.000, sem er sama upphæð og
nemar utan Evrópusambandsins, þar á meðal Íslend-
ingar, hafa þurft að greiða hingað til.
Mótmæli námsmanna náðu hámarki á fimmtudag
þar sem óeirðir brutust út við þinghúsið í London
þar sem lögin voru samþykkt. Reyndist það mörgum
stjórnarþingmönnum erfitt og meðal annars kaus 21
þingmaður úr liði Frjálslyndra demókrata á móti lög-
unum.
Hjördís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands
íslenskra námanna erlendis, segir í samtali við Frétta-
blaðið að hún sé fegin að hækkanirnar muni ekki koma
við þá 215 Íslendinga sem stunda nám í Englandi.
„Það er mjög mikilvægt að halda góðum samskipt-
um á milli landanna, ekki síst með námsmannaskiptum
og ef það myndi detta upp fyrir gæti það haft slæmar
afleiðingar.“ - þj
Skólagjaldahækkun á Englandi snertir ekki íslenska námsmenn:
Gjöld Íslendinga hækka ekki
LÆTI Í LONDON Stúdentar komu saman fyrir utan þinghúsið í
London til þess að mótmæla hækkun skólagjaldanna. Óeirðir
brutust út og tugir manna slösuðust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA
SÖ
LU
TÍ
M
A
BI
L
4.
-1
8.
D
ES
EM
BE
R
Út
sö
lu
st
að
ir
á
k
ae
rle
ik
sk
ul
an
.is
J Ó L A K Ö T T U R I N N
ÍSLENSK HÖNNUN OG RITSNILLD
Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA
í túlkun Hildigunnar Gunnarsdóttur,
Snæfríðar Þorsteins og Þórarins Eldjárns.
UMSÓKNARFRESTUR
UM NÁM
Á VORÖNN ER TIL
11. DESEMBER
www.hr.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur segir að
eigendur tveggja frístundahúsa í
Kiðjabergi í Grímsnesi þurfi ekki
að rífa húsin eins og einn nágranni
þeirra krafðist.
Húsin standa á landi Meistara-
félags húsasmiða í Kiðjabergi.
Eigendur þeirra fengu samþykkt
byggingarleyfi hjá sveitarfélaginu í
október 2005 og í febrúar 2006. Þeir
hófust handa við smíði húsanna en
sumarið 2006 kærðu eigendur eldra
sumarhúss í næsta nágrenni fram-
kvæmdina. Úrskurðarnefnd skipu-
lags- og byggingarmála komst að
því að ekki hafði verið staðið rétt
að breyttu aðalskipulagi sem bygg-
ingarleyfin byggðu á og felldi þau
út gildi og lét stöðva framkvæmd-
ir. Ný byggingarleyfi voru síðar
gefin út samkvæmt aðalskipulagi
sem sveitarstjórnin samþykkti. Þau
leyfi voru síðan felld úr gildi sumar-
ið 2007 en þá voru húsin næstum
fullbyggð.
Samkvæmt lögum á að fjarlægja
mannvirki sem reist eru án stuðn-
ings í skipulagi. Hæstiréttur segir
hins vegar ekki annað séð en að
húsasmiðirnir sem reistu sér húsin
hafi verið í góðri trú um gildi bygg-
ingarleyfa sinna. - gar
Hæstiréttur segir húsasmiði hafa verið grunlausa um ólögmæti byggingarleyfis:
Frístundahús ekki dæmd til niðurrifs
UMDEILT HÚS Í GRÍMSNESI Nágrannar
þessa frístundahúss í Kiðjabergi töldu
gengið á rétt sinn með breyttu skipulagi
sem gerði ráð fyrir miklu stærri húsum á
svæðinu. MYND/EGILL
Hefur þú dregið úr akstri á
árinu vegna hækkandi bensín-
verðs?
Já 77%
Nei 23%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætti að samþykkja nýja
Icesave-samkomulagið?
Segðu skoðun þína á visir.is.
LÖGREGLUMÁL Tveir karlar um þrí-
tugt voru handteknir nú í vikunni
í tengslum við rannsókn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu á
innflutningi á kókaíni til landsins.
Annar maðurinn var handtekinn
í gær en hinn í byrjun vikunnar.
Jafnframt lagði lögreglan hald
á um 400 grömm af kókaíni sem
reynt var að senda til Íslands í
tvennu lagi frá Suður-Ameríku.
Mönnunum hefur verið sleppt
en annar sat í gæsluvarðhaldi í
tvo sólarhringa.
- jhh
Kókaínsmygl upplýst:
Tveir þrítugir
smyglarar teknir
KJÖRKASSINN